Bréf til Guðlaugar frá Winnipeg, Manitoba
- IS HSk N00346-B-B-2
- Item
- 1982
Óundirritað bréf skrifað á íslensku. 1 blað, skrifað á það báðum megin.
Á umslagi kemur fram á stimpli að það er sent frá Winnipeg, Manitoba 1982.
428 results with digital objects Show results with digital objects
Bréf til Guðlaugar frá Winnipeg, Manitoba
Óundirritað bréf skrifað á íslensku. 1 blað, skrifað á það báðum megin.
Á umslagi kemur fram á stimpli að það er sent frá Winnipeg, Manitoba 1982.
Bréf frá Sólveigu Arnason, 18 ára. Sent frá Akra, Norður Dakótu.
Það kemur ekki fram á bréfi á hvern það er stílað en það kemur fram að það er til frænku. Skrifað á íslensku. Skrifar frá daglegu lífi og aðeins um minningar frá Íslandi
9 bréf skrifuð á íslensku og 2 umslög frá Svövu í Riverton Manitoba til Guðlaugar og Þóris bróður hennar.
Bréf 1: 19. apríl, 1967. Tvær tölusettar blaðsíður.
Bréf 2: 15. desember, 1968. Samanbrotið bréf, skrifað á allar hliðar.
Bréf 3: 16. júlí, 1977. Samanbrotið bréf, skrifað á allar hliðar.
Bréf 4: 1.apríl, 1978. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar.
Bréf 5: 31. desember, 1978. Samanbrotið bréf, skrifað á allar hliðar.
Bréf 6: 17. júlí, 1979. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar.
Bréf 7. 8 desember, 1981. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar.
Bréf 8. 2. maí, 1981. Ein blaðsíða, skrifað á báðar hliðar
Bréf 9. Dagsetning ekki skýr en það stendur febrúar 198. Líklegt að það sé 1981 þar sem þetta er sama bréfsefni og er á bréfinu frá 2. maí 1981
2 umslög með kanadískum frímerkjum.
Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba.
Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966.
Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973
Bréf til Guðlaugar og Þóris frá Lilju og Gordon, skrifað á ensku í nóvember 1984.
Bréf frá Jennifer til Guðlaugar. Skrifað á íslensku.
Bréf frá Viola til Guðlaugar skrifað á ensku.
Bréfritari: Þóra Benediktsdóttir
Bréf frá Þóru Benediktsdóttur til móður sinnar Þorbjörgar Árnadóttur og systur Sigríðar Benediktsdóttur.
Þóra fluttist til Vesturheims 1887 með föður þeirra Benedikt Jónssyni.
Þóra er móðursystir Guðlaugar.
2 bréf frá Ingunni Árnadóttir.
Fyrra bréfið er skrifað í Dúki 22. febrúar 1927 og er til Þorbjargar Árnadóttur systur hennar.
Seinna bréfið er skrifað í Dúki 26. mars 1929 og er til "litla frænda".
Bréfritari: Elsa Þuríður Þórisdóttir
5 handskrifuð bréf frá Elsu Þuríði til Guðlaugar.
1 úrklippa úr blaðinu "Laugarnesskólinn" sem sýnir sýnishorn úr ritsmíðum og teikningum nemenda skólans. Þar er lítil grein eftir Elsu.
2 handskrifuð bréf frá Ingu til Guðlaugar. Skrifuð 05.09.1973 og 10.12.1974
Bréfritari Margrét Símonardóttir
Handskrifuð bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Margréti Símonardóttur.
Bréf 1: Ritað 13.04.1933, bréfritari skrifar undir M.Símonardóttir
Bréf 2: Ritað 26.02.1943, bréfritari skrifar undir M.S
Bréfritari: Þorbjörg Árnadóttir
Handskrifuð bréf frá Þorbjörgu Árnadóttur til dóttur hennar Sigríðar Benediktsdóttur.
1 handskrifað bréf frá Elsu. Nafn viðtakanda ekki skrifað á bréfið.
