Útskrift úr Landaskiptabók Skagafjarðarsýslu
- IS HSk N00316-A-B-5
- Item
- 1942
Útskrift úr Landaskiptabók Skagafjarðarsýslu
Bréf til Maddýar frá Sigurði. Líklega er Maddý pennavinkona Sigurðar úr barnablaðinu Æskunni. Sigurður segir henni frá lífinu í Hátúni en þegar þetta er skrifað er faðir Sigurðar nýlega fallinn frá.
Uppkast að bréfi til Hrefnu Sigmundsdóttur
Uppkast að bréfi sem Sigurður skrifar til pennavinkonu sinnar Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður er að lýsa sjálfum sér sem og þeim aðstæðum sem hann býr við í Skagafirði.
Uppkast að bréfi til Boga Brynjólfssonar
Bréf frá Gunnlaugi til Boga Brynleifssonar fyrv. sýslumanns. Gunnlaugur er að ræða um tún sem hann hirðir fyrir Boga á Hofi?
Uppkast að bréfi frá Sigurjóni, skrifað að Syðra-Skörðugili. Bréfið er svarbréf við auglýsingu sem kom í útvarpinu þar sem óskað var eftir bústjóra á jörð skammt frá Reykjavík. Sigurjón segir stuttlega frá sjálfum sér og spyr jafnan frekari upplýsinga varðandi starfið.
Tækifæriskort frá Siggu frænku
Stök umslög sem ekki var hægt að para við bréf.
Stílabók með sögu um snigilinn og tófuna
Stutt saga sem Gunnlaugur hefur skrifað um tófuna og snigilinn. Sagan né stílabókin er dagsett og því óljóst hvenær hún er skrifuð, en mjög líklega tilheyrir þetta grunnskólagöngu Gunnlaugs.
Siðferðisvottorð fyrir Gunnlaug Jónasson
Siðferðisvottorð gefið út af Hallgrími Thorlacius vegna umsóknar Gunnlaugs í Laugarvatnsskóla.
Rannsókn á viðnámsþrótti íslenzks sauðfjár gegn mæðiveiki
Heftið er í stærðinni 15,5x24,9 cm, alls 28 síður, auk kápu.
Höfundur er Halldór Pálsson og útgefandi Atvinnudeild Háskólans.
Bók í stærðinni 13,2x 18,9 cm. Kápu og fremstu 80 síðurnar vantar á bókina og því óljóst um hvaða bók ræðir.
Bókin er 169 bls.
Bók í stærðinni 10,7x 7,2 cm. Kápu og titilblað vantar á bókina og því óljóst um hvaða bók ræðir.
ÁYfirskrift fremstu blaðsíðunnar er Dagverðareyrarmenn. Bókin er 112 bls.
Lyfseðill fyrir Gunnlaug Jónasson
Lyfseðill gefinn út af Torfa Bjarnasyni fyrir Gunnlaug.
Blað í stærðinni 38x25 cm, prentað á dagblaðapappír, alls ein opna.
Blað í stærðinni 38x25 cm, prentað á dagblaðapappír, alls ein opna.
Jólakort frá Sillu til Halls.
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur til Sigurðar, jólin 1942.
Jólakort frá Maju til Halls. Skrifað frá Reykjavík.
Hefti í stærðinni 15,3x22,5 sm. Heftið er alls 20 bls, auk kápu.
Höfundur er Holger Kjær.
Heftið er áritað af honum en utan á kápu stendur: "Lisa Hallgrima Thorlacius. Med venlig hilsen fra forfatteren."
Inngöngubréf í Laugarvatnsskóla
Inngöngubréf frá Laugarvatnsskóla til Gunnlaugs þar sem honum er veitt skólavist n.k. vetur gegn þeim skilyrðum sem upp eru talin í bréfinu. Í bréfinu er meðal annars tekið fram að nemendur skuli vera vel hraustir, hafi siðferðisvottorð frá málsmetandi manni og neyti hvorki áfengra drykkja né tóbaks á meðan þeir dveilja í skólanum.Einnig er talið upp hvað nemendur þurfi að hafa meðferðis í skólann og hvaða reglur gildi um dvöl þeirra í skólanum.
Fermingarkort frá Felix og Euphemíu
Kveðja á fermingardaginn frá Felix og Euphemíu.
Hefti í stærðinni 11,7x14,8 sm. Heftið er alls 16 bls.
Undirtitill er "Sumarleyfis og skemmtiferðir um helgar 1943.
Ferðafélag Íslands (1927-)
Félagsskírteini ungmennadeildar Slysavarnafélags Íslands
Félagsskírteini Gunnlaugs Jónassonar í Ungmennafélagsdeild Slysavarnafélags Íslands.
Einkunnir Halls frá árinu 1929. Einkunn er gefin fyrir lestur, skrift, réttritun, kristinfræði, landafræði, sögu , náttúrufræði, teikningu og reikning.
Einkunnir Halls frá árinu 1929. Einkunn er gefin fyrir lestur, skrift, réttritun, kristinfræði, landafræði, sögu , náttúrufræði og reikning.
