Showing 30 results

Archival descriptions
Árni Blöndal: Skjalasafn
Print preview Hierarchy View:

Bændarímur 1955

Þrjú hefti af Bændavísum eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá frá árinu 1955.
Eitt hefti um bændur í Akrahrepps í Blönduhlíð.
Eitt hefti um bændur í Laxárdál og Skaga.
Eitt hefti um um bændur í Lýtingsstaðahreppi og víðar.

Gunnþórunn Sveinsdóttir (1885-1970)

Frúarrímur 1955

Frúarrímur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá.
Ekki er ljóst hvort rímurnar eiga við frúr í einhverjum tilteknum hreppi eða byggðarlagi.

Gunnþórunn Sveinsdóttir (1885-1970)

Gluggaprestsrímur

Útgefið hefti í stærðinni 18,5 x 12,5 cm.
16 bls auk kápu.
Höfundur gefur út, gefið út í Reykjavík 1953.
Höfundurinn, Sveinbjörn Beinteinsson, notaði höfundarnafnið Svalkaldur.

Sveinbjörn Beinteinsson

Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd

Útgefið hefti í stærðinni 10 x 17,7 cm.
Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd eftir Snæbjörn Jónsson með formála eftir síra Einar Thorlacius prófast.
Gefið út í Reykjavík 1931 af Ísafoldarprentsmiðju.

Snæbjörn Jónsson

Hátíðarljóðin

Útgefið hefti í stærðinni 20,7 x 12 cm.
Alþingi 939-1930. Hátíðarljóð.

  1. flokkur eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
  2. Flokkur eftir Einar Benediktsson
  3. flokkur eftir Jóhannes úr Kötlum
    Hátíðarlög við 1. flokk eftir Pál Ísólfsson.

Hólaljóð

Útgefið rit í stærðinni 22,5 x 14,2 cm.
Hólaljóð. Biskupsvígsla á Hólum 10. júlí 1910, er vígður var Geir biskup Sæmundsson.
Skáldið Matthías Jockumsson flutti ljóðið í Hóladómkirkju á vígsludaginn.
8 bls. Félagsprentsmiðjan 1910.

Matthías Jochumsson

Horfurnar

Útgefið hefti í stærðinni 20,8x13,5.
Horfurnar eftir Lárus H. Bjarnason.
Alls 14 bls, auk titilblaðs.
Kápu vantar og blöðin eru orðin slitin.
Pólitískt rit.

Lárus H. Bjarnason

Íslenzk fornrit

Bæklingur í stærðinni 21,8 x 14,9 cm.
Íslenzk fornrit. Listi yfir útgefnar bækur í þessum bókaflokki.
Alls 8 bls, auk kápu. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg 1933.

Jón Arason Hólabiskup

Bæklingur í stærðinni 17,8 x 11,4 cm.
Jón Arason Hólabiskup. Fæddur á Grýtu í Eyjafirði 1484. Hálshöggvinn í Skálholti 7. nóv 1550.
Alls 4 bls bæklingur með ljóði eftir Pál Ólafsson.
Bæklingurinn er áritaður: "Til hr Árna Þorkelssonar. Vinsaml. frá höfundi.
Alls 12 bls., auk kápu.

Páll Ólafsson skáld

Jónas Hallgrímsson minningarræða

Útgefið hefti í stærðinni 19,9 x 12,9 cm.
Jónas Hallgrímsson. Minningar-ræða haldin í Reykjavík 11. dag Marz-mánaðar 1900 að tilhlutan Stúdentafélagsins.
Eftir Jón Ólafsson.
Alls 22 bls, auk titilblaðs. Kápu vantar og blöðin eru orðin slitin.

Jón Ólafsson

Jórunn Ísleifsdóttir Melsteð

Útgefið rit í stærðinni 18,8 x 12,5 cm.
Minningarrit um Jórunni Ísleifsdóttur Melsteð 1816-1858. Inniheldur ljóð og ræður.
Alls 32 bls, auk kápu.
Úgáfuár óþekkt.

