Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar stofnun félags í Skagafirði. Með liggur félagaskrá Hjarta- og æðasjúkómavarnarfélags Skagfirðinga 1964, sem er einnig vélritaður á pappírsörk í A4 stærð. Einnig liggja með lög Hjartaverndar. Þau eru vélrituð á 4 bls. í folio stærð. Bréfið er stílað á Ólaf Sveinsson sjúkrahúslækni á Sauðárkróki, en á félagatalinu kemur fram að Kristján C. Magnússon var félagsmaður í umræddu félagi.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar málefni gæslumanna I.O.G.T. Með liggur umboðsskrá gæslumanns templara, merkt Sigrúnu M. Jónsdóttur ásamta átta bls fjölriti sem heitir Góðtemplarareglan og er skrifað af Brynleifi Tóbíassyni og gefið út af Stórstúku Íslands.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, alls 4 síður. Það varðar fréttir af fjölskyldunni. Bréfið er aðeins rifið þar sem það er brotið saman, en annars er ástand þess gott.
Félagsskírteinið er bundið inn í harðspjaldakápu, 7x10,5 cm að stærð. Í því eru 16 síður og m.a. færðar inn upplýsingar um greiðslur félagsgjalda. Utan um er rautt hulstur. Ástand skjalsins er gott.
Spjöld með númerum ritningarversa. Umslag utan um merkt "Gimsteinar Biblíunnar. Mannakorn." Búið að klippa af sumum spjöldunum. Umslagið er slitið en annars er ástand skjalanna gott.
Hjónavígslubréf Kristjáns C. Magnússonar og Sigrúnar M. Jónsdóttur. Gefið út 21.07.1930. Pappírsörk í folio broti, alls 4 síður. Ástand skjalsins er gott.
Einkaskjöl, m.a. tækifæriskort og skeyti, ljóð og lausavísur og ljósmyndir. Með liggja tveir stimplar frá Sauðárkróksbíó, en þau hjónin ráku bíóið um árabil.
Ferskeytlan er handskrifuð á pappírsbleðil í stærðinni 12x7 cm. Aftan á blaðið er skrifað að hún sé skrifuð af höfundi sjálfum. Ástand skjalsins er gott.
Ljóðin eru vélrituð á tvær pappírsarkir, í A4 og A5 stærð. Annað þeirra ber yfirskriftina Fyrsta vorblómið, hitt er án titils. Ástand skjalanna er gott.
Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Um er að ræða erfiljóð um frú Önnu Sigurjónsdóttur (1926-1958) kennara í Hróarsdal, sem ber yfirskriftina "Kveðja frá eiginmanni og börnum." Ástand skjalsins er gott.
Ljóðin eru vélrituð á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Annars vegar afmælisljóð á 90 ára afmæli og hins vegar og hins vegar kveðja frá Hestamannafélaginu Léttfeta. Ástand skjalsins er gott.
Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Búið er að klippa horn af örkinni. Um er að ræða erfiljóð frá dóttur Ragnheiðar Eggertsdóttur (1844-1934) frá dóttur hennar, Jakobínu Gísladóttur. Ástand skjalsins er gott.
Fjórar leikaramyndir, tvær þeirra prentaðar sín hvoru megin á pappírsörk og tvær á nokkurs konar umslag. Myndirnar eru úr safnseríu sem fylgt hefur danska tímaritinu Familie Journal. Ástand skjalanna er gott.
Skírteinin eru prentuð á þykkan pappír í stærðinni 28x16 cm og brotin í þrennt. Alls 10 skírteini, stíluð á Sigrúnu M. Jónsdóttur. Ástand skjalanna er gott.
Minnisbækur úr fórum Kristján C. Magnússonar og Sigrúnar M. Jónsdóttur. 8 bækur í ýmsum stærðum. Í bækurnar eru m.a. skráð minnisatriði sem varða ættfræði, sauðfjárbúskap og skátastarf. Ástand bókanna er gott.
Tveir óþekktir drengir og hundur. Tilgáta: Bræður Sigrúnar Mörtu Gunnarsdóttur. (Gunnar Sigurjónsson var afabróðir hennar og bjó á Ásvegi 14 á Akureyri.
Tvílemba. Húsið sem sést vinstra megin gæti verið Skógargata 22 (Sigurhæðir). Myndin er líklega tekin í garðinum vestan við Suðurgötu 10. (ca. 1955-1960).
Tvö óþekkt börn með lamb. Myndin er tekin nyrst á Sauðárhæðum sunnan Sauðárkróks. Dettur í hug börn Ólafs Sveinssonar læknis og Ástu Karlsdóttur þau Guðríður og Karl.