Viðskiptabækur hjá innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga Sauðárkróks. Önnur þeirra er merkt Skarphéðni G Þórissyni og hin Arnþóri Blöndal. Þeir voru á Litlu-Gröf á sumrin.
Magnús Blöndal faðir Arnþórs hafði alist upp á Litlu-Gröf með Gullu og Þóri.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri; Magnús Blöndal, Arngrímur Sigurðsson, Sigríður Benediktsdóttir, Þórir Arngrímsson. Fyrir framan stendur Guðlaug Arngrímsdóttir.
Í garðinum sunnan við bæinn í Litlu-Gröf um 1930. Frá vinstri Arngrímur Sigurðsson, Þórir, Guðlaug, Sigríður Benediktsdóttir og Magnús Blöndal fóstursonur þeirra.
Aftan á mynd stendur: Arngrímur og Sigríður. Gleðilegt sumar, kær kveðja frá mömmu og pabba. Jónas. Tillaga: Barnið er Jónas Blöndal, sonur Magnúsar Blöndal sem var fóstursonur Sigríðar Benediktsdóttur og Arngríms Sigurðssonar í Litlu-Gröf.
Aftan á mynd er ritað: Gleðileg jól og nýjár. Arnþór og Jónas. Þeir eru synir Magnúsar Blöndal sem var fóstusonur Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur.
2 bréf til Sigríðar Benediktsdóttur sem var fósturmóðir Magnúsar. Dagsett 02.01.1938 og 06.03.1941. 1 bréf dagsett 09.01.1938, nafn viðtakanda kemur ekki fram.