Ættartal Gunnlaugar fræðimanns Jónssonar
- IS HSk N00346-H-15
- Eining
Stílabók með handskrifuðu ættartali Gunnlaugs fræðimanns Jónssonar. Bóndi á Skuggabjörgum. Fæddur 1788.
428 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum
Ættartal Gunnlaugar fræðimanns Jónssonar
Stílabók með handskrifuðu ættartali Gunnlaugs fræðimanns Jónssonar. Bóndi á Skuggabjörgum. Fæddur 1788.
Afsal Arngríms Sigurðssonar til Þóris og Guðlaugar. Með þessu bréfi afsalar hann til Þóris 1/3 hluta úr eignarjörð Litlu-Gröf í Staðarhreppi og 1/3 hluta úr eignarjörðinni Litlu-Gröf í Staðarhreppi til Guðlaugar.
Undir skjalið skrifa tveir vottar og sýslumaðurinn sem er Stefán Sigurðsson.
Alþingisrímur (1899-1901) / Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi
Þórir Arngrímsson bróðir Guðlaugar batt inn bækur. Hér hefur hann steypt saman annarsvegar Alþingisrímur (1899-1901) sem Valdimar Ásmundsson gaf út og hinsvegar Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi eftir Edward Knutzen, Theodór Árnason íslenskaði.
Alþingisrímur (1899-1901). Prentað í Ísafoldarverksmiðju, Reykjavík 1902. Þetta eru 14 rímur á 98 blaðsíðum.
Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi er 55 blaðsíður.Prentsmiðjan Gutenberg.
Ávíti á kjörstað sem Guðlaug Arngrímsdóttir skrifaði. Engin dagsetning skráð á blaðið.
Biblíusögur handa unglingum: íslenzkaðar og lagaðar eptir Biblíusögum
Biblíusögur handa unglingum: íslenzkaðar og lagaðar eptir Biblíusögum C.F. Balslevs af Ólafi Pálssyni
Bók merkt innan á kápu: Arngrímur Sigurðsson. Litlu-Gröf.
Bökun í heimahúsum eftir Helgu Sigurðardóttir. Þriðja útgáfa. Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja H.F.
78 tölusettar blaðsíður.
Bréf sem rekur lengd skurðar frá Miklavatni að Holtstjörn.
Bréf dagsett 20. júlí 1950, skrifað á Akureyri. Það kemur ekki fram nafn bréfritara en það er til Ásu frá pabba.
Bréf til Guðlaugar frá Winnipeg, Manitoba
Óundirritað bréf skrifað á íslensku. 1 blað, skrifað á það báðum megin.
Á umslagi kemur fram á stimpli að það er sent frá Winnipeg, Manitoba 1982.
Bréf til frænku frá Önnu Sveinsdóttur. Bréf er skrifað á Kirkjubæ 17.08.1931.
Bréf ritað á Siglufirði 18.12.1958. Kemur ekki fram hver er viðtakandi.
Bréf til Arngríms frá Birni í Seylu. Skrifað 10.12.1941.
Bréf frá Brynhild til Guðlaugar.
1 handskrifað tveggja blaðsíðna bréf frá Dodda. Móttakandi kemur ekki fram.
1 handskrifað bréf frá Elsu. Nafn viðtakanda ekki skrifað á bréfið.
Við afhendingu á bréfinu var miði innan í því. Hann fylgir hér með. Miðinn er til Guðlaugar.
Bréf frá Erlu í Vík til Þóris. Skrifað 16.02.1973.
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur. Það er skrifað á Akureyri 03.09.1920.
Bréfið er undirritað á tvenna vegu. Annarsvegar F.B Arngrímsson og hinsvegar F.B.A
Þetta gæti mögulega Frímann B. Arngrímsson.
Bréfritari: Guðlaug Arngrímsdóttir
1 handskrifað bréf frá Guðlaugu til móður sinnar SigríðarBenediktsdóttur. Ritað á Strandgötu 21, Akureyri. 1. apríl. Ekkert ártal kemur fram á bréfi.
Bréf til Guðlaugar Arngrímsdóttur frá Guðmundi Þór. Ritað 18.12.1984.
Bréfritari: Guðrún Jónasdóttir
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Guðrúnu Jónasdóttur. Dagsett 8.ágúst 1947
Bréfritari: Gunnlaugur Jónsson
Kemur ekki fram nafn móttakanda. Þetta er fjölskylduskrá yfir afkomendur Eiríks Pálssonar(Þorsteinssonar) frá Pottagerði í Skagafirði.
Ekkert ártal á bréfi.
