Sesselja Halldórsdóttir f. 1834, d. 1915 og barnabarn hennar Þóra Benediktsdóttir f.1884, d. 1953 í Vesturheimi. Ljósmyndin er tekin hjá Baldwin and Blondal í Winnipeg.
Þóra (seinna þekkt sem Thora B. Gardiner) fór til Vesturheims með föður sínum Benedikt Jónssyni frá Hólum í Hjaltadal en móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir voru eftir á Íslandi.
Sesselja Halldórsdóttir fluttist einnig til Vesturheims, hún var móðir Þorbjargar Árnadóttur
Þóra Benediksdóttir fyrir miðju. Hin börnin eru óþekkt. Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður sínum Benedikt Jónssyni. Móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir urðu eftir á Íslandi. Þóra var fædd 1884 á Syðri-Brekkum, d. 1953 í Vesturheimi.
2 bréf Sesselju Halldórsdóttur til dóttur (líklega til Þorbjargar Árnadóttur). Bréf bæði merkt Akra en það er í Norður Dakóta í Bandaríkjunum. Fyrra bréf dagsett 30. desember 1903 Seinna bréf dagsett 24. janúar 1906