Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar stofnun félags í Skagafirði. Með liggur félagaskrá Hjarta- og æðasjúkómavarnarfélags Skagfirðinga 1964, sem er einnig vélritaður á pappírsörk í A4 stærð. Einnig liggja með lög Hjartaverndar. Þau eru vélrituð á 4 bls. í folio stærð. Bréfið er stílað á Ólaf Sveinsson sjúkrahúslækni á Sauðárkróki, en á félagatalinu kemur fram að Kristján C. Magnússon var félagsmaður í umræddu félagi.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar málefni gæslumanna I.O.G.T. Með liggur umboðsskrá gæslumanns templara, merkt Sigrúnu M. Jónsdóttur ásamta átta bls fjölriti sem heitir Góðtemplarareglan og er skrifað af Brynleifi Tóbíassyni og gefið út af Stórstúku Íslands.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, alls 4 síður. Það varðar fréttir af fjölskyldunni. Bréfið er aðeins rifið þar sem það er brotið saman, en annars er ástand þess gott.
Félagsskírteinið er bundið inn í harðspjaldakápu, 7x10,5 cm að stærð. Í því eru 16 síður og m.a. færðar inn upplýsingar um greiðslur félagsgjalda. Utan um er rautt hulstur. Ástand skjalsins er gott.
Hjónavígslubréf Kristjáns C. Magnússonar og Sigrúnar M. Jónsdóttur. Gefið út 21.07.1930. Pappírsörk í folio broti, alls 4 síður. Ástand skjalsins er gott.
Fjórar leikaramyndir, tvær þeirra prentaðar sín hvoru megin á pappírsörk og tvær á nokkurs konar umslag. Myndirnar eru úr safnseríu sem fylgt hefur danska tímaritinu Familie Journal. Ástand skjalanna er gott.
Tveir óþekktir drengir og hundur. Tilgáta: Bræður Sigrúnar Mörtu Gunnarsdóttur. (Gunnar Sigurjónsson var afabróðir hennar og bjó á Ásvegi 14 á Akureyri.
Tvílemba. Húsið sem sést vinstra megin gæti verið Skógargata 22 (Sigurhæðir). Myndin er líklega tekin í garðinum vestan við Suðurgötu 10. (ca. 1955-1960).
Tvö óþekkt börn með lamb. Myndin er tekin nyrst á Sauðárhæðum sunnan Sauðárkróks. Dettur í hug börn Ólafs Sveinssonar læknis og Ástu Karlsdóttur þau Guðríður og Karl.
Tveir menn að veiðum í Vesturós Héraðsvatna. Maðurinn t.h. er Kristján Guðmundsson skrifstofumaður hjá KS, hinn óþekktur (dettur í hug Adolf Björnsson ca. 1955-1960).
2 kindur og tvö lömb. Svarta kindin er Hrafnhildur kölluð Habba og var hún mikil fjallafála (fjallagála), kom hún yfirleitt í Mælifellsrétt í haustgöngum og einu sinni heimtist hún sunnan heiða.
Sauðfé á Króknum. Hlíðarendi t.h. við hvíta turninn sem var einhverskonar miðlunartankur á aðfallspípu Gönguskarðsávirkjunar. Lengst t.h. er Skarð. Heiðarhnjúkur í bakgrunni.