- IS HSk N00346-E-3
- File
Kjörskrá Staðarhrepps. Á öftustu blaðsíðu er undirskrift oddvitans í Staðarhreppi, Þorsteins Ásgrímssonar.
428 results with digital objects Show results with digital objects
Kjörskrá Staðarhrepps. Á öftustu blaðsíðu er undirskrift oddvitans í Staðarhreppi, Þorsteins Ásgrímssonar.
Kaup Sigurðar Jónssonar á Litlu-Gröf.
Jóla og nýárskort. Hluti þeirra erlendis frá. Sum kortin eru lengri og innihalda ekki einungis jólakveðjur.
Já eða Nei - Vísnaþáttur. Stjórnandi Sveinn Ásgeirsson Hagfræðingur.
Braglistarmenn: Guðmundur Sigurðsson, bókari, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, Karl Ísfeld, rithöfundur og Steinn Steinarr, skáld. Útgefandi: Steindórsprent H.f.
61 blaðsíða auk auglýsinga
Íslenzk stafsetningarorðbók. Björn Jónsson hefir samið að tilhlutun Blaðamannafélagsins. Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja, 1900.
Á fremstu blaðsíðu er bókin merkt með penna Tómasi Skúlasyni Ytra-Vatni og Arngrími Sigurðssyni
Íslensk Ástaljóð. Reykjavík 1819. Kostnaðarmaður ST. Gunnarsson. Árni Pálsson valdi kvæðin.
Ekki kemur fram, um hvaða útgáfu bókar er að ræða.
Innleggsnótur Kaupfélag Skagfirðinga
Innleggsnótur Kaupfélag Skagfirðinga 1966
Innlegg til Kaupfjelags Skagfirðinga
Viðskipti Arngríms Sigurðssonar við Kaupfjelag Skagfirðinga.
Merkt er ýmist við Freðkjöt eða Saltkjöt.
Blað 1 er dagsett 22.09.1932
Blað 2 er dagsett 03.10.1932
Blað 3 er dagsett 13.10.1932
Gögn frá Staðarhreppi og einn útdráttur frá Norður-Múlasýslu. 1898-1983
3 hlutabréf merkt Arngrími Sigurðssyni.
1914 - 25 kr.
1917 - 50 kr.
1917 - 25 kr.
1 hlutabréf merkt Sigríði Benediktsdóttir.
1914 - 25 kr.
Hlutabréf og jöfnunarhlutabréf í Suðurgötu 3 hf. Eigendur bréfa eru Guðlaug Arngrímsdóttir og Arngrímur Sigurðsson
Hjónavígslubréf Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Gefið út í umboði Kristjáni 10.
Innsigli í bréfi hefur fests með tímanum á blaðsíðunni á móti.
Herópið er árlegt rit Hjálpræðishersins. Þetta er forsíðan af blaðinu sem kom út í júní 1917, nr 12, 22 árg. Aftan á henni eru tvær greinar. Annarsvegar "Endurminning" eftir kapt. Kristian Johnsen og hinsvegar "Kveðja frá Akureyri" eftir R. Nielsen, adjutant.
Söngtexti eftir "Húnverskan bónda" við lagið Fanna skautar faldi háum.
Prentsmiðjan Acta.
Skrifað með penna efst á blað Arngr. Sigurðsson.
Aftan á blað er búið að skrifa með penna nöfn og tölur.
Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum
Bók eftir George H.F Schrader, þýtt hefur Steingrímur Matthíasson. Önnur útgáfa, Akureyri.
Inn í bókinni er skrifað: Gjöf til Sigríðar Benediktsdóttur
frá L.e S.g.b?
Myndir af munstrum til handavinnu. M.a úr Nordisk mönster tidende
Guðlaug Arngrímsdóttir: Skjalasafn
Skjalasafn úr dánarbúi Guðlaugar Arngrímsdóttur. Inniheldur m.a ljósmyndir, bréf, jólakort, skeyti, afmæliskort, minningarkort, myndbandsspólur, skjöl tengd félagsmálum, námsgögn, skjöl tengd Litlu-Gröf, landakort, bækur, vottorð, ljóð
Guðlaug Arngrímsdóttir (1929-2017)
Fyrirlestur og uppkast. Fyrirlesturinn tengist fólkinu og sveitinni í kringum Litlu-Gröf. Án dagsetningar.
Frímerki og umslög sem fylgdu með skjalasafninu.
Fréttabréf. Félagið Svæðameðferð.
Fréttabréf félagsins Svæðameðferð. Félag er varðar heilbrigði og náttúrulækningar.
Úr fórum Guðlaugar.
Framkvæmdalán Vindheimamela s.f.
