Ný prentvél tekin í notkun hjá "Hvítt og svart" haustið 1999. Frá hægri Ágúst Kárason, Sigríður Björg Gísladóttir, Reynir Kárason, Hjalti Pálsson og Sigurlaugur Elíasson.
Þorrablót í heita pottinum í Sundlauginni á Króknum. Frá vinstri, Ingimar Hólm (1940-), Pétur Valdimarsson (1950-), Hallgrímur Þór Ingólfsson (1946-) og Þórhallur Þorvaldsson (1949-).
Ungmennafélaugin Smári og Tindastóll stóðu fyrir álfadansi á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í janúar 2000. Álfakóngur var Valgeir Bjarnason og drottning Hjördís Tóbíasdóttir. T.v. sitja Sigríður Hjálmarsdóttir og Jón Hallsson. Aðrir óþekktir.
Tilgáta verið að veita verðlaun fyrir boccia. Þekkja má f.v Ingu Valdísi Tómasdóttur, óþekktur drengur, Friðrik Jónsson og Magnús Jónasson. Aðrir óþekktir.
Frá opnun á endurhæfingarstöðinni á Sauðárkróki í deaember 2000. Karlarnir sem næstir eru f.v. Friðrik J. Friðriksson læknir, Bjarni Haraldsson, Björn Björnsson skólastjóri, Ingi Friðbjörnsson og Kristján Möller þingmaður.
Gústav Geir Bollason (1966-) við opnun myndlistarsýningar sinnar í Safnahúsinu á Sauðárkróki vorið 1999. Með honum er Veronigue Anne G. Legros (1969-) frá Belgíu.
Ráðstefna um jarðhita í Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki haustið 1999. Fremstir f.v. óþekktur, Hjálmar Árnason (1950-), Pétur Einarsson (1946-) og Guðni Ágústsson (1949-).