Showing 23 results

Archival descriptions
Stefana Guðbjörg Björnsdóttir: skjala- og ljósmyndasafn
Print preview Hierarchy View:

14 results with digital objects Show results with digital objects

Ljósmyndir

Í safninu eru 12 ljósmyndir af Stefáni, 1 skuggamynd og 2 myndir í myndarömmum - þær voru fjarlægðar úr römmunum. Önnur myndin var úrklippa úr blaði- eða tímariti. Hin myndin tekin á ljósmyndastofu og er (líklega) árituð af Stefáni, með dagsetningunni 5.12.1929 og er líklega tekin stuttu áður en hann fer utan til náms. Rammarnir eru varðveittir áfram í safninu. Flestar myndirnar eru af Stefáni í leikbúningum, einnig eru nokkrar ljósmyndir teknar á ljósmyndastofu. Skrifað er á bakhlið nokkurra ljósmyndanna sem allar eru varðveittar í plastvösum.
Stefáni í leikbúningum, einnig eru nokkrar ljósmyndir teknar á ljósmyndastofu. Skrifað er á bakhlið nokkurra ljósmyndanna sem eru varðveittar í plastvösum.

Skáldsaga: Betjent Bindle - Humorist

Skáldsaga eftir Herbert Jenkins sem er þýdd á dönsku og kallast "Betjent bindle - Humorist". Á forsíðu er handskrifað; "Stefán Guðmundsson Genova Ítalía". Neðan bókarheitisins er handskrifað "Þítt (þýtt) á vængjum söngsins svífur sálin glöð í friðar heim". Á næstu tveimur blaðsíðum er handritað nafn Stefáns, líkt og er á forsíðunni.

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir: skjala- og ljósmyndasafn

  • IS HSk N00497
  • Fonds
  • 1930-1970

Safn sem byggist á bréfaskrifum milli Stefönu við frænda hennar óperusöngvarann Stefán Íslandi, þau áttu í bréfaskrifum um 35 ára skeið eða frá því að hann fór utan til söngnáms í Genova á Ítalíu 1930 og allt til ársins 1965 er hann bjó og starfaði í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma nam Stefán og starfaði lengi á Ítalíu og svo síðar er hann hóf störf hjá Konunglegu óperunni í Kaupmannahöfn. Í safninu, auk sendibréfanna eru handskrifaðar jólakveðjur, nafnspjöld og skeyti. Einnig efnisskrá tónleika sem Stefán og Else Brehms héldu í Reykjavík ásamt undirleikaranum Fritz Weisshappel og skáldsaga sem er merkt Stefáni. Í safninu voru tveir myndarammar, í þeim voru tvær myndir - önnur þeirra pappírskópía var sett í viðeigandi plastvasa ásamt öðrum litmyndum sem voru í safninu. Hin myndin var úrklippa úr tímariti eða blaði með mynd af Stefáni, sú mynd var grisjuð úr safninu. Ákveðið var að halda myndarömmunum áfram í safninu.
Allt safnið er ágætlega varðveitt.

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir