- IS HSk N00316-A
- Skjalaflokkar
- 1931-1946
Bréf til Steinunnar, bæði persónuleg bréfaskipti en einnig bréfaskipti er varða skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar og deilumál sem reis við þau skipti.
Bréf til Steinunnar, bæði persónuleg bréfaskipti en einnig bréfaskipti er varða skiptingu á engjum á hjálegum Glaumbæjar og deilumál sem reis við þau skipti.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur frá Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Vestmannaeyjum. Hrefna segist nú vera flutt til Reykjavíkur og ætli sér að hætta að skrifast á við Sigurð, þetta sé því síðasta bréfið frá henni.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Hann sendir Sigurði nýárskveðjur og spyr hann spurninga varðandi útvarpstæki sem Sigurður hefur í Hátúni og hvernig það virkar.
Uppkast að bréfi til Hrefnu Sigmundsdóttur
Uppkast að bréfi sem Sigurður skrifar til pennavinkonu sinnar Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður er að lýsa sjálfum sér sem og þeim aðstæðum sem hann býr við í Skagafirði.
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréf til Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum. Sigurður skrifar pennavinkonu sinni og segir henni frá því hvað hefur á daga hans drifið frá því hann skrifaði henni síðast.
Uppkast að bréfi til Boga Brynjólfssonar
Bréf frá Gunnlaugi til Boga Brynleifssonar fyrv. sýslumanns. Gunnlaugur er að ræða um tún sem hann hirðir fyrir Boga á Hofi?
Bréf frá Gunnlaugi bróður Halls. Gunnlaugur skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur á leið sinni heim frá Laugarvatni. Gunnlaugur stoppaði í Reykjavík til að vinna í nokkrar vikur áður en hann héldi norður í land.
Bréfasafn Sigurðar Jónassonar í Hátúni - bréfin eru flest skrifuð á unglingsárunum.
Bréf frá óþekktum í Hafnarfirði
Bréf skrifað frá Hafnarfirði fyrir jólin 1937, fyrst og fremst verið að óska Sigurði gleðilegra jóla en undirskriftin er mjög ógreinileg.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Valtý Hólmgeirssyni á Heiði á Langanesi. Sendir Sigurði samúðarkveðjur vegna fráfalls föður hans.
Bréf frá Halli Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Hallur skrifar frá Vestmannaeyjum þar sem hann dvelur. Segir Sigurði frá því að hann sé búinn að fá sér hjól en spyr jafnan frétta að heiman, bæði varðandi búskapinn og hvernig landskipti hefðu farið fram eftir að prófasturinn kom í heimsókn.
Inngöngubréf í Laugarvatnsskóla
Inngöngubréf frá Laugarvatnsskóla til Gunnlaugs þar sem honum er veitt skólavist n.k. vetur gegn þeim skilyrðum sem upp eru talin í bréfinu. Í bréfinu er meðal annars tekið fram að nemendur skuli vera vel hraustir, hafi siðferðisvottorð frá málsmetandi manni og neyti hvorki áfengra drykkja né tóbaks á meðan þeir dveilja í skólanum.Einnig er talið upp hvað nemendur þurfi að hafa meðferðis í skólann og hvaða reglur gildi um dvöl þeirra í skólanum.
Bréf frá Jóni Sigurðssyni alþingismanni. Jón skrifar Gunnlaugi varðandi leiðréttingar á fjártölum og segir bæði Gunnlaug og Steinunni móður hans fá leiðréttingar á uppeldisstyrk á lömbum sem voru sett á haustið 1941.
Fermingarkort frá Felix og Euphemíu
Kveðja á fermingardaginn frá Felix og Euphemíu.
Bréf frá Jónasi bróður Halls. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann býr og starfar. Þeir eru að skrifast á um bíl sem Jónas hefur skoðað fyrir Hall.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til móður sinnar. Skrifað frá Reykjavík þann 29.12.1940.
Jónas þakkar móður sinni fyrir bréfið og skrifar hann um mæðuveikina sem herjar á féð. Hann leggur til að Steinunn komi suður næsta sumar og fái sér gleraugu. Jónas talar einnig um að nóg sé af atvinnu í Reykjavík tengt bretunum.
