Við brú yfir Affallann. Í forgrunni eru tveir vegavinnumenn með verkfæri, Felix Jósafatsson t.v. og Björn Gíslason. Glóðafeykir í baksýn t.v. Mynd 1928.
Í malarkrús hjá Húseyjarkvísl, sunnan við Kvíslarbrúna sumarið 1928. Vegamenn losa efni í krúsinni og moka á hestakerru við vegagerðina. Fjærst eru Hjalti Jónsson og Flóvent Albertsson með derhúfu. Í miðröð eru Garðar Hansen, Jón Helgason og Pótur Eiríksson með hattinn. Næstur á myndinni er Steingrímur Skagfjörð..