Bæjarmynd þar sem horft er yfir á/ vatn. Staðsetning er sennilega Reykjavík - þar sem horft er yfir Elliðárdalinn á Breiðholt. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Landslagsmynd þar sem stígur liggur eftir hlíð og í bakgrunni má sjá flatlendi og og svo bláleit fjöll - mögulega Blönduhlíðarfjöll í Skagafirði. Myndin er teiknuð á blátt blað. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Landslagsmynd þar sem forgrunnurinn er gráleitur - miðja hennar grænleit og fjöll með fjólubláum útlínum í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Mynd af hópi fólks/barna við tjörn. Fimm þeirra eru í kjólum - ýmist að hlaupa að tjörninni eða huga að tveimur svönum í vatninu. Einn af þeim er klæddur í buxum og fylgist með. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Horft úr Breiðholti yfir Reykjavík - Sundahöfn og Viðey. Á götunni er bíll og fjórir hjólreiðamenn. Í bakgrunni má sjá Akrafjall og Esjuna. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Mynd af húsaþyrpingu við sjávarsíðuna - óvíst hvar - mögulega Bolungavík. Í bakgrunni er hátt fjall en í forgrunni eru tveir hrafnar. Myndin gæti verið frá 1975-1985.
Til hægri á myndinni má sjá traktor og í bakgrunni má sjá húsaþyrpingu og sennilega einhverskonar iðnaðarhúsnæði. Staðsetning ókunn en líklega í einhverju iðnaðarhverfi. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Myndefnið er óljóst en krani er fyrir miðju myndar til vinstri og í bakgrunni má sjá húsaþyrpingu. Staðsetning ókunn en líklega í einhverju iðnaðarhverfi. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af nokkrum húsum við götu og í forgrunni er tré. Myndin nær ekki yfir allt blaðið heldur er hægri og efri hliðin auð og myndin afmörkuð með svörtu striki. Myndin gæti verið frá 1955-1965.
Skissa af hesti í forgrunni til hægri og í bakgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir myndina og handan við hana er lítið hús. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af víking með hjálm og skjöld. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Mynd af vegi sem liggur af brú sem er til hægri fyrir miðju myndar - upp hæð að vinstra efra horni. Á veginum eru fjórir ljósastaurar. Í forgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir mynd og undir brúnna til hægri. Til vinstri eru hús. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Myndefnið er fremur óljóst. Á myndinni er akur og fyrir miðju má greina hús. Í forgrunni er líklega grjót (mögulega hestur). Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Bæjarmynd þar sem horft er yfir húsþök og fyrir miðju myndar má sjá kirkjuturn. Staðsetning ókunn - mögulega í Hafnafirði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Skissa af bát sem liggur á fjöru við hliðiná húsi/skúr. Þar sem smá sót er á bakhlið myndarinnar er hún líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Skissa af hestum við hús. Myndin er fremur óljós en tveir hestana eru áberandi í forgrunni ofg byggingar í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af bíl sem ekur eftir götu í fjölbýli - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Myndefni er óljóst en virðist vera kyrralífsmynd þar sem flaska er í forgrunni. Á hinni hlið myndar er gróf skissa af hestum á beit í haga. Myndin gæti verið frá 1950-1960.
Kyrralífsmynd af tveimur perum á borði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Óklárað málverk með húsi/kofa í forgrunni en fjöll í bakgrunni - líklega Blönduhlíðarfjöll í Skagafirði. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Landslagsmynd þar sem virðist vera flatlendi í forgrunni en fjall í bakgrunni - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Óklárað málverk af götu - líklega í Þingholtunum í Reykjavík. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.