Fólkið á myndinni er óþekkt, 6 manns sem standa við bíl og trjágróður í bakgrunni. Aftan á myndina er skrifað: "Kunningjar frá W.peg heldurrðu ekki ég sé á vetur setjandi? Faðir stelpunnar sem stendur hjá mér er fæddur á Miðsitju Björnsson en svo man ekki ekki meira."
Á myndina er prentaður texti: "Hópur fulltrúa og áheyraenda á 3. þingi SUJ. Samband ungra jafnaðarmanna var stofnað 1930 og því líklegt að myndin sé tekin 1932-1933. Á myndinni sést fáni Félags ungra jafnaðarmanna en það var stofnað 1928.
Guðrún Ólöf (Olive) með börn sín, talið frá vinstri: Bob Thompson, Carol (Thompson) Hellman, Olive (Kristinsson) Thompson, Patti (Thompson) Miller, gefandinn og Steve Thompson. Myndin er tekin í Saskaton í september 1993.
Guðrún Ólöf (Kristinsson) Thompson, kölluð Olive, með bróður sínum, Jóhn Alan Kristinsson. Börn Árna á mynd nr 1. Myndin er tekin í Saskatoon, Saskatchewan í Kanada í september 1993.
Sigríður (Johnson) Kirstinsson, kölluð Sadie. Kona Árna á mynd nr 1. Ef til vill brúðarmynd og ef svo er væri hún tekin árið 1012. Tekin í Winnipeg í Kanada.
Á myndinni er óþekkt fólk, við störf á rannsóknarstofu í New Jersey. Aftan á myndina er skrifað: "Jólin 1946 á rannsóknarstofu sem ég vann á þá í New Jersey. Þetta fólk vann með mér."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og fjölskylda hennar. Þorbjörg var dóttir Þorvaldar Einarssonar og Láru Sigfúsdóttur á Sauðárkróki. Aftan á myndina er ritað: "Pjettur bróðir. Jeg sendi þjer mind af okkur en vonast til að fá mind af ykkur ef þið gjettið. Þín systir Þorbjörg."
Gunnlagur Sölvason og Guðríður kona hans. Börnin eru Björn, Stefán og Lilja. Myndin er tekin um 1901 eða 1902. Myndin er gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur á Sauðárkróki.
Óþekkt kona, situr á bekk og trjágróður í bakgrunni. Konan á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar eftirfarandi upplýsingar: "Þessi mynd var tekin fyrir tveimur árum eða svo á heimsókn úti á landi."
Fólkið á myndinni er óþekkt en skírnarnöfn þeirra eru rituð aftan á myndina: Eggert, Elín, Jakob (eldri),Guðný, Ída, Jakob (yngri). Ída giftist í júní 1938 heitir Mrs. McConnell. Guðný og family. Gefandi: Una Árnadóttir frá Kálfsstöðum.
Sigurður Pétursson frá Sjávarborg. Aftan á myndina er skrifað: "Sigurður Pétursson sýslumaður frá Sjávarborg dó ungur." Myndin var gefin 09.07.2003 úr dánarbúi Kristínar Sölvadóttur Skr.
Fólkið á myndinni er óþekkt en hún er tekin á járnbrautarstöð vestan hafs. Aftan a myndina er skrifað: "Joseph, bróðir minn og ég. Við vorum að bíða eftir járnbrautarlest (það er rétta orðið er það ekki?)." Rithöndin er sú sama og á myndum nr 98, 101 og 102.
Fólkið á myndinni er óþekkt, en aftan á myndina eru skrifaðar eftirfarandi upplýsingar: "Victor, bróðir okkar, kona hans, ég, Lauranne, dóttir Victor og Nettie."
Herbert Marteinson og John Marrteinson. Aftan á myndina er ritaður eftirarandi texti: "Foreldrar Helgi Marteinssonn og Ingibjörg Helgadóttir. Herbert á heima í Vancouver og er háttsettur í lögreglunni.
Á öðrum stendur: Foreldrar drengjanna hétu Birgitte Brandson og Helgi Marteinson og Helgi er skyldur Andrési. Stóri Björn afi þeirra?"
Aftan á myndina er skrifað: "Þetta er maður sem ég vinn mðe og konan hans. Ég var þar fyrir middagsmat einn sunnudag í haust eða seint í sumar. Myndin er merkt með sömu rithönd og myndir nr 98 og 101.
Aftan á myndina er skrifað: Antoniette og Eurico og ég. Þetta er sama sunnudaginn. Hjónin heita Carmine og Antoniette Mezzacappa og drengirnir eru Eurico. Mig þekkið þið býst ég við." Myndin er merkt með sömu rithönd og mynd nr 98.