Meðmælabréf ritað af Rich. N. Braun fyrir Sigríði Benediktsdóttur. Skrifað á dönsku. Undirritað á Akureyri í maí 1918. Kemur fram að hún hættir störfum vegna aðstæðna sem hafa skapast vegna fyrri heimsstyrjaldar. 2 blöð, annað er autt.
Hjónavígslubréf Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Gefið út í umboði Kristjáni 10. Innsigli í bréfi hefur fests með tímanum á blaðsíðunni á móti.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri Arngrímur Sigurðsson, Þórir, Guðlaug, Sigríður Benediktsdóttir og Magnús Blöndal fóstursonur þeirra.
Þóra Benediktsdóttir, f.1884. Hún var systir Sigríðar Benediktsdóttur Litlu-Gröf. Þóra fluttist til Vesturheims með föður þeirra systra Benedikt Jónssyni. Hún giftist Fred Gardiner og var þekkt sem Thora B. Gardiner. Lést í Oregon 1953.
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur. Það er skrifað á Akureyri 03.09.1920. Bréfið er undirritað á tvenna vegu. Annarsvegar F.B Arngrímsson og hinsvegar F.B.A Þetta gæti mögulega Frímann B. Arngrímsson.
Bréfið er líklega skrifað til Arngríms eiginmanns hennar. Inni í samanbrotnu bréfinu var hárlokkur í teygju. Bréfið er skrifað þegar hún var að fara að leggjast inn á Landakotsspítala í aðgerð. Hún nefnir m.a að ef hún skyldi ekki snúa aftur úr aðgerðinni að þá vilji hún vera jarðsett heima. Hún biður hann einnig um að reynast móður sinni Þorbjörgu Árnadóttur vel og ekki aðskilja hana og son þeirra Þóri ef komist er hjá því. Bréf skrifað 12/9, ekkert ártal. Þetta er líklega á milli 1923-1929. Hárlokkurinn tókum við úr bréfinu og settum í sér öskju.
Bók eftir George H.F Schrader, þýtt hefur Steingrímur Matthíasson. Önnur útgáfa, Akureyri. Inn í bókinni er skrifað: Gjöf til Sigríðar Benediktsdóttur frá L.e S.g.b?
Á fremstu blaðsíðu er skrifað: Frá mömmu til Siggu 3. júní 1905. Í bókinni eru handskrifaðar vísur og kveðjur frá vinum og vandamönnum, skrifað á mismunandi tímum.
Mynd tekin fyrir utan skóla í Bandaríkjunum sem heitir Thora B. Gardiner Middle school og er í Oregon. Skólinn er nefndur í höfuðið á Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardiner) sem var systir Sigríðar Benediktsdóttur á Litlu-Gröf.
Mynd límd í myndaalbúm. Aftan á mynd er skrifað: Edward maðurinn minn og Ned í Oregon. Mynd er límd í albúm og því er ekki hægt að sjá allan textann. Tillaga: Á mynd er eiginmaður og sonur Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardner). Hún bjó í Oregon. Hún var systir Sigríðar Benediktsdóttur.
George Johnson Vestur-Íslendingur. Frændi Guðlaugar og Þóris í gegnum móðurætt. Aftan á mynd er skrifað: Myndin er tekin 1967 þegar hann tók við embætti menntamálaráðherra í Manitoba. Myndin tekin í stjórnarráðshúsinu í Winnipeg.
Sigríður Benediktsdóttir Litla-Gröf og ? Tillaga: Hægra megin á mynd er dóttir Sigurðar Magnússonar læknis á Patreksfirði og konu hans Helgu Esther Jensen.
Þóra Benediksdóttir fyrir miðju. Hin börnin eru óþekkt. Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður sínum Benedikt Jónssyni. Móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir urðu eftir á Íslandi. Þóra var fædd 1884 á Syðri-Brekkum, d. 1953 í Vesturheimi.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri; Magnús Blöndal, Arngrímur Sigurðsson, Sigríður Benediktsdóttir, Þórir Arngrímsson. Fyrir framan stendur Guðlaug Arngrímsdóttir.
Fred Gardiner, eiginmaður Þóru Benediktsdóttur f. 1884 á Syðri-Brekku (Thora Gardiner). Hún flutti til Vesturheims ásamt föður sínum Jóni Benediktssyni. Hún var systir Sigríðar Benediktsdóttur.
Benedikt Jónsson- Benediktssonar- Hólum í Hjaltadal (situr) og sonur hans Björn Benediktsson (stendur). Benedikt Jónsson var afi Guðlaugar Arngrímsdóttur Litlu-Gröf.
Fjöldaframleitt póstkort sem var í myndaalbúmi. Á það skrifar Sigríður Benediktsdóttir til mömmu sinnar Þorbjargar Árnadóttur. 12/9 1912 Kort skrifað í Hamborg (Hafnarstræti 94) Akureyri
Mynd tekin fyrir utan skóla í Bandaríkjunum sem heitir Thora B. Gardiner school og er í Oregon. Skólinn er nefndur í höfuðið á Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardiner) sem var systir Sigríðar Benediktsdóttur á Litlu-Gröf.