Nýtt og gamalt v. Bænir á hátíðum og alvörustundum. Gutenberg 1919. Sigurbjörn Á. Gíslason. 29 tölusettar blaðsíður. Prentað með styrk úr smáritasjóða síra Jóns lærða frá Möðrufelli. Sjerprentun úr Bjarma 1918 og 1919. Tímaritið Bjarmi hefur verið gefið út frá árinu 1907.
Reikningsbók eftir Eirík Briem. Annar partur. Þriðja prentun. Reykjavík. Prentsmiðja Ísafoldar. 1900. 48 tölusettar blaðsíður. Á fremstu blaðsíðu er skrifað nafnið Jón Sigurðsson. Kennslubók í reikning
Rímur af Reimari og Fal enum sterka, kveðnar á Brokey, 1832. Það vantar fyrstu blaðsíðurnar því er ekki vitað hvaða útgáfa þetta er. Úr fórum heimilisfólksins á Litlu-Gröf.
Sálmabók til kirkju- og heimasöngs. Fyrsta prentun. Reykjavík 1945. Forlag Prestekknasjóðsins. Á fyrstu blaðsíðu er skrifað með penna Guðl. Arngrímsdóttir
Skólahandbók Gardiner Junior Highschool. Skólinn er í Oregon í Bandaríkjunum. Guðlaug fékk þetta sent frá ættingum sem búa þar. Skólinn nefndur eftir móðursystur hennar Þóru Benediktsdóttur Gardiner.
Skólaljóð. Kvæðasafn handa unglingum til að lesa og nema. Valið hefir og búið til prentunar Þórhallur Bjarnason. Þriðja prentun. Reykjavík. Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. 1909. Reynt hefur verið að lagfæra bókakápu. Efnisbútur hefur verið límdur yfir kjölinn.
Viðskiptabækur hjá innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga Sauðárkróks. Önnur þeirra er merkt Skarphéðni G Þórissyni og hin Arnþóri Blöndal. Þeir voru á Litlu-Gröf á sumrin.
Magnús Blöndal faðir Arnþórs hafði alist upp á Litlu-Gröf með Gullu og Þóri.