Ljósrit af handskrifuðu bréfi til Professor W. Fiske. Skrifað á Hólum í Hjaltadal 18.apríl 1880
Bréfritari: Halldóra Þórarinsdóttir
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Halldóru Þórarinsdóttur. Skrifað í Reykjavík 8. september 1935.
Bréf til Guðlaugar frá Imbu. Skrifað á Kjartansstöðum.
Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002.
Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri.
Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.
Bréf frá Jennifer til Guðlaugar. Skrifað á íslensku.
3 handskrifaðar blaðsíður frá Jóhannesi Guðmundssyni, sent 18.10.1966
Nafn viðtakanda kemur ekki fram, en bréf er líklega til Arngríms Sigurðssonar
Bréfritari: Jóhannes Guðmundsson
Bréf til Arngríms Sigurðssonar frá Jóhannesi Guðmundssyni. 4 blaðsíður, ritað 11.08.1966.
4 bréf ljósrituð á tvö blöð. Þetta eru bréf til Þóris frá Jóni Sig. Innihald bréfana sýna deilur á milli þeirra vegna mjólk sem sótt er frá Þóri til Mjólkursamlagsins.
Bréf til Guðlaugar frá Karli Vernharðssyni.
Bréf ritað í Reykjavík 14/3 1962.
Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba.
Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966.
Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973
Bréf til Guðlaugar og Þóris frá Lilju og Gordon, skrifað á ensku í nóvember 1984.
Bréfritari: Magnús á Siglufirði
Bréf til vinar, kemur ekki fram nafn viðtakanda.
Bréf skrifað á Akureyri 02.02.1953. Kemur ekki fram hver er móttakandi bréfsins.
Bréf frá Ólafi Sveinssyni til frænku. Líklega til Sigríðar Benediktsdóttur. 2 handskrifaðar blaðsíður.
Ritað í Reykjavík 07.05.1948
Hvorki nafn sendanda né viðtakanda kemur fram. Ekkert ártal.
Lítið samanbrotið bréf merkt Frk. Guðlaug Arngrímsdóttir. Innheldur lítla rómantíska vísu (4 línur). Engin dagsetning né nafn á bréfritara.
Bréf til Þóris Arngrímssonar skrifað 14.10.1957.
Engin dagsetning né ártal á bréfi. Er líklega uppkast að bréfi.
Líklega bréf til heimilisfólksins á Litlu Gröf.
Bréfritari: Sesselja Jónsdóttir
Bréf ritað 18.12.1959. Frá Sesselju Jónsdóttir, Birkihvammi 17 Kópavogi til Guðlaugar Arngrímsdóttur.
Bréfritari: Sigríður Benediktsdóttir
Bréfið er líklega skrifað til Arngríms eiginmanns hennar. Inni í samanbrotnu bréfinu var hárlokkur í teygju. Bréfið er skrifað þegar hún var að fara að leggjast inn á Landakotsspítala í aðgerð. Hún nefnir m.a að ef hún skyldi ekki snúa aftur úr aðgerðinni að þá vilji hún vera jarðsett heima. Hún biður hann einnig um að reynast móður sinni Þorbjörgu Árnadóttur vel og ekki aðskilja hana og son þeirra Þóri ef komist er hjá því. Bréf skrifað 12/9, ekkert ártal. Þetta er líklega á milli 1923-1929.
Hárlokkurinn tókum við úr bréfinu og settum í sér öskju.
Bréf frá Sólveigu Arnason, 18 ára. Sent frá Akra, Norður Dakótu.
Það kemur ekki fram á bréfi á hvern það er stílað en það kemur fram að það er til frænku. Skrifað á íslensku. Skrifar frá daglegu lífi og aðeins um minningar frá Íslandi
Bréfritari: Sveinn Gunnarsson, Mælifellsá
Bréf frá Sveini Gunnarssyni á Mælifellsá til Þorbjargar Árnadóttur. Skrifað 10. apríl 1918. Það varðar 60 kr sem hún telur hann skulda sér.
Skrifað á bréf merkt: Sveinn Tryggvason ráðunautur. Bréfið er líklega til Arngríms Sigurðssonar.
Skrifa í Reykjavík 06.01.1946
Bréf frá Viola til Guðlaugar skrifað á ensku.
Á kápunni á stílabókinni stendur brunabótasjóður og innan í bók er að finna iðgjöld ýmissa bæja.
Í bókinni er einnig að finna mál ótengd brunaiðgjöldum. Útreikningar á Graskögglum, kálfamjólk, júgurfeiti og fleira sem tengist búskap.
Fram kemur á blaði staðsetning á vatnsbóli og húsum á jörðinni Litlu-Gröf. Byggingarefni og vegalengd frá Sauðárkróki og Varmahlíð.
Vegalengd frá vatnsbóli og fleira.