Framkvæmdalán Vindheimamela s.f., Skagafjarðarsýslu 1971. Undirritað fyrir hönd Hestamannafélagsins Léttfeta, og f.h. Hestamannafélagsins Stíganda
Blað til Æfifélaga í Framfarafélagi Skagfirðinga. Listi yfir félaga ásamt yfirlit yfir eignir félagsins 01.01.1937.
Fræðslurit Búnaðarfélags Íslands. 5. rit.
Fræðslurit Búnaðarfélag Íslands. 5. rit. 1954. Val líflamba. 12 tölusettar blaðsíður.
Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815
Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815. Orktar af sjera Þórarni Jónssyni, fyrrum presti að Múla í þingeyjarsýslu. Útgefendur Jónas Jónsson. Vigfús Sigurðsson. Akureyri 1853. Prentaðar í prentsmiðju norður- og austur-umdæmisins af Helga Helgasyni.
Félagskort Kaupfélag Skagfirðinga
Félagskort Guðlaugar í Kaupfélagi Skagfirðinga. Gildir til 31.12.1990
Félagaskírteini. Búnaðarfélag Íslands.
Félagaskírteini Þóris Arngrímssonar í Búnaðafélagi Íslands,
Fæðingar og skírnarvottorð Guðlaugar Seselíu
Fæðingar og skírnarvottorð Guðlaugar Seselíu Arngrímsdóttur.
Erfiljóð Stefán Jónsson. Verslunarstjóri á Sauðárkróki. Fæddur 27.10.1856, látinn 05.05.1910.
Erfiljóð. Sigurlaug Hallgrímsdóttir
Sigurlaug Hallgrímsdóttir. Fædd 22. september 1893, dáin 24. júní 1922. Hún lést við barnsburð. Ljóð eftir Jón Sigurðsson á Dagverðareyri.
Erfiljóð kveðið af Hjálmari Jónssyni kenndur við Bólu
Sólmyrkvi, ortur við fráfall systranna Kristínar, Sesselíuu og Hólmfríðar Benediktsdóttur frá Hólum. Kveðið af Hjálmari Jónssyni.
Þær létust allar 1837.
Kristín Benediktsdóttir fædd 30.04.1833, látin 10.10.1837
Hólmfríður Benediktsdóttir fædd 26.02.1824, látin 28.11.1837
Sesselja Benediktsdóttir fædd 25.07.1821, látin 20.10.1837
Erfiljóð. Jóhannes G. V. Þorsteinsson
Erfiljóð Jóhannes Gísli Vilhelm Þorsteinsson. Fæddur 11. maí 1878, látinn 24. janúar 1920. Hann var kaupmaður á Akureyri.
Erfiljóð. Ingibjörg Jakobsdóttir
Ingibjörg Jakobsdóttir fædd 31. apríl 1887, látin 21. mars 1916. Samkvæmt íslendingabók var hún á Hreðarvatni, Hvammssókn, Mýr. 1890. Tökustúlka á Akureyri, Eyj. 1901. Var á Akureyri 1910.
Heftið er prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar.
Erfiljóð. Guðlaug Sigurðardóttir
Erfiljóð. Guðlaug Sigurðardóttir frá Geirmundsstöðum. Guðlaug var systir Arngríms Sigurðssonar.
Einkunnir Guðlaug Arngrímsdóttir
Einkunnir Guðlaugar Arngrímsdóttur vorið 1940.
Dularfulli maðurinn með krónu-gleraugun
Dularfulli maðurinn með krónu-gleraugun eftir Pétur Sigurðsson. 6 rit. Reykjavík, 1936, Ísafoldarprentsmiðja h.f.
Hefti merkt Arngr. Sigurðsson
Drápa um Örvar-Odd sett í tólf kvæði
Drápa um Örvar Odd. Sett í tólf kvæði af Benedikt Gröndal. Útgefendur Jón Árnason, Egill Jónsson, Einar Þórðarson, Benedikt Gröndal. Prentað í prentsmiðju Íslands 1851. Reykjavík.
Sæluvika Skagfirðinga Sauðárkróki. Dagskrá 1956. Útgefandi: Félagsheimilið Bifröst.
Dactylismus Ecclesiasticus eður Fingra-Rím
Dactylismus Ecclesiasticus eður Fingra-Rím. Útgefið af Þ.Jónssyni; prentað hjá S.R. Möller. 1838. Óbreytt eftir útgáfunni frá 1739.
Skrifað er á fremstu blaðsíðu: Búfjárfræði. Kend af Birni Símonarsyni. Veturinn 1943-1944. Rituð upp af Þóri A. Arngrímssyni frá Litlu-Gröf Skagafirði.