Við afhendingu á bréfinu var miði innan í því. Hann fylgir hér með. Miðinn er til Guðlaugar.
2 bréf til Sigríðar Benediktsdóttur sem var fósturmóðir Magnúsar. Dagsett 02.01.1938 og 06.03.1941.
1 bréf dagsett 09.01.1938, nafn viðtakanda kemur ekki fram.
3 handskrifuð bréf og 1 handskrifað kort til Guðlaugar.
Bréf dagsett 20. júlí 1950, skrifað á Akureyri. Það kemur ekki fram nafn bréfritara en það er til Ásu frá pabba.
Bréfritari: Guðrún Jónasdóttir
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Guðrúnu Jónasdóttur. Dagsett 8.ágúst 1947
Bréf skrifað á Akureyri 02.02.1953. Kemur ekki fram hver er móttakandi bréfsins.
Bréf til Guðlaugar frá Imbu. Skrifað á Kjartansstöðum.
Bréf frá Brynhild til Guðlaugar.
Bréf frá Erlu í Vík til Þóris. Skrifað 16.02.1973.
Bréf ritað á Siglufirði 18.12.1958. Kemur ekki fram hver er viðtakandi.
Bréf til Arngríms frá Birni í Seylu. Skrifað 10.12.1941.
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Andrési Andréssyni.
Rituð:
26.05.1940
05.08.1942
12.01.1943
29.11.1943
15.02.1943
Líklega bréf til heimilisfólksins á Litlu Gröf.
Bréfritari: Sveinn Gunnarsson, Mælifellsá
Bréf frá Sveini Gunnarssyni á Mælifellsá til Þorbjargar Árnadóttur. Skrifað 10. apríl 1918. Það varðar 60 kr sem hún telur hann skulda sér.
Bréfritari: Sesselja Halldórsdóttir
2 bréf Sesselju Halldórsdóttur til dóttur (líklega til Þorbjargar Árnadóttur).
Bréf bæði merkt Akra en það er í Norður Dakóta í Bandaríkjunum.
Fyrra bréf dagsett 30. desember 1903
Seinna bréf dagsett 24. janúar 1906
Bréfritari: Sesselja Jónsdóttir
Bréf ritað 18.12.1959. Frá Sesselju Jónsdóttir, Birkihvammi 17 Kópavogi til Guðlaugar Arngrímsdóttur.
Bréf frá Ólafi Sveinssyni til frænku. Líklega til Sigríðar Benediktsdóttur. 2 handskrifaðar blaðsíður.
Ritað í Reykjavík 07.05.1948
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur. Það er skrifað á Akureyri 03.09.1920.
Bréfið er undirritað á tvenna vegu. Annarsvegar F.B Arngrímsson og hinsvegar F.B.A
Þetta gæti mögulega Frímann B. Arngrímsson.
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur. Rituð á Akureyri 04.02.1917 og 27.08.1917
Bréfritari: Magnús á Siglufirði
Bréf til vinar, kemur ekki fram nafn viðtakanda.
Bréfritari: Halldóra Þórarinsdóttir
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Halldóru Þórarinsdóttur. Skrifað í Reykjavík 8. september 1935.
Bréfritari: Guðlaug Guðjónsdóttir
2 bréf frá Guðlaugu Guðjónsdóttur til Guðlaugar Arngrímsdóttur.
Fyrra bréf er ritað frá íþróttarhúsi Akureyrar 09.02.1954 og hið seinna er ritað á Jódísarstöðum 29.07.1954
Hvorki nafn sendanda né viðtakanda kemur fram. Ekkert ártal.
Bréf til Guðlaugar Arngrímsdóttur frá Guðmundi Þór. Ritað 18.12.1984.
Bréfritari: Gunnlaugur Jónsson
Kemur ekki fram nafn móttakanda. Þetta er fjölskylduskrá yfir afkomendur Eiríks Pálssonar(Þorsteinssonar) frá Pottagerði í Skagafirði.
