Mynd þegar til í safni í nokkrum eintökum. Hvis 23, 27, og 1257. Frá vinstri Sigríður Benediktsdóttir húsfr. í Litlu-Gröf. Þorbjörg Árnadóttir húsfreyja á Geirmundarstöðum o.v.
Aftan á mynd er ritað: Gleðileg jól og nýjár. Arnþór og Jónas. Þeir eru synir Magnúsar Blöndal sem var fóstusonur Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur.
Skyldmenni Gullu á Litlu-Gröf í N-Ameríku. Aftan á mynd er skrifað: Tekið s.l. sumar þegar Joann og John komu heim - og voru hjá mér í 3 vikur á Gimli í sumar íbúð minni. Við höfum haft alveg dásalegt haust. Veður blíða á hverjum degi og gott veður enn - sama sem enginn snjót enn. Bið að heilsa öllum.
Aftan á mynd er skrifað frá vinstri: Judy Flamank (dóttir mín), Doris dóttir hennar Svövu, Joyce, Janis (Johnson) dóttir hans George. Þetta eru ættingjar af Vestur-íslenskum ættum.
Á fremstu blaðsíðu er skrifað: Frá mömmu til Siggu 3. júní 1905. Í bókinni eru handskrifaðar vísur og kveðjur frá vinum og vandamönnum, skrifað á mismunandi tímum.
Minnilegur Fermingardagur. Foreldragjöf á fermingardegi barna. Frá ábyrgðarmanni Þjóðólfs. Reykjavík. Prentaður í prentsmiðju Íslands 1851. Ljósbleik kápa. 64 tölusettar blaðsíður.
Meðmælabréf ritað af Rich. N. Braun fyrir Sigríði Benediktsdóttur. Skrifað á dönsku. Undirritað á Akureyri í maí 1918. Kemur fram að hún hættir störfum vegna aðstæðna sem hafa skapast vegna fyrri heimsstyrjaldar. 2 blöð, annað er autt.
Revyetta í tviemur þáttum. Höfundar Pétur og Páll. Leikstjóri Benedikt Árnason. Leikskrá með söngtextum úr leiksýningunni. Í því er einnig að finna auglýsingar.
Kort af Reykjavík og Seltjarnarnes. Teiknað hefur Ágúst Böðvarsson eftir uppdráttum bæjarins og eigin mælingu 1947. Endurskoðað 1951. Prentað hjá Gæodætisk Institut i Kaupmannahöfn. Utan á korti er auglýsing frá Flugfélagi Íslands h.f og ferðaáætlun Strætisvagna Reykjavíkur.
Já eða Nei - Vísnaþáttur. Stjórnandi Sveinn Ásgeirsson Hagfræðingur. Braglistarmenn: Guðmundur Sigurðsson, bókari, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, Karl Ísfeld, rithöfundur og Steinn Steinarr, skáld. Útgefandi: Steindórsprent H.f. 61 blaðsíða auk auglýsinga
Íslenzk stafsetningarorðbók. Björn Jónsson hefir samið að tilhlutun Blaðamannafélagsins. Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja, 1900. Á fremstu blaðsíðu er bókin merkt með penna Tómasi Skúlasyni Ytra-Vatni og Arngrími Sigurðssyni
Viðskipti Arngríms Sigurðssonar við Kaupfjelag Skagfirðinga. Merkt er ýmist við Freðkjöt eða Saltkjöt. Blað 1 er dagsett 22.09.1932 Blað 2 er dagsett 03.10.1932 Blað 3 er dagsett 13.10.1932
Hjónavígslubréf Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Gefið út í umboði Kristjáni 10. Innsigli í bréfi hefur fests með tímanum á blaðsíðunni á móti.
Herópið er árlegt rit Hjálpræðishersins. Þetta er forsíðan af blaðinu sem kom út í júní 1917, nr 12, 22 árg. Aftan á henni eru tvær greinar. Annarsvegar "Endurminning" eftir kapt. Kristian Johnsen og hinsvegar "Kveðja frá Akureyri" eftir R. Nielsen, adjutant.
Bók eftir George H.F Schrader, þýtt hefur Steingrímur Matthíasson. Önnur útgáfa, Akureyri. Inn í bókinni er skrifað: Gjöf til Sigríðar Benediktsdóttur frá L.e S.g.b?
Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815. Orktar af sjera Þórarni Jónssyni, fyrrum presti að Múla í þingeyjarsýslu. Útgefendur Jónas Jónsson. Vigfús Sigurðsson. Akureyri 1853. Prentaðar í prentsmiðju norður- og austur-umdæmisins af Helga Helgasyni.
Ingibjörg Jakobsdóttir fædd 31. apríl 1887, látin 21. mars 1916. Samkvæmt íslendingabók var hún á Hreðarvatni, Hvammssókn, Mýr. 1890. Tökustúlka á Akureyri, Eyj. 1901. Var á Akureyri 1910.
Drápa um Örvar Odd. Sett í tólf kvæði af Benedikt Gröndal. Útgefendur Jón Árnason, Egill Jónsson, Einar Þórðarson, Benedikt Gröndal. Prentað í prentsmiðju Íslands 1851. Reykjavík.
Skrifað er á fremstu blaðsíðu: Búfjárfræði. Kend af Birni Símonarsyni. Veturinn 1943-1944. Rituð upp af Þóri A. Arngrímssyni frá Litlu-Gröf Skagafirði.
Fram kemur á blaði staðsetning á vatnsbóli og húsum á jörðinni Litlu-Gröf. Byggingarefni og vegalengd frá Sauðárkróki og Varmahlíð. Vegalengd frá vatnsbóli og fleira.
Á kápunni á stílabókinni stendur brunabótasjóður og innan í bók er að finna iðgjöld ýmissa bæja. Í bókinni er einnig að finna mál ótengd brunaiðgjöldum. Útreikningar á Graskögglum, kálfamjólk, júgurfeiti og fleira sem tengist búskap.
Bréf frá Sólveigu Arnason, 18 ára. Sent frá Akra, Norður Dakótu. Það kemur ekki fram á bréfi á hvern það er stílað en það kemur fram að það er til frænku. Skrifað á íslensku. Skrifar frá daglegu lífi og aðeins um minningar frá Íslandi
Bréfið er líklega skrifað til Arngríms eiginmanns hennar. Inni í samanbrotnu bréfinu var hárlokkur í teygju. Bréfið er skrifað þegar hún var að fara að leggjast inn á Landakotsspítala í aðgerð. Hún nefnir m.a að ef hún skyldi ekki snúa aftur úr aðgerðinni að þá vilji hún vera jarðsett heima. Hún biður hann einnig um að reynast móður sinni Þorbjörgu Árnadóttur vel og ekki aðskilja hana og son þeirra Þóri ef komist er hjá því. Bréf skrifað 12/9, ekkert ártal. Þetta er líklega á milli 1923-1929. Hárlokkurinn tókum við úr bréfinu og settum í sér öskju.
Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba. Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966. Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973
4 bréf ljósrituð á tvö blöð. Þetta eru bréf til Þóris frá Jóni Sig. Innihald bréfana sýna deilur á milli þeirra vegna mjólk sem sótt er frá Þóri til Mjólkursamlagsins.