Ekki vitað hvaða fólk þetta er. Aftan á mynd má sjá óljósa skrift þar stendur m.a "Dúnda litla segir ég er enn þá svo lítil". Svo er óljóst framhald á skrift. En lýkur á "vertu sæl mamma mín."
Mynd líklega tekin í Kanada. Aftan á mynd er skrifað: Þetta er mynd af fjallkonunni s.l. sumar, tekið þegar hún var að ganga upp á pallinn. Ég hjálpaði henni að fara í búninginn. Og tvær hirðmeyjar.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri Arngrímur Sigurðsson, Þórir, Guðlaug, Sigríður Benediktsdóttir og Magnús Blöndal fóstursonur þeirra.
Mynd úr safni Guðlaugar á Litlu-Gröf. Fólk í heyskap (að rifja). Þórir bróðir Gullu er þriðji f.v. og Guðlaug lengst t.h. Aftan á mynd er skrifað Guðlaug Arngrímsdóttir.
Mynd tekin fyrir utan skóla í Bandaríkjunum sem heitir Thora B. Gardiner Middle school og er í Oregon. Skólinn er nefndur í höfuðið á Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardiner) sem var systir Sigríðar Benediktsdóttur á Litlu-Gröf.
Mynd tekin fyrir utan skóla í Bandaríkjunum sem heitir Thora B. Gardiner school og er í Oregon. Skólinn er nefndur í höfuðið á Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardiner) sem var systir Sigríðar Benediktsdóttur á Litlu-Gröf.