Tilg. Ingi V. Jónasson í Fjölbrautaskólanum vorið 1993 að kynna námsframboð við sænska háskólan í Skövde. Fjær er Ólafur Arnbjörnsson aðstoðarskólameistari.
Kennarar við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki. F.v. Jón F. Hjartarson skólameistari, Gísli Árnason, Sigríður Svavarsdóttir, Björn Fr. Björnsson, Kristján Björn Halldórsson, Ársæll Guðmundsson, Valgeir Kárason og óþekktur.
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.
Árssþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) haldið í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans í ágúst 1995. F.v. Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Björn Sigurbjörnsson formaður SSNV, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Steinunn Hjartardóttir og Þórður Skúlason sveitastjóri á Hvammstanga í ræðustóli.
Karen Steindórsdóttir nemandi á málabraut í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra tekur við viðurkenningum fyrir góðan námsárangur á stúdentsprófi vorið 1996 frá skólameistara Jóni F. Hjartarsyni.
Nýstúdentar og kennarar Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki ganga frá Sauðárkrókskirkju að loknum skólaslitum vorið 1983. Jón F. Hjartarson skólameistari fremstur fyrir miðju og Bragi Halldórsson kennari lengst t.v.
Nýjum báti Stakk RE 186 hleypt af stokkunum í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd haustið 1983. Á myndinni er Gísli Björnsson að afhenda Rögnvaldi Sæmundssyni biblíu í bátinn.
Veiðimenn við Vesturósinn. Kristján Arason er á brúninni við jeppann og Hans Birgir Friðriksson (Biggi Malla) í miðið í fjörunni. Lengst t.h. gæti verið Erlingur Jóhannesson. Óþekktur situr í kambinum.
Hans Birgir Friðriksson (Biggi Malla) með tvo minka sem hann fangaði í gildrur við Skíðastaði vorið 1993, en um veturinn hafði hann veitt 25 minka í gildrur flesta í Sauðármýrunum.
Jón Bjarnason skólastjóri Bændaskólans á Hólum veitir Elínu Rán Ingvarsdóttur viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í verknámi (ásamt Valberg Sigfússyni) við skólann haustið 1995. Athöfnin fór fram í Hóladómkirkju.
Snjóhengja féll í Sauðárgilinu í febrúar 1990 með þeim afleiðingum að drengur vað undir henni. Félagar hans hlupu til og náðu í aðstoð. Valgeir Kárason sem er næstur á myndinni var fyrstur á vettvang og mokaði drenginn upp.
Leikhópur Ungmennafélags Tindastóls sem setti upp revíuna Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson vorið 1997. Frá vinstri Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942 á bakvið-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-), Auðunn Blöndal (1980-), Indriði Þór Einarsson (1979-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-). Mynd var tekin í barnaskólanum þar sem sungin voru lög úr revíunni. Rás 1 var á staðnum og tók upp. Leikritið var sett upp árið 1997 af Umf. Tindastóli í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Höfundurinn Jón Ormar Ormsson er niðri í horninu t.h.
Alþýðusönghátíð sem haldin var í Bóknámshúsi Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki vorið 1997. Frá vinstri, Jón Ormar Ormsson (1936-), Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-), Edda Vilborg Guðmundsdóttir (1943-), María Gréta Ólafsdóttir (1956-), Guðbrandur Jón Guðbrandsson (1964-), Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000), Rakel Rögnvaldsdóttir (1978-), Halldóra Helgadóttir (1945-), Ásdís Guðmundsdóttir (1963-), Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-) og Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-). Jón Ormar Ormsson sá um dagskrána.
Leikritið Er þetta ekki mitt líf, eftir Brian Clark, sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp haustið 1982. Til vinstri Guðni Friðriksson (1951-) og Helga Sigríður Hannesdóttir (1934-2006).
Galdrakarlinn í Oz í uppsetningu Leikfélags Sauðárkróks haustið 1984. Leikstjóri Hávar Sigurjónsson og er hann efst t.h. Hilmar Sverrisson er lengst til hægri. Aðrir óþekktir.
Galdrakarlinn í OZ í uppsetningu Leikfélags Sauðárkróks, frumsýnt 9. desember 1984. Pjáturkarlinn Erlingur Viðar Sverrisson (1952-) t.v. og Friðrikka Hermannsdóttir.
Leikklúbburinn á Hvammstanga setti upp, Hreppstjóran á Hraunhamri eftir Loft Guðmundsson síðla vetrar 1993. Leikstjóri Hörður Torfason. Lengst t.h. er Júlíus Guðni Antonsson, hin óþekkt.
Árshátíð Grunnskólans á Sauðárkróki árið 1995. Við hljóðnemann Hrafnhildur Viðarsdóttir (1980-), Örn Friðhólm Sigurðsson (1979-), situr fremst. Aðrir óþekktir.
Frá vinstri, Hjörvar Halldórsson, Katrín María Andrésdóttir (1968-), Elva Björk Guðmundsdóttir (1960-), Guðný Hólmfríður Axelsdóttir (1967-). Leikritið Karlinn í Kassanum sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1994. Leikstjóri Jón Ormar Ormsson.
Leikhópur F.á S. (Fjölbrautaskólans) setti upp leikritið, Sjö stelpur, eftir Erik Thorstenson, vorið 1986. Leikstjóri Geirlaugur Magnússon. Guðjón Andri Kárason t.h. Hinn óþekktur.
Kardimommubærinn í uppsetningu Leikfélags Sauðárkróks árið 1987. Frá vinstri: Viðar Sverrisson, Kristján Gíslason, Guðni Friðriksson, Haukur Þorsteinsson, óþekktur, Ólafur Helgi Antonsson.
Leikritið Spanskflugan eftir Arnold og Bach sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks, árið 1986. Frá vinstri, Haukur Þorsteinsson (1932-1993), Friðrikka Hermannsdóttir (1941-) og Jón Ormar Ormsson (1938-). sem er leikstjóri.
Leikritið Spanskflugan eftir Arnold og Bach sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1986 í leikstjórn Jóns Ormars Ormssonar. Til vinstri Ólafur Helgi Antonsson (1947-) og Sigríður Guðrún Sigmundsdóttir (1959-).
Æfingar á ævintýtinu "Trítill" eftir Hilmi Jóhannesson og Huldu Jónsdóttur sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp haustið 1997 í leikstjórn Ingunnar Ásdísardóttur. Frá vinstri, Jón Guðni Karelsson, óþekkt (krjúpandi), Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir, líklega Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (krjúpandi), Þorbjörg Snorradóttir og Signý Leifsdóttir í höndum hennar, bakatil sést í Írisi Ösp Sveinbjörnsdóttur og Ingu Rún Pálmadóttu (í bleika bolnum). Fremst er Dagrún Leifksdóttir og Gestur Hrannar Hilmarsson með hendur á henni.
Helena Sigfúsdóttir (1964-) og Viðar Sverrisson (1952-) í hlutverkum sínum í leikritinu Allra meina bót, sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp árið 1989. Leikstjóri Sigurgeir Scheving.