Stofan á Suðurgötu 10. Orgel með nótnabók og ljósmyndum. Krókurinn er á myndinni yfir orgelinu. Sýnist Helga Pálsdóttir vera á myndinni t.v. og Hólmfríður Rögnvaldsdóttir t.h. Aftan á myndina er skrifað: "Þetta er mynd sem Hannes Pálsson ljósm. tók" (ca. um 1960).
Stofan á Suðurgötu 10. Á myndinni er útvarp og grammófónn í horninu og svo pottaplöntur og myndir á veggjum. Þess má geta að Kristján hlustaði mikið á klassíska tónlist og Lóa var mikil blómakona.