Skissa af húsum á Sauðárkróki - í bakgrunni má sjá Nafirnar. Myndin var límd á papparamma sem á stóð: „Frá Sauðárkróki“. Myndin gæti verið frá 1945-1955.
Andlitsmynd af rosknum manni með alskegg. Myndin var límd á pappír og á honum stóð: „Björn í bakaríinu“ og „Jóh Geir“. Myndin gæti verið frá 1945-1955.
Óklárað auglýsingaspjald fyrir skyndibitastað. Á myndinni stendur: „Hamborgarar“ og „franskar kartöflur“. Auglýsinguna hefur hann gert þegar hann starfaði á auglýsingastofu Stefáns Jónssonar - bróður Jóh.Geirs - á tímabilinu 1945-1955.
Auglýsingaspjald fyrir jólakort með myndum eftir Jóh.Geir. Á myndinni stendur: „Icelandic X-mas cards“ og „for sale at the hotel“. Auglýsingaspjaldið gæti verið frá 1945-1955.
Málverk af þremur manneskjum standa hjá hesti - í bakgrunni má sjá byggingar - líklegast í Reykjavík. Í bakgrunni er sólroðin himinn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Óklárað málverk af tveimur manneskjum ásamt barni ganga eftir vegi í landslagi. Í bakgrunni eru bláleit fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Dökkleit landslagsmynd - með ljósu fjalli og örlítið gulleitann himinn. Myndin virðist vera máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Málverk af því þar sem horft er yfir þök og þar á meðal má sjá kirkjuturn - óvíst hvar - mögulega í Hafnafirði. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Óklárað málverk af tveimur manneskjum hjóla á frostnu Elliðárlóninu. Byggingar í Breiðholtinu má sjá í bakgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Dökkleit landslagsmynd - óvíst hvar en líklega í Skagafirði þar sem fjöllin í bakrunni líkjast Blönduhlíðarfjöllum. Þar sem sót er á bakhlið blaðsins má gera ráð fyrir því að hún sé frá því um eða fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Mynd af bátum á landi - annar á hvolfi - óvíst hvar - mögulega við Ægissíðu. Tvær gæsir eru í forgrunni og tveir skúrar í bakrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Mynd af bát á landi við litla bryggju - óvíst hvar. Í bakrunni má sjá fjall handan við fjörð - mögulega Akrafjall. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Myndefnið er vegur sem hlykkjast í gegnum landslag - með tveimur húsum sitthvorum megin vegar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Á myndinni eru fjórir hestar sem standa utan við hús sem sést á vinstri hlið. Tveir hestarnir er dökkir - einn þeirra ljós og einn rauður í forgrunni. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1985.
Mynd af lítilli kirkju - óvíst hvar en sennilega við sjávarsíðuna þar sem í forgrunni liggur bátur á hvolfi á jörðinni. Á myndinni er einnig áberandi staur (sama myndefni og er á JG 57). Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970. Mynd vantar í safn.
Mynd af vegi sem hlykkjast í gengum hæðótt landslag - hverfur fyrir miðju myndar og birtist svo á ný við efra hægra horn myndar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Landslagsmynd úr Skagafirði. Í forgrunni erru strá og sandur - svo kemur gulleitt haf. Í bakgrunni má sjá Drangey og Málmey. Myndin gæti verið frá 1955-1965.
Þrjár skissur eru á spjaldi. Tvær þeirra eru samskonar - þar sem maður situr álútur á stól með hendur í skauti sér. (Þetta er mögulega æfingarskissa af Jónasi Svafár.) Þriðja myndin er sýnilega yngri en hinar þar sem hún er að hluta til skissuð yfir höfuð mannsins á einni myndinni. Þar er maður að framkvæma eitthvað eða við e.k. iðn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Auglýsingaspjald af manni á Sauðárkróki. Í bakgrunni má sjá kirkjuna í gamla bænum. Á spjaldinu stendur „Glampar á götu. [...?]“ Samskonar mynd er á forsíðu bókarinnar Glampar í götu eftir Björn Jónsson læknir - bróður Jóh.Geirs. Bókin kom út árið 1989 og er myndin því líklegast frá því um eða fyrir þann tíma.
Skissa af hestum innan gerðis við tvenn lítil hús. Í bakgrunni er Esjan og miðað við sjónarhornið á fjallið er staðsetningin líklegast í Mosfellsbæ. Myndin gæti verið frá 1970-1980.
Málverk af sólinni skína yfir því sem virðist vera þrír skúrar - óvíst hvar. Myndin virðist vera máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Málverk af manni ásamt hesti í landslagi að nóttu til. Bjarma má sjá handan við hæð - óvíst hvort hann sé frá sólsetri/sólarupprás eða einhverju öðru. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.