Skrifað er á fremstu blaðsíðu: Búfjárfræði. Kend af Birni Símonarsyni. Veturinn 1943-1944. Rituð upp af Þóri A. Arngrímssyni frá Litlu-Gröf Skagafirði.
Dactylismus Ecclesiasticus eður Fingra-Rím
Dactylismus Ecclesiasticus eður Fingra-Rím. Útgefið af Þ.Jónssyni; prentað hjá S.R. Möller. 1838. Óbreytt eftir útgáfunni frá 1739.
Sæluvika Skagfirðinga Sauðárkróki. Dagskrá 1956. Útgefandi: Félagsheimilið Bifröst.
Drápa um Örvar-Odd sett í tólf kvæði
Drápa um Örvar Odd. Sett í tólf kvæði af Benedikt Gröndal. Útgefendur Jón Árnason, Egill Jónsson, Einar Þórðarson, Benedikt Gröndal. Prentað í prentsmiðju Íslands 1851. Reykjavík.
Dularfulli maðurinn með krónu-gleraugun
Dularfulli maðurinn með krónu-gleraugun eftir Pétur Sigurðsson. 6 rit. Reykjavík, 1936, Ísafoldarprentsmiðja h.f.
Hefti merkt Arngr. Sigurðsson
Einkunnir Guðlaug Arngrímsdóttir
Einkunnir Guðlaugar Arngrímsdóttur vorið 1940.
Erfiljóð. Guðlaug Sigurðardóttir
Erfiljóð. Guðlaug Sigurðardóttir frá Geirmundsstöðum. Guðlaug var systir Arngríms Sigurðssonar.
Erfiljóð. Ingibjörg Jakobsdóttir
Ingibjörg Jakobsdóttir fædd 31. apríl 1887, látin 21. mars 1916. Samkvæmt íslendingabók var hún á Hreðarvatni, Hvammssókn, Mýr. 1890. Tökustúlka á Akureyri, Eyj. 1901. Var á Akureyri 1910.
Heftið er prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar.
Erfiljóð. Jóhannes G. V. Þorsteinsson
Erfiljóð Jóhannes Gísli Vilhelm Þorsteinsson. Fæddur 11. maí 1878, látinn 24. janúar 1920. Hann var kaupmaður á Akureyri.
Erfiljóð kveðið af Hjálmari Jónssyni kenndur við Bólu
Sólmyrkvi, ortur við fráfall systranna Kristínar, Sesselíuu og Hólmfríðar Benediktsdóttur frá Hólum. Kveðið af Hjálmari Jónssyni.
Þær létust allar 1837.
Kristín Benediktsdóttir fædd 30.04.1833, látin 10.10.1837
Hólmfríður Benediktsdóttir fædd 26.02.1824, látin 28.11.1837
Sesselja Benediktsdóttir fædd 25.07.1821, látin 20.10.1837
Erfiljóð. Sigurlaug Hallgrímsdóttir
Sigurlaug Hallgrímsdóttir. Fædd 22. september 1893, dáin 24. júní 1922. Hún lést við barnsburð. Ljóð eftir Jón Sigurðsson á Dagverðareyri.
Erfiljóð Stefán Jónsson. Verslunarstjóri á Sauðárkróki. Fæddur 27.10.1856, látinn 05.05.1910.
Fæðingar og skírnarvottorð Guðlaugar Seselíu
Fæðingar og skírnarvottorð Guðlaugar Seselíu Arngrímsdóttur.
Félagskort Kaupfélag Skagfirðinga
Félagskort Guðlaugar í Kaupfélagi Skagfirðinga. Gildir til 31.12.1990
Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815
Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815. Orktar af sjera Þórarni Jónssyni, fyrrum presti að Múla í þingeyjarsýslu. Útgefendur Jónas Jónsson. Vigfús Sigurðsson. Akureyri 1853. Prentaðar í prentsmiðju norður- og austur-umdæmisins af Helga Helgasyni.
Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum
Bók eftir George H.F Schrader, þýtt hefur Steingrímur Matthíasson. Önnur útgáfa, Akureyri.
Inn í bókinni er skrifað: Gjöf til Sigríðar Benediktsdóttur
frá L.e S.g.b?
Herópið er árlegt rit Hjálpræðishersins. Þetta er forsíðan af blaðinu sem kom út í júní 1917, nr 12, 22 árg. Aftan á henni eru tvær greinar. Annarsvegar "Endurminning" eftir kapt. Kristian Johnsen og hinsvegar "Kveðja frá Akureyri" eftir R. Nielsen, adjutant.
Hjónavígslubréf Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Gefið út í umboði Kristjáni 10.
Innsigli í bréfi hefur fests með tímanum á blaðsíðunni á móti.