Bréf varðandi eignarlönd Steinunnar og Jónasar
Bréf er varða eignarlönd Steinunnar og Jónasar, Hátún og Miklagarð. Ýmis bréf sem fara á milli eiganda og dóms- og kirkjumálaráðuneytis, kjörinna fulltrúa, Sýslumanns Skagafjarðarsýslu og annarra er málið snertir. Deilt var um engjaskipti sem framkvæmd voru á milli jarðanna Hátúns, Miklagarðs, Glaumbæjar og Jaðars.
Sum bréfin hafa tvístrast og eru því einungis annað hvort bara fyrri hluti bréfs eða seinni hluti.
Einnig er talsvert af uppköstum að bréfum.
Steinunn Sigurjónsdóttir (1891-1981)
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni.
Bréf frá Jónasi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Jónas skrifar frá Reykjavík þar sem hann dvelur við störf, segir frá lífinu í Reykjavík og spyr frétta að heiman.
Bréf sem tilheyra Gunnlaugi Jónassyni. Bréfin eru aðallega frá þeim tíma sem Gunnlaugur dvaldi á Laugarvatni við nám.
Bréf frá Steinunni Sigurjónsdóttur
Steinunn Hallsdóttir skrifar Gunnlaugi syni sínum bréf þar sem hann dvelur í Laugarvatnsskóla. Í bréfinu óskar hún Gunnlaugi góðs gengis í skólanum og vonar að hann verði alltaf sá stillti og prúði drengur sem hann nú er. Hún lætur hugann reika til æskuáranna og óskar þess að sjálf væri hún ung að setjast á skólabekk. Steinunn segir Gunnlaugi frá því að hún sé ekki vel frísk en vill þó ekki gera mikið úr því.
Bréf sem Halli Jónassyni hafa borist á árunum 1929-1941. Bréfin eru af ýmsu tagi, svo sem jólakort, fermingarkveðja og bréfaskriftir á milli bræðra sinna.
Bréf frá Siggu frænku til Halls, engin dagsetning.
Bréf frá Hrefnu Sigmundsdóttur
Bréfið er frá Hrefnu Sigmundsdóttur í Vestmannaeyjum en Hrefna og Sigurður skrifuðust á eftir að hafa séð auglýsingu um pennavini í Æskunni. Með bréfinu fylgir mynd af Hrefnu og mynd af heimili hennar.
Bréf frá Gunnlaugi Jónassyni til Sigurðar bróður síns. Bréfið skrifar Gunnlaugur frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Hann segir Sigurði frá lífinu á Laugarvatni og spyr frétta að heiman.
Gunnlaugur Jónasson skrifar Sigurði bróður sínum. Gunnlaugur skrifar frá Laugarvatni þar sem hann stundar nám. Gunnlaugur er í bréfinu að biðja Sigurð fyrir því að senda sér 500 krónur á Laugarvatn. Spyr jafnframt frétta af mæðuveikinni sem nú geysar í Skagafirði.
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur
Jólakort frá Sigrúnu Einarsdóttur til Sigurðar, jólin 1942.
Bréf til Maddýar frá Sigurði. Líklega er Maddý pennavinkona Sigurðar úr barnablaðinu Æskunni. Sigurður segir henni frá lífinu í Hátúni en þegar þetta er skrifað er faðir Sigurðar nýlega fallinn frá.
Bréf frá Halli Jónassyni til Gunnlaugs bróður hans. Hallur segir frá lífinu á Akureyri og spyr frétta úr Skagafirðinum. Hann segir Gunnlaugi að vera í sambandi við sig varðandi kaup á byggingarefni því mögulega sé ódýrara að fá efni á Akureyri og hann geti aðstoðað með flutning.
Óþekktur bréfritari skrifar Halli og óskar honum til hamingju með skírnina á litla bróður hans, Bjarna Sigurvin. Bréfið hefur líklega komist í tæri við bleytu og er það því torskilið og hefur blekið máðst af á hluta.
Uppkast að bréfi frá Sigurjóni, skrifað að Syðra-Skörðugili. Bréfið er svarbréf við auglýsingu sem kom í útvarpinu þar sem óskað var eftir bústjóra á jörð skammt frá Reykjavík. Sigurjón segir stuttlega frá sjálfum sér og spyr jafnan frekari upplýsinga varðandi starfið.