Kemur ekki fram nafn móttakanda. Þetta er fjölskylduskrá yfir afkomendur Eiríks Pálssonar(Þorsteinssonar) frá Pottagerði í Skagafirði. Ekkert ártal á bréfi.
4 bréf ljósrituð á tvö blöð. Þetta eru bréf til Þóris frá Jóni Sig. Innihald bréfana sýna deilur á milli þeirra vegna mjólk sem sótt er frá Þóri til Mjólkursamlagsins.
Ekki vitað hvaða fólk þetta er. Aftan á mynd má sjá óljósa skrift þar stendur m.a "Dúnda litla segir ég er enn þá svo lítil". Svo er óljóst framhald á skrift. En lýkur á "vertu sæl mamma mín."