- IS HSk N00331-A-A
- Skjalaflokkar
- 1862-1872
Sendibréf til Jóns Jónssonar á Hóli í Sæmundarhlíð
Sendibréf til Jóns Jónssonar á Hóli í Sæmundarhlíð
Metúsalem er að segja mági sínum, Jóni Jónssyni frá Hóli, frá því sem á daga hans drífur. Meðal þess er núningur við tengdafjölskyldu á Bakka, skipsstrand við Finnafjörð, rán á góssi og búskapurinn á Bakka.
Metúsalem Magnússon (1832-1905)
Fjögur sendibréf sem Þórarinn Magnússon sendir mági sínum, Jóni Jónssyni á Hóli í Sæmundarhlíð. Í bréfunum er mest fjallað um búskap, búrekstur og fjölskyldumál.
Þórarinn Magnússon (1819-1878)
Bréfið er ritað í Eyhildarholti 9. janúar 1863 og er stílað á hreppstjóra. Undir bréfið ritar A. Gíslason sem er að öllum líkendum Árni Gísli Gíslason frá Ketu í Hegranesi en hann fluttist til Suðurnesja upp úr 1860. Árni er að biðja Jón um að innheimta eða taka við fjármunum sem Jón á Kimbastöðum skuldaði honum því hann verði fyrir sunnan um veturinn.