Myndin er tekin í Winnipeg júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Þetta er Sargent Ave eða "Jeelanders main street" eins og það var einu sinni kallað. Þarna búa mjög margir ísl og stóra hvíta húsið til hægri er Ísl I.O.G.T. húsið séð vestur."
Myndin er tekin í Piumas 1954 Aftan á myndinni stendur: "Hveitigeymslurnar í Píumas, svona turnar eru í hverju þorpi, mismunandi margir þó, og oft mjög stórir."
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þinghúsið í Manitoba. Þetta er mjög fallegt hús og fyrir framan tröppurnar sést minnismerki af Viktoríu drottningu. Í garðinum er stittan af Jóni Sig."
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin inní andyri Þinghússins. Þessi vísundur er í fullri stærð og annar stendur hinu megin við stigann. Þeir eru baðir úr bronsi, en annars er húsið allt úr steini."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin niður aðalgötu Winnipeg-Portage. Dökka húsið niður með götunni með hvíta skúrnum á þakinu (með tvo svarta depla) er Eaton verslunin. Hendson Bayrslunin sést ekki, hún er nær okkur, sömu megin."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er nú ekki af neinni sérstakri götu, en svona eru allar íbúðar göturnar. í Wpeg.Húsin eru lítil en falleg, og ot engin girðing fyrir framan þau, svo kemur gangstjettin milli hennar og göturnar eru breiður grasivaxinn bali með einfaldri trjáröð. Það eru aldrei neinar búðir við þessar götur heldur aðeins á götunum sem skera þær."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna í dyrunum á Fort Garry virkinu. Þetta hlíð stendur til minja um þetta stóra virki og það eina sem eftir er af því. Það stóð þar sem miðborg Wpeg er nú."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna upp við trjábút sem Kobbi sýndi okkur einu sinni þegar við vorum ða komu úr "stéttarbaráttunni". Hann er hafður þarna til sýnis. Það ar fellt 1929 og var það þá 687 ára. Það má glöggt sjá árshringina, og svo hafa þeir merk inn á (hvítu strikin). Það var þetta gamalt þegar Columbus fann Ameríku og önnur merkileg ártöl. Það er um 6 fet í þvermál, frá British Columbia."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Húsið til vinstri er Hudson Bay, 7 hæða húsið fyrir aftan það neðar á götunni er það að láta byggju 2 hæða bílastæði fyrir viðskiptavininn. Stóra húsið þar fyrir aftan er Leikhús Wpeg. Þó held ég að aldrei séu sýnd leikrit þar. Þar söng íslenskur karlakórinn þegar hann kom hér um árið. Fyrir miðju er þinghúsið aftur."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Kári stendur þarna á brú yfir Assinnibo ána. Þetta er Osborne stræti en miklu fjær gengur Montgomery Ave út úr því. Á bak við Kára sjást þessi stóru auglýsingaskilti kannski 5 metrar á hæð þau eru mjög víða í borginni."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þetta er nú húsið hans Kobba, 246 Montgomery Ave. Það er nú svo sem enginn höll en það er nokkuð laglegt. Þetta er mjög nýlegt hverfi og húsin standa þarna mjög þétt (eins og alls staðar annars staðar) en aðal lóðin er á bak við húsið."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna fyrir framan eina stærstu járnvöruverslun borgarinnar, heldur súr á svipinn. Á rúðunum má sjá rendur, um 10 cm frá kantinum, hringinn í kring. Þetta er til varnar þjófum, Þessi rönd er eins og úr brönsi og er rafstraumur á henni, og ef kemur sprunga í hana hringir þjófabjalla. þetta er mjög nýtt og er á mörgum byggingum í Wpeg. Ekki vorum við nú að hugsa nánar um það."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ráðhús Winnipeg borgar. Þar er mjög fögur og skrautleg bygging, með fallegum garði með minnismerkjum fyrir framan."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Við skruppum til Wpeg um þessa helgi og hittum Stebba þar, þá tók Kári þessa mynd af okkur."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955 Aftan á hana er skrifað: "Hudson Bay verslunin séð á bakhlína og bílastæðið á tveimur hæðum, sem nú er verið að byggja þriðju hæðina á."