Þóra Benediktsdóttir, f.1884. Hún var systir Sigríðar Benediktsdóttur Litlu-Gröf. Þóra fluttist til Vesturheims með föður þeirra systra Benedikt Jónssyni. Hún giftist Fred Gardiner og var þekkt sem Thora B. Gardiner. Lést í Oregon 1953.
2 bréf frá Ingunni Árnadóttir. Fyrra bréfið er skrifað í Dúki 22. febrúar 1927 og er til Þorbjargar Árnadóttur systur hennar. Seinna bréfið er skrifað í Dúki 26. mars 1929 og er til "litla frænda".
Á fremstu blaðsíðu er skrifað: Frá mömmu til Siggu 3. júní 1905. Í bókinni eru handskrifaðar vísur og kveðjur frá vinum og vandamönnum, skrifað á mismunandi tímum.
Sesselja Halldórsdóttir f. 1834, d. 1915 og barnabarn hennar Þóra Benediktsdóttir f.1884, d. 1953 í Vesturheimi. Ljósmyndin er tekin hjá Baldwin and Blondal í Winnipeg.
Þóra (seinna þekkt sem Thora B. Gardiner) fór til Vesturheims með föður sínum Benedikt Jónssyni frá Hólum í Hjaltadal en móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir voru eftir á Íslandi.
Sesselja Halldórsdóttir fluttist einnig til Vesturheims, hún var móðir Þorbjargar Árnadóttur
Þóra Benediksdóttir fyrir miðju. Hin börnin eru óþekkt. Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður sínum Benedikt Jónssyni. Móðir hennar Þorbjörg Árnadóttir og yngri systir Sigríður Benediktsdóttir urðu eftir á Íslandi. Þóra var fædd 1884 á Syðri-Brekkum, d. 1953 í Vesturheimi.
Bréf frá Þóru Benediktsdóttur til móður sinnar Þorbjörgar Árnadóttur og systur Sigríðar Benediktsdóttur. Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður þeirra Benedikt Jónssyni. Þóra er móðursystir Guðlaugar.
Fjöldaframleitt póstkort sem var í myndaalbúmi. Á það skrifar Sigríður Benediktsdóttir til mömmu sinnar Þorbjargar Árnadóttur. 12/9 1912 Kort skrifað í Hamborg (Hafnarstræti 94) Akureyri
2 bréf Sesselju Halldórsdóttur til dóttur (líklega til Þorbjargar Árnadóttur). Bréf bæði merkt Akra en það er í Norður Dakóta í Bandaríkjunum. Fyrra bréf dagsett 30. desember 1903 Seinna bréf dagsett 24. janúar 1906