Bréf frá vinkonu Indíönu, Herdísi Bjarnadóttur. Skrifar undir Dísa. Á umslaginu er skrifað nafn Guðbrandar Frímannssonar, Fornósi 13 (minnispunktur eða að hann hafi komið bréfinu uppeftir). Á bakhlið umslags eru skrif sem gæti verið vísa.
Bréf frá vinkonu Indíönu, Herdísi Bjarnadóttur. Skrifar undir Dísa Bjarnadóttir. Bréfið var skrifað í júlí 1993. Meðfylgjandi er lítill miði, kveðja frá... (illskiljanlegt nafn).
2 jólakort. Skrifar undir V. Gunnfríð Ægisdóttir. Líklega er um að ræða Gunnfríði Vilhelmínu Ægisdóttur. Í öðru kortinu nefnir hún tvær frænkur sínar, Líneyju og Addí
Bréfið er líklega skrifað árið 1994. Hulda gæti verið Hulda Arnbjörg Vilhjálmsdóttir. Í bréfinu nefnir hún dóttur sína, Önnu Lind og kærasta, Jonna. Einnig er minnst á Hönnu, móður Jonna.
Á myndinni eru hjónin Halldór Kristinsson málari (kallaður Gósi málari) og Björg Pálína Jóhannsdóttir. Barnið er Kristinn Halldórsson. Þau bjuggu á Siglufirði. Halldór var ættaður frá Vestara-Hóli í Fljótum.