Einkunnablað frá árinu 1936. Gefin er einkunn fyrir raddlestur og skrift.
Hefti í stærðinni 22,5x15,2 sm. Heftið er alls 40 bls., auk kápu sem hefur losnað frá.
Undirtitill er "Forysta Framsóknarfólksins og undanbrögð andstæðinga".
Útgefandi er Miðstjórn Framsóknarflokksins.
Bréf vegna engjaskipta á hjálegum Glaumbæjar
Bréf til Friðgeirs Björnssonar varðandi engjaskipti á hjálegum Glaumbæjar.
Sigurjón Jónasson bréfið fyrir hönd Steinunnar, móður sinnar.
Bæði uppkast og endanlegt bréf.
Bréf til sýslumannsins í Skagafjarðarsýslu
Bréf til sýslumannsins í Skagafjarðarsýslu vegna þess óréttlætis sem Steinunn telur sig hafa orðið fyrir við skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar.
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður skrifar pennavinkonu sinni og segir henni frá því hvað hefur á daga hans drifið frá því hann skrifaði henni síðast.
Bréf til Dóms- og kirkjumálaráðherra
Bréf til Dóms- og kirkjumálaráðherra vegna engjaskipta á Glaumbæjarhjálegum. Bréfið ritar Sigurjón Jónasson fyrir hönd Steinunnar, móður sinnar.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Hann sendir Sigurði nýárskveðjur og spyr hann spurninga varðandi útvarpstæki sem Sigurður hefur í Hátúni og hvernig það virkar.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Sendir Sigurði samúðarkveðjur vegna fráfalls föður hans.
Bréf frá Stínu til Steinunnar. Stína segir frá því að hún hafi hitt Dúdda son hennar Steinunnar á Akureyri, einnig segir hún frá því að illa gangi að lita skinn fyrir Gulla og hún sé að leita að efni í föt á Hall, báðir eru synir Steinunnar.
Bréf frá Steinunni Sigurjónsdóttur
Steinunn Hallsdóttir skrifar Gunnlaugi syni sínum bréf þar sem hann dvelur í Laugarvatnsskóla. Í bréfinu óskar hún Gunnlaugi góðs gengis í skólanum og vonar að hann verði alltaf sá stillti og prúði drengur sem hann nú er. Hún lætur hugann reika til æskuáranna og óskar þess að sjálf væri hún ung að setjast á skólabekk. Steinunn segir Gunnlaugi frá því að hún sé ekki vel frísk en vill þó ekki gera mikið úr því.
Bréf frá Steinunni Hallsdóttur
Bréf frá Steinunni Hallsdóttur á Akureyri. Hún segir Steinunni frá búferlaflutningum suður yfir heiðar og vonast til að þær hittist þar á Hótel Borg og geri sér glaðan dag saman.
Steinunn Hallsdóttir (1877-1946)
Bréf frá Siggu frænku til Halls, engin dagsetning.
Bréf frá óþekktum í Hafnarfirði
Bréf skrifað frá Hafnarfirði fyrir jólin 1937, fyrst og fremst verið að óska Sigurði gleðilegra jóla en undirskriftin er mjög ógreinileg.
Bréf til Sigurðar Jónassonar. Bréfritari óþekktur, líklega heitir hann þó Einar og ber fyrir kveðju til heimilisfólksins í Hátúni frá Rannveigu. Bréfritari segist jafnframt sjá á eftir því að hafa ekki kvatt Sigurð og fjölskyldu þegar hann fór. Óvíst er hvaðan bréfið er sent og engin dagsetning fylgir heldur.
Óþekktur bréfritari skrifar Halli og óskar honum til hamingju með skírnina á litla bróður hans, Bjarna Sigurvin. Bréfið hefur líklega komist í tæri við bleytu og er það því torskilið og hefur blekið máðst af á hluta.
Bréf til frú Steinunnar frá Mjólkursamlagi K.S.. Í bréfinu segir að vegna söluörðugleika hafi þeir ráðist í að senda til prufu 1 stk af 30% osti og andvirðið verði fært til frádráttar á mjólkurinnleggi Steinunnar.
Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga
Bréf frá Jóni Sigurðssyni alþingismanni. Jón skrifar Gunnlaugi varðandi leiðréttingar á fjártölum og segir bæði Gunnlaug og Steinunni móður hans fá leiðréttingar á uppeldisstyrk á lömbum sem voru sett á haustið 1941.
Bréf frá Jóni Norðmann Jónassyni
Jón Norðmann skrifar bréf og færir Steinunni og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur vegna fráfalls Jónasar Gunnarssonar, eiginmanns Steinunnar, síðastliðið sumar.
Jón Norðmann Jónasson (1898-1976)
Bréf frá Jónasi til móður sinnar, Jónas skrifar frá Reykjavík og segir frá stúlkum sem óska eftir að komast sem kaupakonur í sveit, óskar Jónas eftir því við móður sína að hún segi til um það hvort hún vilji taka þær í Hátún.
Jónas Jónasson (1919-1984)
Bréf frá Jónasi bróður Halls. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann býr og starfar. Þeir eru að skrifast á um bíl sem Jónas hefur skoðað fyrir Hall.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til móður sinnar. Skrifað frá Reykjavík þann 29.12.1940.
