Tekið í Villa Nova 7. ágúst 1923- frá vinstri: Þóra Gísladóttir- Páll Sigurðsson- Ingibjörg Jónsdóttir og Elínborg Jónsdóttir. Úr fórum Páls Sigurðssonar bókavarðar. Safn Kr. C. Magnússonar.
Frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir "brennis" frá Sauðárkróki, kona Tómasar Gíslasonar kaupmanns. Ingibjörg Jónsdóttir, bjó á Ísafirði, kona Björns Magnússonar, símstjóra á Borðeyri og Ísafirði.
Talið frá vinstri: Elínborg Jónsdóttir "brennis" Sauðárkróki- Hallfríður Jónsdóttir hjúkrunarkona á Sauðárkróki og Ingibjörg Jónsdóttir "brennis". Gefandi: Úr dánarbúi Sveins Sölvasonar- Sauðárkróki.