Fyrsta varanlega gatnagerðin á Sauðárkróki- malbikun Skagfirðingabrautar sumarið 1962. Til hægri á myndinni eru Rögnvaldur Finnbogason (t.v.) og Adolf Björnsson (1916-1976) rafveitustjóri Sauðárkróki. (t.h.).
Jarðaför Péturs Hannessonar (ljósmyndara) frá Sauðárkrókskirkju, en hann lést árið 1960. Líkmenn, t.h að framan er Kristján Skarphéðinsson en Adolf Björnsson aftar og t.v að framan er Gunnar Þórðarson en aftari óþekktur. Vörubíllinn (líkbíllinn) var í eigu Sigurðar Björnssonar Suðurgötu 4. Rotaryfélagar bera kistu hans og standa heiðursvörð.