Páll Ólafsson skáld

Kvekarar

Útgefið rit í stærðinni 17,4 x 10,7 cm.
Kvekarar fyrirlestur eftir Klemens Guðmundsson Bólstaðarhlíð.
Reykjavík 1932. Prentsmiðjan Acta hf.
Alls 46 bls, auk kápu.
Úgáfuár óþekkt.

Klemenz Guðmundsson (1892-1986)

Páll Briem

Bæklingur í stærðinni 21,4 x 13 cm.
Páll Briem. Óljóst hvort að það er heiti heftisins þar sem titilblað vantar.
Alls 12 bls., auk kápu.

Sálin hans Jóns míns ríma

Bæklingur í stærðinni 18,1 x 12,5 cm.
Sálin hans Jóns míns. Ríma.
Eftir Pétur Jakobsson. Þriðja útgáfa, aukin, endurbætt og ort án kenninga.
Prentað á kostnað höfundar Reykjavík 1953.
Alls 30 bls, auk kápu. Ástand ritsins er gott.
Alls 12 bls., auk kápu.

Pétur Jakobsson

Sjerprentun úr Lögrjettu

Skýrsla í stærðinni 21,5 x 14, 6 cm.
Sjerprentun úr Lögrjettu.
Stefnuskrá Landvarnarmanna eftir Jón Þorláksson.
Viðlagasjóður eftir Civis.
Ísafold á Suðurnesjum. Bjefkafli að sunnan.
Reykjavík. Prentsmiðjan Gutenberg. 1907.
Ritið er 16 bls að meðtalinni kápu.
Nokkuð skemmt af óhreindindum og upplitað.

Skólaminni

Bæklingur í stærðinni 19 x 11, 6 cm.
Skólaminni. Sungið á Blönduósi 12. maí 1902 á 25 ára hátíð kvennaskólans. Prentsmiðja Odds Björnssonar.
Fjórbrotinn bæklingur.
Skjalið er nokkuð skemmt af óhreindingum og sliti.

Stephan G. Stephansson

Hefti í stærðinni 25,5 x 13, 6 cm.
Stephan G. Stephansson.
Heftið er með kápu sem skreytt er gylltu skrauti og bundin á með satínborða.
Útgáfuár og útgefanda ekki getið, en ef til vill gefið út í tilefni af afmæli Stephans eða ártíð.
Inniheldur ljóð eftir skáldið.

Stephan G. Stephansson (1853-1927)

Straumar

Hefti í stærðinni 22,2 x 14,4 cm.
Straumar. Mánaðarrit um kristindóm og trúmál.

  1. árg. 5. tbl. Reykjavík 1929. Prentsmiðjan Acta.

Þáttur af Sólveigu Eiríksdóttur

Hefti í stærðinni 16,2 x 11,8 cm.
Heftið fjallar um Sólveigu Eiríksdóttur, sem hafði viðurnefnið Lúsa-Sólveig.
Útg. Fimmmenningarnir. Akureyri 1947. Prentsmiðja Odds Björnssonar.
Heftið er 40 bls., auk kápu.

Til onkel pa fodselsdagen den 24. juli 1969

Hefti í stærðinni 25 x 15,5 cm.
Hefti til heiðurs afmælisbarni.
Í heftinu eru vísur á dönsku. Auk þess ljósmyndir og teikningar.
Ritið er 12 bls, auk kápu.
Í minnismiða sem fylgir, með rithönd Hjalta Pálssonar, stendur: "Ingvard Sörense apótekari á Sauðárkróki. Myndir úr laxveiði eru úr Héraðsvatnaósi."

Um fógetagjörðir

Hefti í stærðinni 19 x 12 cm.
Heftið fjallar um þau embættisverk sem fógetar höfðu með höndum.
Eftir Kl(emens) Jónsson.
Akureyi, aðalumboðssala hjá Friðbirni Steinssyni. Prentað hjá Oddi Björnssyni 1903.
Ritið er 72 bls, auk kápu.