Tilg. 850 ára afmæli biskupsstóls á Hólum í ágúst 1956 (eða Hólahátíð í júlí 1957 þar sem minnst var 75 ára afmælis Hólaskóla). Samkoma við kirkjugarðinn á Hólum. Í ræðustól er hugsanlega Sigurður Sigurðsson sýslumaður.
Sjá mynd 2624. Hópur fólks við kirkjugarðinn á Hólum. Jón Þ. Björnsson kennari með hatt á miðri mynd og t.h. við hann Kristján Ingi Sveinsson og séra Björn Björnsson.
Jarðaför Péturs Hannessonar (ljósmyndara) frá Sauðárkrókskirkju, en hann lést árið 1960. Líkmenn, t.h að framan er Kristján Skarphéðinsson en Adolf Björnsson aftar og t.v að framan er Gunnar Þórðarson en aftari óþekktur. Vörubíllinn (líkbíllinn) var í eigu Sigurðar Björnssonar Suðurgötu 4. Rotaryfélagar bera kistu hans og standa heiðursvörð.