- IS HSk N00525-C-A
- Subseries
- 1951-1959
Bréf og erindi sem eru að mestu leyti frá UMFí, UMSS, ÍSí. Um er að ræða fundagerðir, fundarboð, mótadagskrár og tilkynningar.
1 results with digital objects Show results with digital objects
Bréf og erindi sem eru að mestu leyti frá UMFí, UMSS, ÍSí. Um er að ræða fundagerðir, fundarboð, mótadagskrár og tilkynningar.
Bréf og erindi er varða starfsemi ungmennafélagsins, íþróttaiðkun og mótahald á vegum ÍSÍ, UMSS og UMFÍ. Reglugerðir, fundagerðir- og samþykktir, skráningar- og þátttökueyðublöð. Tveir bláir efnisbútar (sýnishorn) fyrir íþróttafatnað eru á meðal skjalanna.
Bréf og erindi er varða starfsemi ungmennafélagsins, íþróttaiðkun, funda- og mótahald á vegum ÍSÍ, UMSS, UMFÍ auk annara erinda.
Bréf og erindi er varða starfsemi ungmennafélagsins; íþróttaiðkun og mótahald á vegum ÍSÍ, UMSS, UMFÍ. Einnig fundargerðir og -boð, formleg erindi, orðsendingar og kynningarbréf.
Bréf og erindi er varða starfsemi ungmennafélagsins; íþróttaiðkun og mótahald á vegum ÍSÍ, UMSS, UMFÍ. Fundargerðir og -boð, breytingatillögur, þingskjöl, skráningar- og þátttökueyðublöð, kynningar á íþróttaviðburðum og reglugerðir.
Forprentaðar og handskrifaðar skýrslur um starfsemi ungmennafélaga, í safninu eru 11 skýrslur (U.M.F.Í) fyrir árin 1948-1959.
6 skýrslur til Í.S.Í. frá 1952-1959, skýrslur frá árinu 1953, 1954 og 1955 vantar inn í safnið. Ártal vantar á eina Í.S.Í skýrslu.
Forprentaðar og handskrifaðar ársskýrslur ungmennafélaga, pappírinn er í lit. Í safninu eru 8 útfyllt skýrsluform (Í.S.Í.) á gulum og grænum pappír, skýrslurnar eru frá árinu 1969-1979, inn í vantar skýrslur frá tímabilinu 1970, 1971 og 1976.
11 útfyllt skýrsluform frá 1961-1979, skýrslurnar eru frá 1961-1979, inn í vantar skýrslur frá tímabilinu 1963-1971 og 1976 - 1 skýrsla er án ártals.
í safninu eru 11 skýrslur (U.M.F.Í) fyrir árin 1948-1959.
6 skýrslur til Í.S.Í. frá 1952-1959, skýrslur frá árinu 1953, 1954 og 1955 vantar inn í safnið. Ártal vantar á eina Í.S.Í skýrslu.
Forprentaðar og handskrifaðar ársskýrslur ungmennafélaga frá tímabilinu sér skýrslur eru fyrir UMFÍ 1980-1983, og ÍSÍ 1980-1983. Skýrslurnar eru allar á lituðum pappír (bláar, gular, bleikar og grænar). Skýrslur 1984-1991 eru sameiginlega fyrir ÍSÍ og UMFÍ.
Ársskýrslur Ungmennasambands Skagafjarðar frá 1967-1975 (skýrslur frá 1968, 1970 og 1972 vantar inn í). 3 fundagerðir frá ársþingi UMSS 1972, 1973 og 1977 eru auk þess í safninu.
7 ársskýrslur Ungmennasambands Skagafjarðar frá 1981-1989, inn í safnið vantar skýrslur frá 1984 og 1988. Skýrslurnar eru í A4 og A5 broti. Fundargerðir, breytingatillögur á lögum UMSS (1988), efnahags- og rekstrarreikningur UMSS, ásamt þingskjölum og reglugerð fyrir kjör íþróttamanns Skagafjarðar er ásamt skýrslunum. Efnahagsreikningur UMSS fyrir árið 1987 er í safninu, það kallast" Hallarekstrargróðavonartalnaleikur" UMSS
Útprentaðar, fjölfaldaðar og innbundnar skýrslur Ungmennasambands Skagafjarðar frá 1990-1995 og 1 þinggerð vegna ársþings UMSS 1991.
Auglýsingabæklingar og -spjöld, reglugerð um íþróttamerki ÍSÍ og nafnspjald frá UMFÍ,
1 innbundin og handskrifuð bók, í bókinni var bókhaldshefti með dagbókarfærslum, ákveðið að skrá heftið eitt og sér.
Erindrekstur ÍSÍ á Norðurlandi 1977
Fjölfölduð skýrsla með samantekt um starf íþróttahreyfingarinnar á Norðurlandi.
