Auglýsingaspjald fyrir ísbúð - þar sem mynd er af ísvél og nokkrir litlir ísar. Á myndinni stendur: „Whirla Whip“ og „20 bragðefni“. Auglýsinguna hefur hann líklega gert þegar hann starfaði á auglýsingastofu Stefáns Jónssonar - bróður Jóh.Geirs - á tímabilinu 1945-1955.
Auglýsingaspjald fyrir ísbúð - þar sem mynd er af ísvél og stórum og litlum ís. Á myndinni stendur: „Whirla Whip“ og „20 bragðefni“. Auglýsinguna hefur hann líklega gert þegar hann starfaði á auglýsingastofu Stefáns Jónssonar - bróður Jóh.Geirs - á tímabilinu 1945-1955.
Auglýsingaspjald fyrir ísbúðina Ísborg - þar sem mynd er af stúlku sleikja ís með súkkulaði dýfu. Á myndinni stendur: „Ísborg“ - „Súkkulaði dýfa“ og „(Chocolate - dip)“. Auglýsinguna hefur hann líklega gert þegar hann starfaði á auglýsingastofu Stefáns Jónssonar - bróður Jóh.Geirs - á tímabilinu 1945-1955.
Málverk af landslagi með veg í forgrunni og fjall í bakgrunni - óvíst hvar. Myndin er líklega máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Landslagsmynd með dökkann forgrunn en ljós snæviþakin fjöll í bakgrunni - óvíst hvar. Myndin er líklega máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1970-1980.
Málverk af bátum í fjöru - í bakgrunni er einhverskonar hrúgur sem virðist vera búið að tjalda yfir - mögulega nethrúgur. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.
Óklárað málverk af staurum í landslagi. Í forgrunni má sjá snjó leysa í jörðu og í bakgrunni er djúpblár himinn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1970-1980.
Óklárað málverk af krökkum á leið upp Nafirnar á Sauðárkróki með flugdreka - neðst til vinstri má sjá Sauðárkrókskirkju. Myndin er líklega máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1970-1980.
Málverk af bíl keyra niður götu í Reykjavíkurborg - mögulega Bankastræti. Í bakgrunni má sjá það sem virðist vera Landakotskirkja. Myndin virðist vera máluð með spaða. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Óklárað málverk af útför. Sjónarhornið er hluti af líkfylgd. Sauðárkrókskirkja sést fyrir neðan nafirnar. Myndin var á trönunum þegar Jóh.Geir lést árið 2003 og hefur því líklegast verið síðasta málverkið sem hann vann í.
Ókláruð landslagsmynd - óvíst hvar - mögulega í Skagafirði. Í forgrunni sést gróður og mögulega klappir - fyrir miðju eru grænar og gulleitar grundir og í bakgrunni eru bleik fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Óklárað málverk af Elliðárvirkjun. Í forgrunni er manneskja á gangi eftir göngustíg en í bakgrunni má sjá Reykjarvíkurborg - ásamt Borgarspítalanum. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Ókláruð landslagsmynd - óvíst hvar. Í forgrunni má sjá mann á hjóli - fyrir miðju er vatn/fjörður og í bakgrunni eru fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Óklárað málverk af hestum á beit í haga - óvíst hvar. Í bakgrunni má sjá sveitabæ og handan við fjörðinn má sjá fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Ókláruð landslagsmynd af dökkleitu landslagi - óvíst hvar mögulega Heiðmörk. Í bakgrunni má sjá fjall sem gæti verið Esjan. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.
Óklárað málverk af tveimur hestum á beit í haga - líklega í grennd við höfuðborgina. Í bakgrunni má sjá rafmagnsstaura og fjölda bygginga. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1985-1995.
Ókláruð landslagsmynd - líklega frá Skagafirði. Í forgrunni má sjá runngróður en í bakgrunni eru fjöll - líklega Blönduhlíðarfjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Óklárað málverk af óljósu myndefni - mögulega húsaþök í bæ/borg að nóttu til.Myndin er mjög dökkleit. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Myndefnið menn með hesta við kláfferjuna á Jökulsá eystri í Skagafirði (JGJ - 1985 - bls. 77). Myndin var skissuð í leiðangri árið 1982 til að gera kvikmynd um Daniel Bruun. Myndin er því líklega frá því um 1982.
Auglýsingaspjald þar sem þrenn jólakort með myndum eftir Jóh.Geir hafa verið límd á og þar fyrir ofan stendur: „Íslensku jólakortin!“ efst. Auglýsingaspjaldið gæti verið frá 1950-1960.
Mynd af skipi í höfn. Í forgrunni er bílar og fólk við ýmsar athafnir. Í bakgrunni má sjá Esjuna. Fyrir neðan myndina stendur: „Gleðileg Jól!““. Myndin gæti verið frá 1945-1955.
Skissa af bíl sem ekur eftir götu í fjölbýli - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Mynd af vegi sem liggur af brú sem er til hægri fyrir miðju myndar - upp hæð að vinstra efra horni. Á veginum eru fjórir ljósastaurar. Í forgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir mynd og undir brúnna til hægri. Til vinstri eru hús. Myndin gæti verið frá 1960-1970.
Skissa af hesti í forgrunni til hægri og í bakgrunni má sjá á sem rennur þvert yfir myndina og handan við hana er lítið hús. Myndin gæti verið frá 1965-1975.
Skissa af húsaröð og í forgrunni er tré. Myndin er ekki teiknuð á hluta blaðsins og hægri hliðin því auð. Þar virðist hafa orðið vatnsskemmdir sem myndar sérkennilegt munstur. Myndin gæti verið frá 1960-1970.