Fram kemur á blaði staðsetning á vatnsbóli og húsum á jörðinni Litlu-Gröf. Byggingarefni og vegalengd frá Sauðárkróki og Varmahlíð.
Vegalengd frá vatnsbóli og fleira.
Á kápunni á stílabókinni stendur brunabótasjóður og innan í bók er að finna iðgjöld ýmissa bæja.
Í bókinni er einnig að finna mál ótengd brunaiðgjöldum. Útreikningar á Graskögglum, kálfamjólk, júgurfeiti og fleira sem tengist búskap.
Bréfslitrur til Sigríðar Benediktsdóttir
7 blöð af bréfslitrum úr ólíkum áttum til Sigríðar Benediktsdóttur.
Ártal er á tveimur blöðum. Annað er 1915 en hitt 1943.
Bréf frá Viola til Guðlaugar skrifað á ensku.
Bréfritari: Þorbjörg Árnadóttir
Handskrifuð bréf frá Þorbjörgu Árnadóttur til dóttur hennar Sigríðar Benediktsdóttur.
Bréfritari: Þóra Benediktsdóttir
Bréf frá Þóru Benediktsdóttur til móður sinnar Þorbjörgar Árnadóttur og systur Sigríðar Benediktsdóttur.
Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður þeirra Benedikt Jónssyni.
Þóra er móðursystir Guðlaugar.
Skrifað á bréf merkt: Sveinn Tryggvason ráðunautur. Bréfið er líklega til Arngríms Sigurðssonar.
Skrifa í Reykjavík 06.01.1946
Bréfritari: Sveinn Gunnarsson, Mælifellsá
Bréf frá Sveini Gunnarssyni á Mælifellsá til Þorbjargar Árnadóttur. Skrifað 10. apríl 1918. Það varðar 60 kr sem hún telur hann skulda sér.
9 bréf skrifuð á íslensku og 2 umslög frá Svövu í Riverton Manitoba til Guðlaugar og Þóris bróður hennar.
Bréf 1: 19. apríl, 1967. Tvær tölusettar blaðsíður.
Bréf 2: 15. desember, 1968. Samanbrotið bréf, skrifað á allar hliðar.
Bréf 3: 16. júlí, 1977. Samanbrotið bréf, skrifað á allar hliðar.
Bréf 4: 1.apríl, 1978. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar.
Bréf 5: 31. desember, 1978. Samanbrotið bréf, skrifað á allar hliðar.
Bréf 6: 17. júlí, 1979. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar.
Bréf 7. 8 desember, 1981. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar.
Bréf 8. 2. maí, 1981. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar
Bréf 9. Dagsetning ekki skýr en það stendur febrúar 198. Líklegt að það sé 1981 þar sem þetta er sama bréfsefni og er á bréfinu frá 2. maí 1981
2 umslög með kanadískum frímerkjum.
Bréfritari: Steingrímur Steinþórsson, búnaðarmálastjóri í Reykjavík
Bréf til Arngríms Sigurðssonar þegar hann var oddviti í Staðarhreppi. Bréf snýst um athugasemdir Arngríms um áveitufélagið Freyr.
Bréf frá Sólveigu Arnason, 18 ára. Sent frá Akra, Norður Dakótu.
Það kemur ekki fram á bréfi á hvern það er stílað en það kemur fram að það er til frænku. Skrifað á íslensku. Skrifar frá daglegu lífi og aðeins um minningar frá Íslandi
Bréfritari: Sigríður Benediktsdóttir
Bréfið er líklega skrifað til Arngríms eiginmanns hennar. Inni í samanbrotnu bréfinu var hárlokkur í teygju. Bréfið er skrifað þegar hún var að fara að leggjast inn á Landakotsspítala í aðgerð. Hún nefnir m.a að ef hún skyldi ekki snúa aftur úr aðgerðinni að þá vilji hún vera jarðsett heima. Hún biður hann einnig um að reynast móður sinni Þorbjörgu Árnadóttur vel og ekki aðskilja hana og son þeirra Þóri ef komist er hjá því. Bréf skrifað 12/9, ekkert ártal. Þetta er líklega á milli 1923-1929.
Hárlokkurinn tókum við úr bréfinu og settum í sér öskju.
Bréfritari: Sigríður Benediktsdóttir
Bréf Sigríðar til Þóris sonar síns. Það er ekki ártal á þeim öllum.
Bréfritari: Sesselja Jónsdóttir
Bréf ritað 18.12.1959. Frá Sesselju Jónsdóttir, Birkihvammi 17 Kópavogi til Guðlaugar Arngrímsdóttur.
