Mynd límd í myndaalbúm. Aftan á mynd er skrifað: Edward maðurinn minn og Ned í Oregon. Mynd er límd í albúm og því er ekki hægt að sjá allan textann. Tillaga: Á mynd er eiginmaður og sonur Þóru Benediktsdóttur (Thora B. Gardner). Hún bjó í Oregon. Hún var systir Sigríðar Benediktsdóttur.
George Johnson Vestur-Íslendingur. Frændi Guðlaugar og Þóris í gegnum móðurætt. Aftan á mynd er skrifað: Myndin er tekin 1967 þegar hann tók við embætti menntamálaráðherra í Manitoba. Myndin tekin í stjórnarráðshúsinu í Winnipeg.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (Um eða fyrir 1950). Sigurður Sigurðsson sýslumaður er við vegginn fjær t.h. fyrir miðju. Stefán Vagnsson fundarritari er innan við borðið.
George Johnson sem er af Vestur-íslenskum ættum. Frændi Guðlaugar og Þóris í gegnum móðurætt. Myndin er tekin 1967 þegar hann tók við embætti menntamálaráðherra í Manitoba. Myndin tekin í stjórnarráðshúsinu í Winnipeg
Sigríður Benediktsdóttir Litla-Gröf og ? Tillaga: Hægra megin á mynd er dóttir Sigurðar Magnússonar læknis á Patreksfirði og konu hans Helgu Esther Jensen.
Þóra Benediksdóttir fyrir miðju. Hin börnin eru óþekkt. Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður sínum Benedikt Jónssyni. Móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir urðu eftir á Íslandi. Þóra var fædd 1884 á Syðri-Brekkum, d. 1953 í Vesturheimi.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri; Magnús Blöndal, Arngrímur Sigurðsson, Sigríður Benediktsdóttir, Þórir Arngrímsson. Fyrir framan stendur Guðlaug Arngrímsdóttir.
Skyldmenni Gullu á Litlu-Gröf í N-Ameríku. Aftan á mynd er skrifað: Tekið s.l. sumar þegar Joann og John komu heim - og voru hjá mér í 3 vikur á Gimli í sumar íbúð minni. Við höfum haft alveg dásalegt haust. Veður blíða á hverjum degi og gott veður enn - sama sem enginn snjót enn. Bið að heilsa öllum.
Laufey og Svava tvíburasystur. Dætur Benedikt Jónssonar frá Hólum í Hjaltadal og seinni konu hans Kristínar Baldvinsdóttur. Þær bjuggu í Winnipeg. Ættingjar Gullu og Þóris á Litlu-Gröf