Sýnir 8 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Karlotta Jóhannsdóttir: Skjalasafn
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

5 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Umslag af bréfi til Þórarins Jónssonar

Umslag utan af bréfi til Þórarins Jónssonar frá Karlottu Jóhannsdóttur vegna umsóknar hennar um kennslustöðu við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Bréfið er stimplað í Kaupmannahöfn - Danmörku 4. ágúst 1937 og er með tveimur dönskum frímerkjum.

Umsögn frá Vefnaðarskóla Ingrid Skov

Umsögn frá Vefnaðarskóla Ingrid Skov í Odense um frammistöðu Karlottu Jóhannsdóttur við skólann en þar lagði hún stund á nám við vefnað og vefnaðarfræði. Ingrid gefur Karlottu sín bestu meðmæli. Bréfið er stimplað sem staðfest afrit af Sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn þann 27.07.1937.

Umsagnir frá skóla Margrete Petersen

Umsagnir frá skóla Margrete Petersen í Odense en þar nam Karlotta nám við handavinnu, skermasaum og leðurvinnu. Umsagnirnar skrifa Margrete Petersen og Karen Petersen 01.04.1937. Þær gefa Karlottu sín bestu meðmæli. Bréfið er stimplað sem staðfest afrit af Sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn þann 27.07.1937.

Bréf til Þórarins Jónssonar

Bréf frá Kristínu Símonardóttur á Kolkuósi til Þórarins Jónssonar hreppstjóra og skólaráðsformanns vegna umsóknar Karlottu Jóhannesardóttur um starf við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Einnig umslag utan af bréfi til Þórarins Jónssonar sem líklega hefur innihaldið umsókn Karlottu um starfið ásamt vitnisburði frá þeim dönsku skólum sem hún stundaði nám við.

Karlotta Jóhannsdóttir: Skjalasafn

  • IS HSk N00324
  • Safn
  • 1937

Gögn sem varða ráðningu Karlottu Jóhannsdóttur sem kennara við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Um er að ræða bréf varðandi námsárangur hennar og frammistöðu við tvo handavinnuskóla í Damörku og einni vinnustofu. Einnig fylgir
umsögn Kristínar Símonardóttur á Kolkuósi um störf Karlottu og hæfileika sem sent var til Þórarins Jónssonar á Hjaltabakka í Húnavatnssýslu en hann var skólaráðsformaður við Húsmæðraskólann á Blönduósi og tók við umsóknum varðandi ráðningu í kennslustöður við skólann.

Sigurjóna Karlotta Jóhannsdóttir (1909-2004)