Innbundin og handskrifðuð bók með línustrikuðum síðum, í bókinni eru bókhaldsfærslur frá 1935-1948, ekki nema hluti af bókinni er nýttur fyrir reikningshalds, mikið er af auðum blaðsíðum. Bókin er með límborða á kjölnum og er ágætlega varðveitt.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin hefur varðveist ágætlega og mikið af blaðsíðum bókarinnar eru óskrifaðar. Í bókinni eru laus blöð, línustrikuð með handskrifuðum fundagerðum, dags, 4.1.1962 og 1.1.1971.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin vel læsileg og inniheldur lög og nafnaskrá yfir félagsmenn og konur. Bókin hefur varðveist sæmilega.
Gögn Ungmennafélags Holtshrepps, Fljótum í Skagafirði, frá 1919 til 1971. Í safninu eru alls sex bækur, fjórar fundagerðabækur, frá 1919 - 1964, ein bók með efnahagsreikningum félagsins, fyrir tímabilið 1935-1948 og bók með félagatali og lögum félagsins, dags.1919 - 1949.