Selnes á Skaga. Íbúðarhúsið var byggt árið 1958. Tóftarbrotunum á bakkanum var ýtt fram af og þar með grafinn niður sporvagn sem notaður var við fisklöndun. Ofarlega til vinstri eru tóftir af fjárhúsum.
Íbúðarhúsið á Selnesi á Skaga. Húsið er byggt 1958. Vinstra megin sést gamli torfbærinn. Fyrir framan húsið standa Vilhjálmur Árnason og tveir óþekktir drengir.