Ekkert ártal á bréfi.
Ljósrit af handskrifuðu bréfi til Professor W. Fiske. Skrifað á Hólum í Hjaltadal 18.apríl 1880
Bréf til Guðlaugar frá Karli Vernharðssyni.
Bréf ritað í Reykjavík 14/3 1962.
Bréfritari: Guðlaug Arngrímsdóttir
1 handskrifað bréf frá Guðlaugu til móður sinnar SigríðarBenediktsdóttur. Ritað á Strandgötu 21, Akureyri. 1. apríl. Ekkert ártal kemur fram á bréfi.
1 handskrifað tveggja blaðsíðna bréf frá Dodda. Móttakandi kemur ekki fram.
Bréf til frænku frá Önnu Sveinsdóttur. Bréf er skrifað á Kirkjubæ 17.08.1931.
Bréfritari: Hartmann Ágrímsson
Bréf til vinar, nafn viðtakanda kemur ekki fram. Annað bréfið er skrifað 10.02.1947 en hitt 8.6.1947.
Bréfslitrur til Sigríðar Benediktsdóttir
7 blöð af bréfslitrum úr ólíkum áttum til Sigríðar Benediktsdóttur.
Ártal er á tveimur blöðum. Annað er 1915 en hitt 1943.
Lítið samanbrotið bréf merkt Frk. Guðlaug Arngrímsdóttir. Innheldur lítla rómantíska vísu (4 línur). Engin dagsetning né nafn á bréfritara.
Frímerki og umslög sem fylgdu með skjalasafninu.
Bréfritari: Arngrímur Sigurðsson
Bréf frá Arngrími Sigurðssyni til Sigríðar Benediktsdóttur. Dagsett 09/10/1927 og 23/02/1934 en þriðja bréfið er dagsett 7. febrúar en ekki með ártali,
Bréfritari: Kristín Símonardóttir
2 bréf til Sigríðar Benediktsdóttur frá Kristínu Símonardóttur í Kolkuósi. Annað bréfið er skrifað 18/12 1916 og hitt er skrifað 15/12 1934.
Bréf til Guðlaugar frá Fríðu vinkonu hennar.
Bréf 1: Reykjavík, 7. janúar 1951
Bréf 2: Reykjavík, 10. janúar 1956
Bréf 3: Reykjavík, 25. ágúst 1960
Bréf 4: Reykjavík, 5. október 1965
Bréf 5: Reykjavík, 9. desember 1968
Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002.
Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri.
Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.
Alþingisrímur (1899-1901) / Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi
Þórir Arngrímsson bróðir Guðlaugar batt inn bækur. Hér hefur hann steypt saman annarsvegar Alþingisrímur (1899-1901) sem Valdimar Ásmundsson gaf út og hinsvegar Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi eftir Edward Knutzen, Theodór Árnason íslenskaði.
Alþingisrímur (1899-1901). Prentað í Ísafoldarverksmiðju, Reykjavík 1902. Þetta eru 14 rímur á 98 blaðsíðum.
Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi er 55 blaðsíður.Prentsmiðjan Gutenberg.
Póstkort og rímnahefti sem brotin voru saman.
Á brefspjaldi eru tvær skopmynd af Birni Jónssyni (1846-1912) ráðherra Íslands 1909-1911. Fyrir neðan myndirnar eru rímur.
Rímnahefti er 10 blaðsíður. Nafn höfundar kemur ekki fram.
Já eða Nei - Vísnaþáttur. Stjórnandi Sveinn Ásgeirsson Hagfræðingur.
Braglistarmenn: Guðmundur Sigurðsson, bókari, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, Karl Ísfeld, rithöfundur og Steinn Steinarr, skáld. Útgefandi: Steindórsprent H.f.
61 blaðsíða auk auglýsinga
Rímur af Reimari og Fal enum sterka
Rímur af Reimari og Fal enum sterka, kveðnar á Brokey, 1832. Það vantar fyrstu blaðsíðurnar því er ekki vitað hvaða útgáfa þetta er.
