Hreppsgögn tengd Sauðárhreppi hinum forna og Sauðárkrókshrepp. Líklega eru gögnin komin úr fórum Jóns Þ. Björnssonar þó sum þeirra séu mynduð áður en hann tekur við starfi oddvita hreppsins.
Bréf og erindi sem hafa borist hreppsnefnd og oddvita. Bréfin eru að stórum hluta erindi vegna fátækrastyrks og erindi frá sýslumanni vegna mála sem tekin voru fyrir sýslunefndarfundi. Einnig talsvert af umsóknum um ræktunarland í landi Sauðár.
Ýmsar skrár og skýrslur sem varða Sauðárkrókshrepp. M.a. kjörskrár, skrá um niðurjöfnun sveitaútsvars, fjallskilaskýrslur, skrá um reikningsskil Skarðshrepps, skýrslur um atvinnuleysi og atvinnubótavinnu.