Kemur ekki fram nafn móttakanda. Þetta er fjölskylduskrá yfir afkomendur Eiríks Pálssonar(Þorsteinssonar) frá Pottagerði í Skagafirði. Ekkert ártal á bréfi.
4 bréf ljósrituð á tvö blöð. Þetta eru bréf til Þóris frá Jóni Sig. Innihald bréfana sýna deilur á milli þeirra vegna mjólk sem sótt er frá Þóri til Mjólkursamlagsins.
Bréf frá Arngrími Sigurðssyni til Sigríðar Benediktsdóttur. Dagsett 09/10/1927 og 23/02/1934 en þriðja bréfið er dagsett 7. febrúar en ekki með ártali,
Bréf til Guðlaugar frá Fríðu vinkonu hennar. Bréf 1: Reykjavík, 7. janúar 1951 Bréf 2: Reykjavík, 10. janúar 1956 Bréf 3: Reykjavík, 25. ágúst 1960 Bréf 4: Reykjavík, 5. október 1965 Bréf 5: Reykjavík, 9. desember 1968
2 bréf Sesselju Halldórsdóttur til dóttur (líklega til Þorbjargar Árnadóttur). Bréf bæði merkt Akra en það er í Norður Dakóta í Bandaríkjunum. Fyrra bréf dagsett 30. desember 1903 Seinna bréf dagsett 24. janúar 1906
2 bréf frá Guðlaugu Guðjónsdóttur til Guðlaugar Arngrímsdóttur. Fyrra bréf er ritað frá íþróttarhúsi Akureyrar 09.02.1954 og hið seinna er ritað á Jódísarstöðum 29.07.1954
Ekki vitað hvaða fólk þetta er. Aftan á mynd má sjá óljósa skrift þar stendur m.a "Dúnda litla segir ég er enn þá svo lítil". Svo er óljóst framhald á skrift. En lýkur á "vertu sæl mamma mín."