Forprentaðar og óútfylltar árs- og kennsluskýrslur ungmennasambanda, skráningar- og eyðublöð
Nýjustu eyðublaðaformin voru prentuð á bæði á hvítum og lituðum pappír. Félaga- og iðkendatal er í tvíriti.
Í heftið eru færðar inn bókhaldsfærslur frá 1968-1975 ásamt efnahags- og rekstrareikningum (aukablöð eru heftuð við sumar blaðsíðurnar).
Færslubók bókhalds frá 1976-1979, ásamt efnahags- og rekstrareikningum.
Handskrifuð, vélrituð og útprentuð pappírsgögn. Félagatal U.M.F. Framfarar frá 1951-1978, skrá yfir heiðursfélaga og félagatal eftir bæjum. Í safninu eru einnig listar yfir kjörgengna félaga á aðalfundi U.M.S.S.
Félagsheimilið Árgarður 1993-1994
Pappírsgögn sem tengjast Félagsheimilinu Árgarði. Ljósrit af rekstar- og efnahagsreikningi, einnig eru 2 rúðustrikuð blöð í A4 broti með virðisaukauppgjöri vegna reksturs félagsheimilisins.
Fréttabréf sem gefin voru út af UMSS.
Handskrifaðar fundargerðir og minnispunktar frá fundum á línustrikuð lausblöð sem tengjast að miklu leyti ákvörðunartöku um byggingu félagsheimilis á Steinsstöðum og umræður um land undir fyrirhugaða byggingu. Nokkuð er um að vanti dagsetningar á fundargerðirnar. Vélrituð fundargerð frá árinu 1974, dagskrá aðalfundar 1975 og tilmæli til aðalfundar ungmennafélagsins vegna skiptingu eignahluta í Félagsheimilinu Árgarði.
Fundagerðir, skýrslur og félagatal
2 innbundnar bækur sem innihalda fundagerðir U.M.F. Framfarar (1951-1974), lög og félagatal (1941-1988) og pappírsgögn með félagaskrám (1951-1993).
Handskrifaðar fundagerðir hjá U.M.f Framför frá 1951-1974.
Kvittanir fyrir greiðslum, skuldalisti félagsins, iðgjaldskvittun og rekstrarreikningar UMF Framför 1948 og 1949.
Kvittanir og reikningar merktir með fylgiskjalanúmerum, rekstrar- og efnahagsreikningar félagsins.
Fylgiskjöl bókhalds með fylgiskjalsnúmerum. Kvittanir, reikningar, yfirlit og skrá yfir selda happadrættismiða, kvittanahefti og önnur bókhaldsgögn.
Fylgigögn bókhalds með fylgiskjalanúmerum. Kvittanir, notað ávísanahefti, reikningsyfirlit, reiknivélastrimlar, minnispunktar og fleira. í safninu eru 2 innistæðubækur hjá Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga - báðar eru í umslagi sem er merkt með fylgiskjalsnúmeri.
Fylgigögn bókhalds með fylgiskjalanúmerum. Kvittanir í tvíriti, tölvuútprentaðir hreyfingalisti, einnig efnahags- og rekstrarreikningar ungmennafélagsins og Félagsheimilisins Árgarðs. Greiðslukvittanir sem búið var að gera fyrir árgjöld félagsins fyrir árin 1987 og 1988 voru sett á meðal fylgigagnanna - sumar þeirra eru enn í tvíriti.
Fylgigögn bókhalds. Kvittanir og rekstrarreikningur félagsins fyrir árið 1991, einnig efnahags- og rekstrarreikningur fyrir íþróttavöll UMF Framfarar. 1 tékkhefti frá Búnaðarbanka Íslands var sett á meðal skjalanna.
Á kápu bókarinnar stendur "Höfuðbók", í bókina eru færðar tekju- og gjaldareikningar auk rekstrar- og efnahagsreikninga U.M.f Framfarar, einnig er rekstraryfirlit fyrir sundlaugar- og félagsheimilasjóðs félagsins. Inni í bókinni var færslubók bókhalds frá 1968-1975, ákveðið var að skrá þá bók sérstaklega.
Þimm stílabók með límborða á kjölnum. Aðeins 1 færsla frá 01.01.1964 er skráð í bókina.
Innistæðu- og viðskiptabækur 1961-1989
5 innláns- og viðskiptabækur UMF Framfarar hjá Sparisjóði Sauðárkróks, innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga og Búnaðarbanka Íslands. Bækurnar eru merktar byggingarsjóði, sundlaugarsjóði og Ungmennafélaginu Framför. Einning er kvittun fyrir innlögn í sundlaugarsjóðinn og kvittun fyrir uppsögn á sama reikningi. Geymslukvittun fyrir innlánsbók úr Búnaðarbankanum er í sparibók búnaðarbankans.
6 kvittanahefti í tvíriti (með kalkipappír) til staðfestingar fyrir greiðslu á félagsgjöldum. Heftin eru flest notuð. Í einu heftinu er blað með félagatali eftir bæjum í Lýtingsstaðahreppi.
