Myndin er tekin á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki 21.12.1998. Talið frá vinstri: Guðrún Guðmundsdóttir- Guðmunda Hermannsdóttir og Unnur Guðmundsdóttir. Gefandi: Marteinn Steinsson- fyrrverandi kennari á Sauðárkróki. 23.05.2000.
Ýmis útgefin gögn, sem flest tengjast Skagafirði. Líklega er um þrjár mismunandi afhendingar að ræða, en þær voru allar í geymslum safnsins. Vitað er að ein þeirra er frá 1985. Lista yfir þá afhendingu er að finna í gögnunum.
Gögn frá ráðstefnu eða fundi sem bar yfirskriftina "Staða og horfur í atvinnumálum" og haldinn var í Félagsheimilinu Bifröst 21. mars 1987. Alls 99 pappírsarkir í A4 stærð. Með liggur mappa merkt fundinum. Ástand skjalanna er gott.
Vísur eftir Ingimar Magnússon frá Ytri-Hofdölum. Vísurnar eru handskrifaðar á 4 pappírsarkir í A5 stærð, með rithönd Marteins Steinssonar. Ástand skjalsins er gott.
Ljóðið Hótel jörð eftir Tómas Guðmundsson. Ljóðið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk í A5 stærð með rithönd Marteins Steinssonar. Ástand skjalsins er gott.
Yfirlýsingin er 8 fjölritaðar síður í A4 broti. Hún varðar stefnumál K-listans fyrir bæjarstjórnarkosningar á Sauðárkróki 1986. Ástand skjalsins er gott.
Myndin er tekin 21.12.1998 á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki. 99 ára gömul er Jóna Guðmundsdóttir (t.h.) og með henni Guðmunda Hermannsdóttir (t.v.). Gefandi: Marteinn Steinsson- fyrrverandi kennari á Sauðárkróki. 23.05.2000.
Yfirlýsingin er 6 fjölritaðar pappírsarkir í 4 stærð. Hún varðar stefnumál K-listans fyrir bæjarstjórnarkosningar á Sauðárkróki 1982. Ástand skjalsins er gott.