Heimilisfólk á Skottastöðum. Halldór Jóhannsson (1895-1982) situr við borð. Gaflveggurinn og veggurinn undir skarsúðinni eru tajaldaðir og skrýddir síðum úr blaði í bók. Á hillu má m.a. sjá saumavél og fjölskyldumyndir.
Borgin Stettin eða Szczecin var eitt sinn í Þýskalandi en eftir seinni heimsstyrjöldina tilheyrði hún Póllandi. Myndin er af Altes Rathaus (gamla ráðhúsið) við Heymarkt. Húsið er byggt úr rauðum múrstein í gothic stíl. Talið hafa verið byggt á 15. öld. Húsið er það eina sem eftir er af Stettin Altstadt (Gamla bænum) sem var eyðilagður að mestu árið 1945. Upphaflega hét húsið Neues Rathaus (Nýja ráðhúsið) því það kom í staðinn fyrir gamalt ráðhús á sama stað. Mun stærra ráðhús var byggt annars staðar 1869. Altes Rathaus skemmdist í seinni heimsstyrjöldinni en var endurgert árið 1968. Nú er að finna í húsinu veitingastað og safn.
Heimilisfólk í Vatnsdal í Fljótshlíð ásamt Ólafi Túbals. F.v. Ágúst Þór Guðjónsson - Guðlaug Guðjónsdóttir - Þuríður Guðrún Vigfúsdóttir - Ólafur Túbals - Guðjón Úlfarsson - Úlfar Guðjónsson. Local Caption Sjá nánar: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 79
Svana Theodórsdóttir (1922-1994) og Skúli Theódórsson (1925) í anddyrinu á Keldnabænum. Bak við Svönu eru dyrnar að Skálanum og sér þar í gamalt kirkjualtari. Til hægri sést í Saltkistuna fyrir gróft salt - en til vinstri er Stóra kistan. Í henni var geymt ómalað korn. Sjá nánar: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 87.
Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði. Horft af bæjarhúsunum til suðurs fram Hörgárdal. Möðruvellir í fjarlægð og Hörgárdalsfjöllin í baksýn (frá vinstri: Strýta - Vindheimaöxl - Bægisárhnjúkur - Þverbrekkuhnjúkur - Drangafjall - Grjótárhnjúkur og rétt sést í Lönguhlíðarfjall. Lengst til vinstri sér í norðurstafninn á Framhúsinu.
Danska konungsskipið við Sprengisand í Reykjavíkurhöfn. Konungur á leið um borð í snekkju sína eftir veislu á Hótel borg. Bryggjan er skreytt í tilefni konungskomunar.
Uppdrættir af tveimur torfbæjum; Skottastöðum og Eiríksstöðum í Svartárdal. Hjá uppdrættinum af Eiríksstöðum kemur fram ártalið 1935 og líklega eru allir uppdrættirnir gerðir á því ári.