Félagar úr Verslunarmannafélagi Sauðárkróks matast í skemmtiferð um Húnaþing seint á 6. tug 20. aldar. Fremst liggur Engilráð Sigurðardóttir. Aðrir eru frá vinstri: Ragnhildur Lúðvíksdóttir- Ásgrímur Helgason- Haukur Haraldsson- Sverrir Svavarsson og Sigrún Halldórsdóttir. Safn Kr. C. Magnússonar.
Handknattleiksmót sem haldið var á Sauðárkróki árið 1957. Lið Tindastóls. Aftari röð f.v. Oddrún Guðmundsdóttir, Ingibjörg Jósafatsdóttir, Helena Magnúsdóttir, Hallfríður Guðmundsdóttir og Steinunn Ingimundardóttir. Neðri röð f.v. Lára Angantýsdóttir. Hrafnhildur Stefánsdóttir (Lilla Stebba) Hólmfríður Friðriksdóttir, Svafa Svafarsdóttir, Auður Haraldsdóttir og Ingibjörg Lúðvíksdóttir (Lilla).