Showing 23 results

Archival descriptions
Erla Gígja Þorvaldsdóttir: Ljósmyndasafn Þorvaldur Þorvaldsson (1913-2006) With digital objects
Print preview Hierarchy View:

Mynd 156

Fullorðna fólkið f.v. Ingibjörg Þorvaldsdóttir (1918-2005) Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi) (1913-2006), Hulda Jónsdóttir (1914-1992) og hugsanlega Börge Hillers maður Ingibjargar. Börnin og unglingarnir óþekkt.

Mynd 163

Fullorðna fólkið f.v. (Börge Hillers), Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson stendur aftast og lyftir höndum og Hulda Jónsdóttir. Börnin óþekkt. Slæm mynd.

Mynd 181

Útför Salóme Pálmadóttur frá Sauðárkrókskirkju í apríl 1957. Fremstu líkmenn eru synir hennar Þorvaldur (Búbbi) t.v. og Svavar (Daddi) t.h. Þorvaldssynir. Aftari líkmaður t.v. e Jón Þ. Björnsson og aftasti líkmaður t.h. er Daníel Glad. Maður hennar Þorvaldur Guðmundsson er í tröppunum t.v.

Mynd 196

Salóme Pálmadóttir og Þorvaldur Guðmundsson ásamt börnum sínum. Á milli þeirra situr Guðbjörg.
Í aftari röð eru f.v. Þorvaldur (Búbbi), Ingibjörg Hillers og Svavar (Daddi).

Mynd 201

Lúðrasveit Sauðákróks (um 1970). Stjórnandi Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi). F.v. Jóhannes Gunnarsson, Hörður Guðmundsson, Lára Angantýsdóttir, Erla Gígja Þorvaldsdóttir (á bak við), Sigfús Guðmundsson, (Viðar Sverrisson) og Stefán Pedersen.

Mynd 202

Lúðrasveit Sauðárkróks (um 1970). Stjórnandi Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi). Þekkja má f.v. Jóhannes Gunnarsson, Gunnar Má Ingólfsson, Ögmund Svavarsson, Hörð Guðmundsson (fyrir miðju) og Stefán Pedersen (fjærst). Mynd tekin sunnan við Búnaðarbankann.

Mynd 208

Jarðsetning Þorvaldar Guðmundssonar kennara í Sauðárkrókskirkjugarði í október 1961. Prestur er sr. Þórir Stephensen. Í fremstu röð má þekkja f.v. Hrein Þorvaldsson, óþekktur, Svavar Þorvaldsson (Dadda), Þorvald Þorvaldsson (Búbba), óþekkt og Huldu Jónsdóttur. Lengst t.h. er svo Þorvaldur Erlendsson.

Mynd 217

Aðalgata 3, hús Ásgríms Sveinssonar og Hólmfríðar Jóhannesdóttur. Á svölunum standa Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi) t.v. og Ásgrímur Sveinsson t.h. Búið er að rífa húsið.

Mynd 42

Kirkjukór Sauðárkróks (um 1960-1970). Fremsta röð f.v. Björgvin Jónsson, Jófríður Björnsdóttir, Kristín Sölvadóttir, Eyþór Stefánsson (stjórnandi kórsins), Sigríður Stefánsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir og Kári Steinsson. Önnur röð f.v. Dóra Magnúsdóttir, Eva Snæbjarnardóttir, Svava Ögmundsdóttir, Sigríður Ingimarsdóttir, Lára Angantýsdóttir, Hólmfríður Jóhannesdóttir, Halla Rútsdóttir og Bára Haraldsdóttir. Þriðja röð f.v. Sólborg Valdimarsdóttir, Kristín Svavarsdóttir, Sigrún Pétursdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og óþekkt. Aftasta röð f.v. Svavar Guðmundsson, Bragi Haraldsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Ögmundur Svavarsson, Pétur Helgason, Jón Karlsson og Héðinn Ásgrímsson.

Mynd 50

Jarðaför Salóme Pálmadóttur í apríl 1957. Fremstu líkmenn eru synir hennar þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi) fjær og Svavar Þorvaldsson (Daddi) nær. Þorvaldur Guðmundsson maður Salóme er fyrir miðju í fremstu röð næst kistunni.

Mynd 51

Útför Salóme Pálmadóttur frá Sauðárkrókskirkju árið 1957. Fremstu líkmenn eru Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi) t.v. og Svavar þorvaldsson (Daddi) t.h. Jón Þ. Björnsson er aftan við Búbba og Daníel Glad er aftastur fjær.
Þorvaldur Guðmundsson maður Salóme er í tröppunum t.v.