Bréfritari: Sesselja Halldórsdóttir
2 bréf Sesselju Halldórsdóttur til dóttur (líklega til Þorbjargar Árnadóttur).
Bréf bæði merkt Akra en það er í Norður Dakóta í Bandaríkjunum.
Fyrra bréf dagsett 30. desember 1903
Seinna bréf dagsett 24. janúar 1906
Líklega bréf til heimilisfólksins á Litlu Gröf.
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur. Rituð á Akureyri 04.02.1917 og 27.08.1917
Lítið samanbrotið bréf merkt Frk. Guðlaug Arngrímsdóttir. Innheldur lítla rómantíska vísu (4 línur). Engin dagsetning né nafn á bréfritara.
Bréf til Þóris Arngrímssonar skrifað 14.10.1957.
Engin dagsetning né ártal á bréfi. Er líklega uppkast að bréfi.
Hvorki nafn sendanda né viðtakanda kemur fram. Ekkert ártal.
Bréf frá Ólafi Sveinssyni til frænku. Líklega til Sigríðar Benediktsdóttur. 2 handskrifaðar blaðsíður.
Ritað í Reykjavík 07.05.1948
Bréf skrifað á Akureyri 02.02.1953. Kemur ekki fram hver er móttakandi bréfsins.
Bréfritari Margrét Símonardóttir
Handskrifuð bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Margréti Símonardóttur.
Bréf 1: Ritað 13.04.1933, bréfritari skrifar undir M.Símonardóttir
Bréf 2: Ritað 26.02.1943, bréfritari skrifar undir M.S
2 bréf til Sigríðar Benediktsdóttur sem var fósturmóðir Magnúsar. Dagsett 02.01.1938 og 06.03.1941.
1 bréf dagsett 09.01.1938, nafn viðtakanda kemur ekki fram.
Bréfritari: Magnús á Siglufirði
Bréf til vinar, kemur ekki fram nafn viðtakanda.
Bréf til Guðlaugar og Þóris frá Lilju og Gordon, skrifað á ensku í nóvember 1984.
Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba.
Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966.
Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973
Bréfritari: Kristín Símonardóttir
2 bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Kristínu Símonardóttur í Kolkuósi. Annað bréfið er skrifað 18/12 1916 og hitt er skrifað 15/12 1934.
Bréf til Guðlaugar frá Karli Vernharðssyni.
Bréf ritað í Reykjavík 14/3 1962.
4 bréf ljósrituð á tvö blöð. Þetta eru bréf til Þóris frá Jóni Sig. Innihald bréfana sýna deilur á milli þeirra vegna mjólk sem sótt er frá Þóri til Mjólkursamlagsins.
Bréfritari: Jóhannes Guðmundsson
Bréf til Arngríms Sigurðssonar frá Jóhannesi Guðmundssyni. 4 blaðsíður, ritað 11.08.1966.
3 handskrifaðar blaðsíður frá Jóhannesi Guðmundssyni, sent 18.10.1966
Nafn viðtakanda kemur ekki fram, en bréf er líklega til Arngríms Sigurðssonar
Bréf frá Jennifer til Guðlaugar. Skrifað á íslensku.
Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002.
Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri.
Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.
2 bréf frá Ingunni Árnadóttir.
Fyrra bréfið er skrifað í Dúki 22. febrúar 1927 og er til Þorbjargar Árnadóttur systur hennar.
Seinna bréfið er skrifað í Dúki 26. mars 1929 og er til "litla frænda".
2 handskrifuð bréf frá Ingu til Guðlaugar. Skrifuð 05.09.1973 og 10.12.1974
Bréf til Guðlaugar frá Imbu. Skrifað á Kjartansstöðum.
Bréfritari: Hartmann Ágrímsson
Bréf til vinar, nafn viðtakanda kemur ekki fram. Annað bréfið er skrifað 10.02.1947 en hitt 8.6.1947.
Bréfritari: Halldóra Þórarinsdóttir
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Halldóru Þórarinsdóttur. Skrifað í Reykjavík 8. september 1935.
Ljósrit af handskrifuðu bréfi til Professor W. Fiske. Skrifað á Hólum í Hjaltadal 18.apríl 1880
Bréfritari: Gunnlaugur Jónsson
Kemur ekki fram nafn móttakanda. Þetta er fjölskylduskrá yfir afkomendur Eiríks Pálssonar(Þorsteinssonar) frá Pottagerði í Skagafirði.
Ekkert ártal á bréfi.
Bréfritari: Guðrún Jónasdóttir
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Guðrúnu Jónasdóttur. Dagsett 8.ágúst 1947