Jónas þakkar móður sinni fyrir bréfið og skrifar hann um mæðuveikina sem herjar á féð. Hann leggur til að Steinunn komi suður næsta sumar og fái sér gleraugu. Jónas talar einnig um að nóg sé af atvinnu í Reykjavík tengt bretunum.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur við störf, segir frá lífinu í Reykjavík og spyr frétta að heiman.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur frá Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Vestmannaeyjum. Hrefna segist nú vera flutt til Reykjavíkur og ætli sér að hætta að skrifast á við Sigurð, þetta sé því síðasta bréfið frá henni.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Hrefnu og mynd af heimili hennar.
Bréf frá Halli til móður sinnar. Bréfið skrifar Hallur frá Akureyri. Segir fréttir af daglegu lífi og lýsir einnig draumi sem hann dreymdi og hvernig hann túlkar drauminn.
Hallur Jónasson (1918-2011)
Hallur skrifar foreldrum sínum bréf frá Vestmannaeyjum.
Hallur Jónasson (1918-2011)
Bréf frá Halli Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Hallur skrifar frá Vestmannaeyjum þar sem hann dvelur. Segir Sigurði frá því að hann sé búinn að fá sér hjól en spyr jafnan frétta að heiman, bæði varðandi búskapinn og hvernig landskipti hefðu farið fram eftir að prófasturinn kom í heimsókn.
Hallur Jónasson skrifar móður sinni bréf frá Vestmannaeyjum, segir frá lífinu í Vestmannaeyjum þar sem hann starfar.
Hallur Jónasson (1918-2011)
Bréf frá Halli Jónassyni til Gunnlaugs bróður hans. Hallur segir frá lífinu á Akureyri og spyr frétta úr Skagafirðinum. Hann segir Gunnlaugi að vera í sambandi við sig varðandi kaup á byggingarefni því mögulega sé ódýrara að fá efni á Akureyri og hann geti aðstoðað með flutning.
Bréf frá Gunnlaugi bróður Halls. Gunnlaugur skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur á leið sinni heim frá Laugarvatni. Gunnlaugur stoppaði í Reykjavík til að vinna í nokkrar vikur áður en hann héldi norður í land.
Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni til móður sinnar. Gunnlaugur skrifar frá Laugarvatni þar sem hann dvelur og stundar nám.
Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)
Bréf frá Gunnlaugi til móður sinnar, skrifar um ferðalagið suður yfir heiðar, þar sem hann stundar nám á Laugarvatni. Biður fyrir kveðjum í bæinn og biður sérstaklega um að Sigurður bróðir hans dragi undan hestunum og slepppi þeim niðrá eyjar.
Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)
Bréf frá Gunnlaugi til móður sinnar, skrifar frá Laugarvatni þar sem hann dvelst í skóla. Hann skrifar um prófin sem hann er búinn að þreyta og segir mömmu sinni frá því að hann ætli að stoppa í eina viku í Reykjavík og vinna áður en hann kemur norður í Skagafjörð.
Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)
Bréf frá Gunnlaugi til móður sinnar, skrifað á Laugarvatni þar sem Gunnlaugur stundar nám.
Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)
Bréf frá Gunnlaugi til móður sinnar. Bréfið skrifar hann frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Það vantar fyrri hlutann af bréfinu og því er það ódagsett.
Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)
Bréf frá Gunnlaugi til móður sinnar, þar sem hann segir fréttir af því hvernig gangi í skólanum á Laugarvatni.
Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)
Gunnlaugur skrifar móður sinni bréf frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Hann segir móður sinni að hann sé að hugsa um að taka sér viku vinnu í Reykjavík áður en hann komi aftur í Skagafjörð.
Gunnlaugur Jónasson (1917-2009)
Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Bréfið skrifar Gunnlaugur frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Hann segir Sigurði frá lífinu á Laugarvatni og spyr frétta að heiman.
Gunnlaugur Jónasson skrifar Sigurði bróður sínum. Gunnlaugur skrifar frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Gunnlaugur er í bréfinu að biðja Sigurð fyrir því að senda sér 500 krónur á Laugarvatn. Spyr jafnframt frétta af mæðuveikinni sem nú geysar í Skagafirði.
Bréf frá Guðrúnu Þorbjörgu Sigurjónsdóttur
Bréf frá Guðrúnu Þorbjörgu Sigurjónsdóttur, systur Steinunnar. Þorbjörg skrifar frá Reykjavík og segir frá lífinu sunnan heiða.
Guðrún Þorbjörg Sigurjónsdóttir (1893-1974)
Slitin bók sem hefur verið sett í nýja kápu en er þó mjög illa farin, vantar síður aftast. Heitir Ást og erfiði, gefin út af Sögusafni Suðurlands.
Almanak í stærðinni 7,2x10,3 sm.
Útgefandi er Unga Ísland.
Heftið er alls 44 síður.
Afrit af byggingarskilmálum fyrir Hátún sem Jónas Gunnarsson undirritaði árið 1934 og kveður á um skyldur og réttindi ábúenda.