Kvittanir í frum- og afriti með staðfestingu á greiðslu félagsgjalds ásamt reiknivélastrimlum.
Landshlaup Frjálsíþróttasambands Íslands 1979
Þátttakendur Ungmennafélagsins Framfarar í Landshlaupi F.R.Í. árið 1979.
Í bókina eru skráð lög félagsins (án ártals og dagsetningu - gæti líklega verið frá 1941) ásamt lagabreytingar sem gerðar voru 1975 og 1979. Einnig skrá yfir heiðursfélaga og félagatal frá 1941-1988.
Í bókina er handskrifaðir tekju- og gjaldaliðir UMF Framfarar.
Mótaúrslit í sundi og frjálsíþróttum.
Yfirlit yfir úrslit frjálsíþrótta- og sundmóta sem haldin voru í Skagafirði.
Yfirlit yfir úrslit frjálsíþrótta- og sundmóta sem haldin voru í Skagafirði.
Yfirlit yfir úrslit frjálsíþrótta- og sundmóta haldin í Skagafirði.
Sértæk mál, Félagsheimilið Árgarður
Skjöl og samningar er varða byggingu Félagsheimilisins Árgarðs. Loforð um vinnuframlag eða fjármagn fyrir bygginguna, umsókn um styrk úr félagsheimilasjóði, skýrsla um fjármögnun og samningur um byggingu Árgarðs, afrit af samkomulagi um heitavatnsréttindi á Steinsstöðum. 3 ljósrit með gjaldskrá fyrir Félagsheimilið Árgarð, reglur og tillaga húsnefndar um störf húsvarðar.
Sértæk mál, heimavistaskóli á Steinsstöðum
Vélritaður samningur og handskrifað uppkast um eftirgjöf Umf Framfarar um lands- og vatnsréttindi á Steinsstöðum.
Sértæk mál, Íþróttavöllur á Steinsstöðum
Erindi og uppdráttur og skýringamyndir af umhverfi Steinsstaða frá verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens vegna fyrirhugðarar uppbyggingu á knattspyrnu- eða íþróttavölls á Steinsstöðum og fjölrit um slíka framkvæmd. Einnig er styrkbeiðni frá félaginu og bréfasamskipti á milli hreppsnefndar Lýtingsstaðarhrepps og stjórnar Umf. Framfarar um lagningu rotþróar í landi félagsins ásamt uppdrætti. 2 nafnspjöld eru á meðal skjalanna.
Sértæk mál, Sundlaugin á Steinsstöðum
Pappírsgögn er varða byggingu sundlaugar á Steinsstöðum. Þar á meðal er erindi frá hreppsnefnd Lýtingsstaðarhrepps til Umf. Framfarar og Trefjaplasti þess efnis. 1 formlegt erindi frá oddvita Lýtingsstaðarhrepps vegna afnotar á gömlu sundlauginni.
Handskrifaðar og vélritaðar heillaóskir í tilefni 70 ára afmælis Umf Framfarar.
Handskrifaðar og útprentaðar skýrslur formanna UMF Framfarar einnig afrit af erindum stjórnar ungmennafélagsins til UMSS
Ungmennafélagið Framför: skjalasafn
Safn sem afhent var af Mörtu Maríu Friðþjófsdóttur sem hafði umsjón með Félagsheimilinu Árgarð þegar afheningin fór fram, skjalamyndarar voru formenn Ungmennafélagsins Framfarar tímabilið 1941-1999. Safnið voru alls 9 öskjur og samanstóð af innbundnum fundagerðarbókum, höfuð- og færslubókum. 1 ljósmynd var í safninu, hún var skönnuð inn og tengd við safnið undir almenn erindi og bréf. Mikið af forprentuðum og handskrifuðum skýrslum, eyðublöðum, einnig vélrituðum og útprentuðum skjölum. Mikið safn af fylgigögnum bókhalds voru varðveitt í gömlum umslögum og var það safn gróflega flokkað og umslögin grisjuð úr safninu.
Talsvert er af skjölum er varða fyrirhuguðum byggingaframkvæmdum á félagsheimilinu Árgarði, sundlauginni og gögn er varða uppbyggingu á íþróttavelli á Steinsstöðum. Erindi og bréf frá ÍSÍ, UMFÍ og sérstaklega frá UMSS um íþróttamót, fundi og annað því tengt.
Grisjað var úr safninu tvítök, auglýsingabæklingar, handbækur frá utanaðkomandi félögum og samtökum.
Umslög, skýrsluform, auð blöð, ársskýrslur UMSS 1982-83 og 89, félagatal og tilkynning til félaga.
Listi yfir aðstandendur nemenda Réttarholtsskóla var fjarlægt, hluti af fréttabréfi UMSS 2. tbl.1991 á því voru bankaupplýsingar einstaklings. Launatöflur, 3 plastkilir og plastvasi í A4 stærð.
Ungmennafélagið Framför (1905-)