Bréfið er handskrifað pappírsörk í A4 broti, alls tværskrifaðar síður. Það varðar álit skattanefndar Hólahrepps viðvíkjandi þeim gjaldendum hreppsins sem eigi stóðu á tekjuskattskrá hreppsins frá síðastliðnu hausti.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í foliobroti. Með liggja athugasemdir sem eru vélritaðar á pappírsörk í A4 broti. Varðar sveitarstjóðsreikning Sauðárkrókshrepps. Bæði skjölin eru orðin stökk og skemmd á jöðrum.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 17x20,5 cm. Bókin er 376 númeraðar síður, þar af 6 auðar síður. Kápan er laus frá bókinni og bandið á innsiglinu hefur einnig losnað.