Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002. Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri. Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.
Biblíusögur handa unglingum: íslenzkaðar og lagaðar eptir Biblíusögum C.F. Balslevs af Ólafi Pálssyni Bók merkt innan á kápu: Arngrímur Sigurðsson. Litlu-Gröf.
Mynd úr safni Guðlaugar á Litlu-Gröf. Fólk í heyskap (að rifja). Þórir bróðir Gullu er þriðji f.v. og Guðlaug lengst t.h. Aftan á mynd er skrifað Guðlaug Arngrímsdóttir.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri Arngrímur Sigurðsson, Þórir, Guðlaug, Sigríður Benediktsdóttir og Magnús Blöndal fóstursonur þeirra.
Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba. Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966. Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri; Magnús Blöndal, Arngrímur Sigurðsson, Sigríður Benediktsdóttir, Þórir Arngrímsson. Fyrir framan stendur Guðlaug Arngrímsdóttir.