Sigurður Egilsson tekur viðtal við Jón Eðvald Guðmundsson frá Sauðárkróki. Jón segir frá æsku og uppvexti á Hryggjum í Gönguskörðum og Sauðá. Einnig rætt um sjósókn, m.a. vertíð á Drangeyjarfjöru og sigi í Drangey. Fer með vísur eftir sjálfan sig, Friðrik Jónsson og Friðrik Hansen og segir frá samferðafólki sínu á Sauðárkróki. Rætt um Jón Pálma og seðlafölsunarmálið. Viðtalið tekið í Reykjavík - nóvember 1970.
Sigurður Egilsson tekur viðtal við Þorbjörn Björnsson frá Geitaskarði. Þorbjörn segir honum m.a. frá kraftaskáldinu Sigurði á Steini. Einnig ræða þeir trúmál o.fl.
Sigurður tekur viðtal við Hermann Jón Stefánsson frá Ánastöðum. Hann segir frá æsku og uppvexti í Efra-Lýtingsstaðakoti. Einnig rætt um búskap Hermanns og horfur í landbúnaði. Þá er sagt frá ferð yfir Héraðsvötn á hestum.
Viðtal við Magnús K. Gíslason frá Vöglum, tekið í ágúst 1969. M.a. rætt um búfræðinám hans, búskap á Vöglum, kveðskap o.fl. Einnig um trúmál og kirkjusókn. Þa er rætt um framtíðarsýn og lífsskoðun viðmælanda. Magnús ræðir einnig um samtíðarmenn. Sigurður Egilsson tekur fyrri hluta viðtalsins en í seinni hlutanum er annar spyrill, Hannes Pétursson.
Viðtöl við Harald Jónasson frá Völlum, tekið júní 1969. Rætt um félagsstörf Haraldar og samtíðamenn. Haraldur gekk í Unglingaskólann í Vík og gagnfræðaskólann á Akureyri.
Sigurður Egilsson tekur viðtal við Bjartmar Kristjánsson sem var prestur á Mælifelli í Lýtingsstaðahreppi. Rætt um uppruna Bjartmars, skólagöngu hans í Menntaskólanum á Akureyri og guðfræðideild Háskóla Íslands. Að lokum aðeins minnst á búsetu og prestskap hans á Mælifelli.
Viðtal við Ófeig Helgason, Reykjaborg. Líklega tekið í kringum 1969-1970. Rætt um æsku og uppvöxt Ófeigs en hann var fæddur á Ánastöðum og ólst þar upp til tíu ára aldurs en eftir það eitt ár á Mælifellsá og tvö ár í Kolgröf. Eftir það bjó fjölskyldan á Reykjum. Þá er rætt um stofnun nýbýlis á Reykjaborg. Þá segir Ófeigur frá öðrum störfum sínum, utan búskaparins. Ófeigur og kona hans höfðu gróðurhús á jörðinni um skeið og þegar viðtalið er tekið stundar Ófeigur sútun á gærum og skinni. Rætt um búskaparhætti og framtíð landbúnaðarins. Að lokum spyr Sigurður um skoðanir viðmælanda á lífi eftir dauðann.
Viðtal við Jóhönnu Björnsdóttur, Bjarmalandi. Líklega tekið í kringum 1969-1970. Rætt um æsku og uppvöxt Jóhönnu en hún var fædd á Bjarmalandi og fór átta ára gömul í fóstur á Hóli. Einnnig var hún á Völlum og fleiri bæjum. Rifjar upp ýmsar bernskuminningar, m.a. frá uppboði á Lýtingsstöðum þar sem hún eignaðist hest. Að lokum er rætt um Helgu Magnúsdóttur, ömmu Jóhönnu. Sigurður spyr Jóhönnu loks um líf eftir dauðann.
7a. Útvarpsþættir, Vikan, sem var. Viðtal við Bjarna Einarsson bæjarstjóra á Akureyri. Heimsókn í Glaumbæjarsafn, viðtal við Sigurð Egilsson. Ingþór Sigurbjörnsson kveður og segir frá. Vilhjálmur Hjalmarsson, Matthías A. Matthisen, Matthías Bjarnason, Geir Hallgrímsson. Slæm upptaka (7b), ýmislegt upptekið úr útvarpi (ruv).