Listinn er handskrifaður á 19 pappírsarkir í A5 stærð. Munirnir eru númeraðir og listinn sundurliðaður eftir hvar þeir eru staðsettir í torfbænum. Ryðskemmdir eftir hefti eru efst á blöðunum.
Sýningaskráin er ljósrituð á tvær pappirsarkir í A4 stærð, aðra hvíta og hina græna. Fremst er uppdráttur af torfbænum í Glaumbæ og innan í lýsingar á hverju rými fyrir sig. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er handskrifaður á pappírsörk í A5 stærð. Yfirskrift hans er "munir ekki keyptir nú en fást ef ti lvil-ef nóg er boðið." Listaðir eru upp munir á Gilsbakka og Stekkjarflötum. Ástand skjalsins er gott.
Skýrsla er tölvuprentuð á 5 pappírsarkir í A4 stærð. Hún fjallar um starfsemi safnsins árið 2004. Höfundur er Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri. Ástand skjalsins er gott.
1 ljósmynd í stærðinni 15,4 x 11,2 cm. Á myndinni má sjá kistu með beinum Miklabæjar-Sólveigar, áður en þau voru greftruð í Glaumbæjarkirkjugarði. Aftan á myndina er ritað: "Kista með beinum Miklabæjar-Sólveigar í Miklabæjarkirkju fyrripart júlí mánaðar 1937. Þau voru jarðsett af sr. Lárusi Arnórssyni í glaumbæ sunnudaginn 11. júlí 1937." Ástand myndarinnar er gott.
Samkomulagið er 1 pappírsörk í A4 stærð. Það kveður á um afnot af húsum jarðarinnar Tyrfingsstaða á Kjálka til námskeiðahalda fyrir gamalt handverk í torf-og grjóthleðslu og járnsmíðum. Ástand skjalsins er gott.
Samningurinn er 1 pappírsörk í A4 stærð. Með liggur samhljóða samningur á íslensku. Hann kveður á um samvinnu milli Vesturfarasetursins á Hofsósi, Byggðasafns Skagfirðing aog The New Iceland Herritage Museum í Gimli.
Samningurinn er 1 pappírsörk í A4 stærð. Hann kveður á um samstarf milli Byggðasafns Skagfirðinga, Vesturfarasetursins og Icelandic Assosiation of Utah Inc. Ástand skjalsins er gott.