Sýnir 8 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Búnaðarfélag Akrahrepps Skjalaflokkar Enska
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Bókhald

Ársreikningar og öll þau bókhaldsgögn er koma að félaginu sett frá í ártalaröð nokkurn veginn eins og þau lágu í safni, elstu gögn neðst og yngstu efst. Hreinsuð af bréfaklemmum og heftum en nokkuð er um ryðbletti af þessu og gögnin eru viðkvæm með blettótt, rifinn blöð.

Dráttarvélagögn

Gögnin innihalda þá starfsemi er var í kringum dráttavél félagsins, traktors vinnustundir, viðgerðir og reikningar. Listi yfir kaupendur Freyr, erindi og bréf o.fr. Gögnin eru í misgóðu ástandi bæði ryðblettir og blöð trosnuð og annað heillegt en gögnin eru vel læsileg.

Búnaðarfélag Akrahrepps

Erindi og bréf

Bréfasafn félagssins sem barst á umræddum tímabili, gögnin eru í misjöfnu ástandi, sum léleg og er reynt að slétta úr blöðum á meðan önnur eru í betra ástandi. Hreinsað hefur verið úr gögnum bréfaklemmur og hefti og nokkuð er um ryð eftir það.

Búnaðarfélag Akrahrepps

Fundagjörðabók I Úrdráttur

Harðspjalda handskrifuð fundargjörðabók í góðu ástandi. Hún virðist vera nýlega skrifuð ( gæti verið Árni Bjarnasson sem skrifar ) upp úr gögnum gjörðabóka en í upphafi bókar sem hefur titil Úrdráttur úr fundargjörðum búnaðarfélags Akrahrepps og störf þess til 1892. eru skrifaðar upplýsingar er koma fram í eldri gögnum safnsins. Lítur út eins og verið sé að hreinskrifa upplýsingar.

Búnaðarfélag Akrahrepps

Fundagjörðabók II

Harðspjalda handskrifuð bók í nokkuð góðu ástand en eitthvað ryð inn við kjöl og blettóttar blaðsíður. Bókin segir frá fundagerðum og efnahag félagsins.

Búnaðarfélag Akrahrepps

Fundagjörðabók III

Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. Bókin er um fundargerðir og félagatal félagsins.

Búnaðarfélag Akrahrepps

Reikningabók

Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi og kápa er hulin með brúnum pappír sem á er prentað Geschaftsbucher, J-C- Köning & Ebhardt.
Á fremstu síðu er ritað, Búnaðarfélag Akrahrepps gamlir reikningar. Innfært Árni Bjarnasson. Svo trúlega hefur Árni fært í þessa bók reikninga og gjöld félagsins f´ra gögnum er liggja annar staðar í sama safni
Dagsetningar eru settar á gögnum frá 1890 - 1947. Undiritun annarra er sýnilega skrifuð af sama rita svo hér er líklegast um innfærslu Árna að ræða.

Búnaðarfélag Akrahrepps

Skýrslur og skrár

Pappírsgögn um fyrstu ár félagsins handskrifuð lög og fundagerðir. Gögnin látin halda sér eins og þau komu í safnið en reynt að rétta úr blöðum og hreinsa af ljósritum, heftum og bréfaklemmum.

Búnaðarfélag Akrahrepps