Úr fórum heimilisfólksins á Litlu-Gröf.
Dularfulli maðurinn með krónu-gleraugun
Dularfulli maðurinn með krónu-gleraugun eftir Pétur Sigurðsson. 6 rit. Reykjavík, 1936, Ísafoldarprentsmiðja h.f.
Hefti merkt Arngr. Sigurðsson
Íslensk Ástaljóð. Reykjavík 1819. Kostnaðarmaður ST. Gunnarsson. Árni Pálsson valdi kvæðin.
Ekki kemur fram, um hvaða útgáfu bókar er að ræða.
Leikhandrit revíunar Spánskar nætur. Auglýsingar prentaðar á öftustu blaðsíðunum.
Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum
Bók eftir George H.F Schrader, þýtt hefur Steingrímur Matthíasson. Önnur útgáfa, Akureyri.
Inn í bókinni er skrifað: Gjöf til Sigríðar Benediktsdóttur
frá L.e S.g.b?
Uppdráttur af Reykjavík og nágrenni - Ökuleiðir 1932
Kort frá Strætisvögnum Reykjavíkur H.F. Uppdráttur af Reykjavík og nágrenni. Ökuleiðir 1932.
Drápa um Örvar-Odd sett í tólf kvæði
Drápa um Örvar Odd. Sett í tólf kvæði af Benedikt Gröndal. Útgefendur Jón Árnason, Egill Jónsson, Einar Þórðarson, Benedikt Gröndal. Prentað í prentsmiðju Íslands 1851. Reykjavík.
Reikningsbók eftir Eirík Briem. Annar partur.
Reikningsbók eftir Eirík Briem. Annar partur. Þriðja prentun. Reykjavík. Prentsmiðja Ísafoldar. 1900. 48 tölusettar blaðsíður. Á fremstu blaðsíðu er skrifað nafnið Jón Sigurðsson. Kennslubók í reikning
Ný matreiðslubók. Fyrir fátæka og ríka
Ný matreiðslubók. Fyrir fátæka og ríka. Eftir Jóninnu Sigurðardóttur. Með heilsufræðislegum inngangi eftir Steingrím Matthíasson héraðslækni. Prentsmiðja Björns Jónssonar. Akureyri.
Inni í bók voru blaðasneplar, með uppskriftum og úrklippa úr dagblaði.
Bökun í heimahúsum eftir Helgu Sigurðardóttir. Þriðja útgáfa. Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja H.F.
78 tölusettar blaðsíður.
Prédikanir, ætlaðar til helgidaga lestra í heimahúsum
Prédikanir, ætlaðir til helgidaga lestra í heimahúsum. Eftir Dr. P. Pjetursson. Útgefandi: Egill Jónsson í Reykjavík. 1856.
Nýtt og gamalt v. Bænir á hátíðum og alvörustundum
Nýtt og gamalt v. Bænir á hátíðum og alvörustundum. Gutenberg 1919. Sigurbjörn Á. Gíslason. 29 tölusettar blaðsíður. Prentað með styrk úr smáritasjóða síra Jóns lærða frá Möðrufelli. Sjerprentun úr Bjarma 1918 og 1919.
Tímaritið Bjarmi hefur verið gefið út frá árinu 1907.
Kristilegur barnalærdómur eptir Lúterskri kenningu.
Kristilegur barnalærdómur eptir Lúterskri kenningu. Höfundur: Helgi Hálfdánarson. Sjötta prentun. Kaupmannahöfn. Prentað hjá J. H. Schultz.
Sálmabók til kirkju- og heimasöngs
Sálmabók til kirkju- og heimasöngs. Fyrsta prentun. Reykjavík 1945. Forlag Prestekknasjóðsins. Á fyrstu blaðsíðu er skrifað með penna Guðl. Arngrímsdóttir
Kristilegar sögur á dönsku. Fyrsta sagan á fremstu blaðsíðu heitir Löven og musen. 209 tölusettar blaðsíður.
