Aftan á mynd stendur: Arngrímur og Sigríður. Gleðilegt sumar, kær kveðja frá mömmu og pabba. Jónas. Tillaga: Barnið er Jónas Blöndal, sonur Magnúsar Blöndal sem var fóstursonur Sigríðar Benediktsdóttur og Arngríms Sigurðssonar í Litlu-Gröf.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (Um eða fyrir 1950). Sigurður Sigurðsson sýslumaður er við vegginn fjær t.h. fyrir miðju. Stefán Vagnsson fundarritari er innan við borðið.
Guðlaug Arngrímsdóttir og frænka hennar Janis Johnson frá Kanda. Janis er af íslenskum ættum. Móðurafi Guðlaugar, Benedikt Jónsson flutti til Vesturheims 1887 ásamt móðursystur hennar Þóru og fleiri ættingjum.
Mynd þegar til í safni í nokkrum eintökum. Hvis 23, 27, og 1257. Frá vinstri Sigríður Benediktsdóttir húsfr. í Litlu-Gröf. Þorbjörg Árnadóttir húsfreyja á Geirmundarstöðum o.v.
Aftan á mynd er ritað: Gleðileg jól og nýjár. Arnþór og Jónas. Þeir eru synir Magnúsar Blöndal sem var fóstusonur Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur.
Skyldmenni Gullu á Litlu-Gröf í N-Ameríku. Aftan á mynd er skrifað: Tekið s.l. sumar þegar Joann og John komu heim - og voru hjá mér í 3 vikur á Gimli í sumar íbúð minni. Við höfum haft alveg dásalegt haust. Veður blíða á hverjum degi og gott veður enn - sama sem enginn snjót enn. Bið að heilsa öllum.
Aftan á mynd er skrifað frá vinstri: Judy Flamank (dóttir mín), Doris dóttir hennar Svövu, Joyce, Janis (Johnson) dóttir hans George. Þetta eru ættingjar af Vestur-íslenskum ættum.
Á fremstu blaðsíðu er skrifað: Frá mömmu til Siggu 3. júní 1905. Í bókinni eru handskrifaðar vísur og kveðjur frá vinum og vandamönnum, skrifað á mismunandi tímum.
Minnilegur Fermingardagur. Foreldragjöf á fermingardegi barna. Frá ábyrgðarmanni Þjóðólfs. Reykjavík. Prentaður í prentsmiðju Íslands 1851. Ljósbleik kápa. 64 tölusettar blaðsíður.
Meðmælabréf ritað af Rich. N. Braun fyrir Sigríði Benediktsdóttur. Skrifað á dönsku. Undirritað á Akureyri í maí 1918. Kemur fram að hún hættir störfum vegna aðstæðna sem hafa skapast vegna fyrri heimsstyrjaldar. 2 blöð, annað er autt.
Revyetta í tviemur þáttum. Höfundar Pétur og Páll. Leikstjóri Benedikt Árnason. Leikskrá með söngtextum úr leiksýningunni. Í því er einnig að finna auglýsingar.
Kort af Reykjavík og Seltjarnarnes. Teiknað hefur Ágúst Böðvarsson eftir uppdráttum bæjarins og eigin mælingu 1947. Endurskoðað 1951. Prentað hjá Gæodætisk Institut i Kaupmannahöfn. Utan á korti er auglýsing frá Flugfélagi Íslands h.f og ferðaáætlun Strætisvagna Reykjavíkur.