Reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga
- IS HSk N00316-B-A
- Málaflokkur
- 1939-1945
Reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga. Einnig yfirlit yfir innlagðar afurðir, svo sem kjöt og gærur.
Reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga
Reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga. Einnig yfirlit yfir innlagðar afurðir, svo sem kjöt og gærur.
Iðgjaldskvittanir fyrir Hátún og Miklagarð frá Brunabótafélagi Íslands.
Dagbókarslitrur Bjarna Jónassonar, þá á 14. ári. Dagbókin er skrifuð á tímabilinu maí til júní árið 1942.
Þrjár litlar innbundnar bækur sem innihalda bókhald yfir silungaveiði árin 1940 og 1941
Námsgögn Sigurðar frá grunnskólagöngu hans. Um ræðir vinnubækur fyrir hin ýmsu fög ásamt stílum, skriftaræfingum, teikningum og fleira.
Hér má sjá einkunnaspjöld Sigurðar frá árunum 1934-1936. Gefnar eru einkunnir fyrir Íslensku, raddbeitingu, hljóðfræði, skrift, reikning, landafræði, náttúrufræði, sögu, kristinfræði, teikningu og réttritun.
Skrá þar sem Sigurður hefur skráð niður vinnustundir sínar og annarra í tengslum við störf bæði í Hátúni og utan heimilis.
Tvö einkunnablöð Ólafs Jónassonar frá 1935-1936. Gefin er einkunn fyrir lestur, skrift, raddbeitingu og teikningu.
Einkunnablöð Halls Jónassonar fyrir árin 1929 og 1932.
Einkunnir Guðrúnar Jónasdóttur
Reikningar, nótur og flokkunarseðlar frá Mjólkursamlagi K.S.
Reikningar og nótur frá Mjólkursamlagi K.S. Einnig eru meðfylgjandi flokkunarseðlar sem sögðu til um gæði mjólkur sem lögð var inn í samlagið.
Reikningar og nótur frá Verslun Pálma Péturssonar
Reikningar og nótur frá Verslun Pálma Péturssonar.
Hér er að finna ýmis gögn úr búi Steinunnar. Happdrættismiða fyrir sundlaug í Varmahlíð, skömmtunarmiða, jólakort, erfiljóð um Sigurð Jónsson frá Brautarholti, dagskrá frá söngskemmtunar Sigurðar Skagfield, ljóð og fleiri blaðsnepplar sem ekki er ljóst hver skrifaði.
7 pappírskópíur sem voru innan um önnur gögn, fólk á myndum er ekki nafngreint.
Einkunnir bjarna Jónassonar í vorprófi barna í Varmahlíð á árunum 1937-1939, þá var Bjarni 8 - 10 ára. Gefin er einkunn fyrir lestur, skrift, reikning, sögu og teikningu.
Reikningar og nótur frá árunum 1941-1945. Aðallega nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga vegna innlegs Gunnlaugs og útsvargjöld til Seyluhrepps.
Námsgögn Ólafs Jónassonar frá grunnskólagöngu hans. Stílar, skriftaræfingar, teikningar og fleira.
Reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga, útsvarsgjöld og nóta fyrir vinnu.
Reikningar og nótur sem tilheyra Halli Jónassyni. Innleggsnótur í Kaupfélagi Skagfirðinga, ýmsir reikningar og útsvarsgjöld.
Bréf varðandi eignarlönd Steinunnar og Jónasar
Bréf er varða eignarlönd Steinunnar og Jónasar, Hátún og Miklagarð. Ýmis bréf sem fara á milli eiganda og dóms- og kirkjumálaráðuneytis, kjörinna fulltrúa, Sýslumanns Skagafjarðarsýslu og annarra er málið snertir. Deilt var um engjaskipti sem framkvæmd voru á milli jarðanna Hátúns, Miklagarðs, Glaumbæjar og Jaðars.
Sum bréfin hafa tvístrast og eru því einungis annað hvort bara fyrri hluti bréfs eða seinni hluti.
Einnig er talsvert af uppköstum að bréfum.
Steinunn Sigurjónsdóttir (1891-1981)
Ýmislegt útgefið efni, krónu seðill, barna litabók og annað efni t.d. Barnablaðið, tímaritið Landvörn, tímaritið Ægir, tímaritið Dýraverndarinn, bókaslitrur og auglýsingar.
Bókhaldsgögn Sigurðar, reikningar og nótur, mest frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Bréf sem Halli Jónassyni hafa borist á árunum 1929-1941. Bréfin eru af ýmsu tagi, svo sem jólakort, fermingarkveðja og bréfaskriftir á milli bræðra sinna.
Ýmis gögn Halls Jónassonar, bókin Ást og erfiði.
Ýmis reikningar sem tilheyra búrekstri í Hátúni á árunum 1935-1945.
Minnisbækur varðandi heimilisbókhald
Þrjár minnisbækur sem tengjast utanumhaldi á heimilisbókhaldi heimilisfólksins í Hátúni. T.d. yfirlit um hænsnabúskap, vinnu utan heimilis og fleira.
Vinnubækur frá grunnskólagöngu Bjarna Jónassonar. Bækurnar gefa góða innsýn í nám barna á þessum tíma en um er að ræða vinnubækur í ýmsum fögum. Bækurnar innihalda teikningar, stíla, skriftaræfingar og fleira.
Bækurnar eru ekki merktar með ártali né námsgrein en líklega inniheldur hver bók/mappa öll námsgögn það skólaárið.
Bjarni myndskreytti mörg blöð með fallegum og vel gerðum myndum.
Gögnin eru líklega mynduð einhvertíman á árabilinu 1937-1943.
Skrá yfir unna tíma fyrir Gunnar Gíslason, Glaumbæ.
Eitt tölublað af Barnablaðinu ( 8 árg. 8 tbl.), uppkast að bréfi til Sogurðar Helgasonar, og uppkast að bréfi varðandi áskrift að Barnablaðinu, einnig nokkur tóm umslög merkt Bjarna.
Námsgögn Gunnlaugs frá þeirri tíð er hann dvaldi í Laugarvatnsskóla. Um er að ræða stílabækur og reikningsbækur ásamt lausum blöðum af ýmsu tagi. Skjölin gefa ágætis innsýn í þau fræði sem lögð var áhersla á í skólanum á þeim tíma.
Reikningar og nótur frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Innleggsnótur og reikningar frá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Reikningar Sigurjóns Jónassonar