Innlegg til Kaupfjelags Skagfirðinga
Viðskipti Arngríms Sigurðssonar við Kaupfjelag Skagfirðinga.
Merkt er ýmist við Freðkjöt eða Saltkjöt.
Blað 1 er dagsett 22.09.1932
Blað 2 er dagsett 03.10.1932
Blað 3 er dagsett 13.10.1932
Íslensk Ástaljóð. Reykjavík 1819. Kostnaðarmaður ST. Gunnarsson. Árni Pálsson valdi kvæðin.
Ekki kemur fram, um hvaða útgáfu bókar er að ræða.
Íslenzk stafsetningarorðbók. Björn Jónsson hefir samið að tilhlutun Blaðamannafélagsins. Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja, 1900.
Á fremstu blaðsíðu er bókin merkt með penna Tómasi Skúlasyni Ytra-Vatni og Arngrími Sigurðssyni
Já eða Nei - Vísnaþáttur. Stjórnandi Sveinn Ásgeirsson Hagfræðingur.
Braglistarmenn: Guðmundur Sigurðsson, bókari, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, Karl Ísfeld, rithöfundur og Steinn Steinarr, skáld. Útgefandi: Steindórsprent H.f.
61 blaðsíða auk auglýsinga
Kaup Sigurðar Jónssonar á Litlu-Gröf.
Kort af Reykjavík og Seltjarnarnesi
Kort af Reykjavík og Seltjarnarnes. Teiknað hefur Ágúst Böðvarsson eftir uppdráttum bæjarins og eigin mælingu 1947. Endurskoðað 1951. Prentað hjá Gæodætisk Institut i Kaupmannahöfn. Utan á korti er auglýsing frá Flugfélagi Íslands h.f og ferðaáætlun Strætisvagna Reykjavíkur.
Kristilegar sögur á dönsku. Fyrsta sagan á fremstu blaðsíðu heitir Löven og musen. 209 tölusettar blaðsíður.
Kristilegur barnalærdómur eptir Lúterskri kenningu.
Kristilegur barnalærdómur eptir Lúterskri kenningu. Höfundur: Helgi Hálfdánarson. Sjötta prentun. Kaupmannahöfn. Prentað hjá J. H. Schultz.
Kvæði eftir ýmsa höfunda. Skrifuð upp af Arngrími Sigurðssyni
Kvæði eftir ýmsa höfunda. Safnað og skrifað af Arngrími Sigurðssyni frá Litlu-Gröf veturna 1911-13
Leikskrá: Revýettan Rokk og Rómantík
Revyetta í tviemur þáttum. Höfundar Pétur og Páll. Leikstjóri Benedikt Árnason.
Leikskrá með söngtextum úr leiksýningunni. Í því er einnig að finna auglýsingar.
Meðmælabréf ritað af Rich. N. Braun fyrir Sigríði Benediktsdóttur. Skrifað á dönsku. Undirritað á Akureyri í maí 1918.
Kemur fram að hún hættir störfum vegna aðstæðna sem hafa skapast vegna fyrri heimsstyrjaldar.
2 blöð, annað er autt.
Minnilegur Fermingardagur. Foreldragjöf á fermingardegi barna.
Minnilegur Fermingardagur. Foreldragjöf á fermingardegi barna. Frá ábyrgðarmanni Þjóðólfs. Reykjavík. Prentaður í prentsmiðju Íslands 1851. Ljósbleik kápa. 64 tölusettar blaðsíður.
Minningar frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur
Bók merkt Guðlaugu Arngrímsdóttur. Í bókina hafa samnemendur hennar ritað kveðjur til hennar.
Minnisbók Sigríðar Benediktsdóttur
Á fremstu blaðsíðu er skrifað: Frá mömmu til Siggu 3. júní 1905.
Í bókinni eru handskrifaðar vísur og kveðjur frá vinum og vandamönnum, skrifað á mismunandi tímum.
Aftan á mynd er skrifað: Oct 20/88 Stefán Moores 13 ára og Laufey 90 ára
Government House Winnipeg
Aftan á mynd er skrifað: Oct 20/88 Stefán Moores 13 ára og Laufey 90 ára
Government House Winnipeg
Aftan á mynd stendur: Oct'88 ...óskýrt... for church directory. Gift í 35 ár.
Ættingjar af Vestur-íslenskum ættum.
Aftan á mynd er skrifað frá vinstri: Judy Flamank (dóttir mín), Doris dóttir hennar Svövu, Joyce, Janis (Johnson) dóttir hans George.
Þetta eru ættingjar af Vestur-íslenskum ættum.
Óþekktir. Mögulega mynd frá vestur-íslenskum ættingjum