Danska skáldsagan Valdemar Seier eftir Bernhard Severin Ingemann. 8. útgáfa. Sagan kom fyrst út í október 1826.
Skrifuð á dönsku.
Minnilegur Fermingardagur. Foreldragjöf á fermingardegi barna.
Minnilegur Fermingardagur. Foreldragjöf á fermingardegi barna. Frá ábyrgðarmanni Þjóðólfs. Reykjavík. Prentaður í prentsmiðju Íslands 1851. Ljósbleik kápa. 64 tölusettar blaðsíður.
Dactylismus Ecclesiasticus eður Fingra-Rím
Dactylismus Ecclesiasticus eður Fingra-Rím. Útgefið af Þ.Jónssyni; prentað hjá S.R. Möller. 1838. Óbreytt eftir útgáfunni frá 1739.
Rímur af Atla Ótryggssyni. Kveðnar af Jóni Sigurðssyni og Símoni Bjarnarsyni (Dalaskáldi). Akureyri. Prentari Björn Jónsson. 1889.
Skólaljóð. Kvæðasafn handa unglingum
Skólaljóð. Kvæðasafn handa unglingum til að lesa og nema. Valið hefir og búið til prentunar Þórhallur Bjarnason. Þriðja prentun. Reykjavík. Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. 1909.
Reynt hefur verið að lagfæra bókakápu. Efnisbútur hefur verið límdur yfir kjölinn.
Biblíusögur handa unglingum: íslenzkaðar og lagaðar eptir Biblíusögum
Biblíusögur handa unglingum: íslenzkaðar og lagaðar eptir Biblíusögum C.F. Balslevs af Ólafi Pálssyni
Bók merkt innan á kápu: Arngrímur Sigurðsson. Litlu-Gröf.
Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815
Fimmtán tídavísur um árin 1801-1815. Orktar af sjera Þórarni Jónssyni, fyrrum presti að Múla í þingeyjarsýslu. Útgefendur Jónas Jónsson. Vigfús Sigurðsson. Akureyri 1853. Prentaðar í prentsmiðju norður- og austur-umdæmisins af Helga Helgasyni.
Sálma- og Bæna-Kver. Haldandi tvennar viku bænir og Eina viku sálma ásamt Hátída misserisskipta sakramentis og Ferða bænum og bæn um gódan afgáng.
Viðeyjar Klaustri. O.M Stephensen. 1841.
Vasabók Sigríðar Benediktsdóttur
Vasabók / glósubók Sigríðar Benediktsdóttur. Útreikningar og glósur.
Ávíti á kjörstað sem Guðlaug Arngrímsdóttir skrifaði. Engin dagsetning skráð á blaðið.
Meðmælabréf ritað af Rich. N. Braun fyrir Sigríði Benediktsdóttur. Skrifað á dönsku. Undirritað á Akureyri í maí 1918.
Kemur fram að hún hættir störfum vegna aðstæðna sem hafa skapast vegna fyrri heimsstyrjaldar.
2 blöð, annað er autt.
Úr fórum Arngríms Sigurðssonar. 1 Stílabók og 1 blað sem var inni í bókinni. Á blaði stendur Fjallskilaniðurjöfnun sumarið 1923.
Í stílabók er ýmist handskrifað efni:
Minningar frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur
Bók merkt Guðlaugu Arngrímsdóttur. Í bókina hafa samnemendur hennar ritað kveðjur til hennar.
Skrifað er á fremstu blaðsíðu: Búfjárfræði. Kend af Birni Símonarsyni. Veturinn 1943-1944. Rituð upp af Þóri A. Arngrímssyni frá Litlu-Gröf Skagafirði.
Námsbækur fyrir barnaskóla. Grasafræði. Ríkisútgáfa námsbóka. Geir Gígja samdi.
Skrifað hefur verið á fyrstu blaðsíðu Guðlaug Arngrímsdóttir.