Við brú yfir Affallann. Í forgrunni eru tveir vegavinnumenn með verkfæri, Felix Jósafatsson t.v. og Björn Gíslason. Glóðafeykir í baksýn t.v. Mynd 1928.
Vegamenn 1928. Líklega við Grófargil. F.v. Markús og Vigfús Sigurjónssynir, Reykjarhóli, Steingrímur Friðriksson, Björn Gíslason, Jónas Gunnarsson, Hátúni.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir f. 1909, d. 1993, vinnukona, óþekkt eldri kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja. Börn hjóna, Sigurður og Lilja fremst. Mynd 1927.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka 1927. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir, vinnukona, óþekkt kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja, börn hjóna Sigurður og Lilja fremst. Héraðsvötn að baki.
Tveir bátar með farþegum við bryggju. Fjöldi fólks stendur á bryggjunni, nokkrir með reiðhjól. Sennilega Akureyri frekar en Húsavík. Á húsinu fyrir miðri mynd stendur "Maskinverksted."
Á Syðstu-Grund 1927. F.v. Efemía Halldórsdóttir, húsfreyja, Salóme Halldórsdóttir systir hennar, Gísli Gottskálksson sonur Salóme, Garðar Jónsson frá Mannskaðahóli, fóstursonur Efemíu, síðar skólastjóri á Hofsósi.
Myndin er tekin á Stóru-Ökrum. F.v. Sigfús Stefánsson frá Bjarnastöðum, síðar í Flugumýrarhvammi, Árni Jónsson á Víðimel, Jón Agnarsson, sonur Agnars Baldvinssonar og Árnýjar Jónsdóttur, Garðar Jónsson, Syðstu-Grund, Friðjón Hjörleifsson, Ásgarði.
Vegamenn við Húseyjarkvísl 1928. F.v. Jón Eiríksson,Hjalti Jónsson, Valadal. Kristófer, Tjarnar-Óli, Haraldur Jónasson, Völlum. Kristján Hansen. Fremst er strákur, ágiskun Guðmundur Jónsson. Til hliðar sést í hest hægra megin og hjól á hestakerru vinstra megin.
Helga Sölvadóttir, f. 1859 á Kleif á Skaga, d. 1942 á Uppsölum. Móðir Ingibjargar Sigurðardóttur á Stóru-Ökrum og Bjarna Halldórssonar á Uppsölum. Hér er Helga með tvo sonarsyni sína, Halldór Bjarnason stendur hjá henni og Jónas Bjarnason í fangi ömmu sinnar.
Vegamenn losa efni og moka á hestakerru, hjá Grófargili. Líklega glittir í Hotstjörn vinstra megin við hakann. F.v. Steinþór Skörðugili. Flóvent. Haraldur Albertsson. Gissur Jónsson, Valadal, Hjalti Jónsson, Valadal. Jón Helgason, Geldingaholti. Mynd 1928.
Börn Ingibjargar Björnsdóttur og Egils Gottskálkssonar í Hjaltastaðakoti 1928. Bjuggu seinna á Miðgrund. Dæturnar f.v. (Magnea) Sigríður f. 1917. Oddný f. 1916. Guðlaug f. 1920. Synirnir eru Gottskálk f. 1921. Steingrímur f. 1924. Árni Helgi Hólm fremstur, f. 1926.
Sex spariklædd börn í Hjaltastaðakoti í Blönduhlíð. Sigríður, Oddný, Guðlaug , Gottskálk, Steingrímur, Árni Helgi Hólm fremstur. Börn Ingibjargar Björnsdóttur og Egils Gottskálkssonar.
Í malarkrús hjá Húseyjarkvísl, sunnan við Kvíslarbrúna sumarið 1928. Vegamenn losa efni í krúsinni og moka á hestakerru við vegagerðina. Fjærst eru Hjalti Jónsson og Flóvent Albertsson með derhúfu. Í miðröð eru Garðar Hansen, Jón Helgason og Pótur Eiríksson með hattinn. Næstur á myndinni er Steingrímur Skagfjörð..
Þetta er Fríða á Bakka. Eftirsótt saumakona m.m. Saumaði m.a. fermingarfötin á Stebba í Vallholti, Stefán Íslandi. Bjarnfríður Þorsteinsdóttir f. 1894 á Auðnum í Sæmundarhlíð, d. 1977 á Sauðárkróki. Hér gefur hún hænsnunum á Bakka í Hólmi 1928. Stúlkan með henni er óþekkt. Sennilega Guðlaug Egilsdóttir.
Bjarnfríður Þorsteinsdóttir f. 1894 á Auðnum í Sæmundarhlíð, d. 1977 á Sauðárkróki. Hún dvaldist á Bakka í Hólmi og síðar í Húsey 1917 til 1932. Móðir Hjartar Vilhjálmssonar, bifreiðastjóra á Sauðárkróki. Myndin tekin á Bakka 1928. Tilgáta: Barnið gæti heitið Sigurður Steindórsson.